Tímarit UNIFEM - 01.01.2004, Síða 46
Frá árinu 1999 hafa yfirvöld og UNIFEM á Íslandi styrkt störf
íslensks sérfræðings á skrifstofu UNIFEM í Kósóvó. Hér fjallar
Bjarney Friðriksdóttir, MA í alþjóðafræðum, um störf sín í
Kósóvó, uppbyggingarstarfið og ástandið í héraðinu.
UNIFEM hefur starfað í Kósóvó frá því í september 1999. Störf skrif-
stofunnar voru undirbúin með það í huga að 70% íbúanna höfðu flúið
eða verið fluttir úr landi 1998-1999, eða á meðan átökin stóðu yfir. Af
þessum fjölda yfirgaf ein milljón manna héraðið á tveggja vikna tímabili
fyrir loftárásir NATO á Serbíu, en Kósóvó er hérað í Serbíu sem nú lýtur
yfirstjórn Sameinuðu þjóðanna. Í upphafi var ætlunin að UNIFEM-
verkefnið beindist að stuðningi við konur sem höfðu flúið Kósóvó til að
byggja upp líf sitt og fjölskyldna sinna á ný. Hins vegar sneri stór hluti
þeirra sem hafði flúið heimkynni sín til baka fljótlega eftir að loftárásum
NATO lauk og alþjóðlegt herlið tók við stjórn í Kósóvó. Því var ákveðið
að beina sjónum að því að styðja konur til aukinnar pólitískrar þátttöku
og til að taka að sér leiðtogahlutverk í enduruppbyggingu samfélagisins
eftir áratugalangt tímabil kúgunar, efnahagslegrar vanrækslu og átaka.
Áhersla lögð á að mæta þörfum Kósóvóbúa
Íslensk stjórnvöld hafa stutt starf UNIFEM í Kósóvó frá því í lok árs 1999
með því að greiða laun alþjóðlegs starfsmanns sem gegnir stöðu faglegs
ráðgjafa og meðstjórnanda innlends framkvæmdastjóra. Fram til þessa
hafa fjórar íslenskar konur gegnt stöðunni og hefur þetta fyrirkomulag
ráðið miklu um árangurinn. Samvinna alþjóðlegs sérfræðings og innlends
framkvæmdastjóra á jafnréttisgrundvelli tryggir sterk tengsl við samfélag
heimamanna en einnig hlutleysi, sem nauðsynlegt er að einkenni störf
Sameinuðu þjóðanna.
Verkefni skrifstofunnar hafa frá upphafi verið ákvörðuð í samráði við
heimafólk. Þannig hafa áherslur í starfinu miðast við að mæta þörfum og
forgangsröðun íbúa héraðsins. Einnig hefur starfið alltaf tekið mið af því
að byggja samhliða upp þekkingu og styðja starf frjálsra félagasamtaka og
stjórnvalda, sérstaklega á sveitarstjórnarstiginu.
Aðaláherslur
Nú stendur yfir þriðja og síðasta verkefnatímabil skrifstofunnar sem kall-
ast From Post-Conflict to Development in Kosovo: Advancing Gender Equality
and Women’s Rights, en skrifstofunni verður lokað í lok árs 2005. Aðal-
áherslur þessa tímabils eru eftirfarandi:
Stuðningur við stjórnvöld til að koma jafnréttisáætlun fyrir Kósóvó
í framkvæmd.
Fagleg ráðgjöf og fjárstuðningur við faghópa til að yfirtaka verk-
efni skrifstofunnar. Meðal annars er stuðningnum beint að lögfræð-
ingum með sérþekkingu í jafnréttismálum og leiðbeinendum um
samþættingu jafnréttismála og mannréttindum kvenna fyrir opinberar
stofnanir.
Stuðningur við opinberar stofnanir til þess að halda uppi símenntun
í jafnréttismálum og kynjanálgun fyrir opinbera starfmenn á öllum
stjórnstigum.
Stuðningur við óháð félagasamtök og opinberar stofnanir til að nýta
alþjóðlega mannréttindasamninga, framkvæmdaáætlanir og ályktanir
Sameinuðu þjóðanna til að vinna að framgangi jafnréttismála. Meðal
annars með því að gera skýrslu um framfylgni við alþjóðlegan samn-
ing Sameinuðu þjóðanna um afnám alls misréttis gegn konum
(CEDAW). Skýrslan verður að öllum líkindum afhent öryggisráði
Sameinuðu þjóðanna, þar sem Kósóvó er ekki ríki og getur því ekki
afhent skýrsluna til nefndar innan Sameinuðu þjóðanna sem hefur það
hlutverk að fylgjast með því hvernig ríki framfylgja samningnum.
Þrátt fyrir að skrifstofa UNIFEM verði lögð niður í lok árs 2005 munu
verkefni UNIFEM í Kósóvó áfram vera hluti af starfsáætlun svæðis-
skrifstofu UNIFEM fyrir Mið- og Austur-Evrópu í Slóvakíu. Starfs-
áætlunin er nú í mótun fyrir Albaníu og ríki fyrrverandi Júgóslavíu, að
Slóveníu undanskilinni, og nær til ársins 2007.
Um uppbyggingarstarf og stöðu mála í Kósóvó er pólitískt
Þar sem allt
L
jó
sm
yn
d
: L
or
in
L
op
ot
in
sk
y
46