Tímarit UNIFEM - 01.01.2004, Qupperneq 81

Tímarit UNIFEM - 01.01.2004, Qupperneq 81
konur en karla og öfugt. Konur hafa til að mynda hentað vel til starfans í Sri Lanka sem byggist töluvert á sáttahæfileikum, aðlögunarhæfni auk þess sem konur búa gjarnan yfir sálrænum yfirburðum samanborið við karla,“ segir Arnór. „Nokkrar konur sóttu um starf við flugvöllinn í Kabúl og var ein þeirra ráðin. Hins vegar kom ekki til þess að hún færi af persónulegum ástæðum.“ Konur voru aðeins 14% þeirra friðargæsluliða sem voru að störfum fyrstu sex mánuði þessa árs. Þá lækkaði hlutfall kvenna úr 30% í 24% á árunum 2001-2003. Aðspurður um það hvort við veldum „karlastörf“ frekar en störf sem henta konum eða báðum kynjum í friðargæslunni, segir Arnór svo ekki vera. „Við viljum endurspegla allan regnbogann í íslensku friðargæslunni.“ Hins vegar væri ljóst að kynjaskipting í starfi friðargæslunnar endurspeglaði kynjaskiptingu heima fyrir hverju sinni. Hann tók sem dæmi þá lækna og hjúkrunarfræðinga sem sendir hafa verið til starfa á vegum íslensku friðargæslunnar, en karlar hafa fyllt störf lækna, og konur hjúkrunarfræðinga. Hann bendir á að ýmis störf sem í fyrstu gætu talist frekar til karla- en kvennastarfa hentuðu í raun konum mjög vel. Sem dæmi um þátttöku kvenna sagði Arnór jafnan eina til tvær konur að störfum í lögreglunni í Bosníu og Hersegóvínu og í Kósóvó hafi konur verið að störfum í flug- umferðarstjórn og fluggagnafræði. „Verkefnaval á ekki að endurspegla karlahlutverk,“ segir Arnór. Hins vegar sé raunin sú að fleiri karlar sæktu um störf við friðargæslu en konur sem óhjákvæmilega skilaði sér í hlut- fallslega fleiri körlum á viðbragðslista. „Nokkuð sem við vildum gjarnan breyta.“ Styðja verkefni UNIFEM í Kósóvó til loka árs 2005 Arnór segir friðargæsluna leggja áherslu á að styrkja fáein verkefni sem miða að bættri stöðu kvenna og auknu kynjajafnrétti. Að auki legði friðargæslan áherslu á kerfisbundna nálgun í þessum efnum. Íslensk stjórnvöld hafa fjármagnað stöðu íslensks sérfræðings hjá UNIFEM í Kósóvó frá árinu 1999. Til þessa hafa fjórar íslenskar konur verið sendar til starfans og hafa þær gegnt stöðu sérlegs ráðgjafa og verkefnisstjóra UNIFEM. Arnór segir það hafa verið vel þess virði að styðja UNIFEM og hafa íslensk stjórnvöld ákveðið að styðja verkefnið í Kósóvó til loka árs 2005. Þá segir hann yfirvöld reiðubúin að skoða aðra möguleika í ætt við UNIFEM-verkefnið í Kósóvó þegar því lýkur. „Menn hegði sér vel“ Ályktun öryggisráðs SÞ nr. 1325 frá árinu 2000 kveður á um aukinn hlut kvenna í ákvarðanatöku og þátttöku við friðarumleitanir og uppbygg- ingu eftir stríð. Að auki varpar ályktunin ljósi á sérstakar hættur sem blasa við konum og stúlkum á stríðstímum og í kjölfar stríðs. Ályktunin kveður á um að sérstakt tillit skuli tekið til stöðu og réttinda kvenna á meðan á stríðsátökum stendur og eftir stríð. Til að tryggja að þessum atriðum sé framfylgt er farið fram á að aðildarríki og aðalritari SÞ sjái til þess að starfsfólk í friðargæslu og uppbyggingarstarfi fái sérstaka fræðslu í „verndun, réttindum og sérþörfum kvenna“. Að auki er kveðið á um að starfsfólk skuli fá fræðslu um mikilvægi þess að konur séu þátttakendur í öllum aðgerðum sem snúa að friðargæslu og friðar- uppbyggingu. Íslenska friðargæslan hefur boðið fólki á viðbragðslista að sækja almenn undirbúningsnámskeið og var eitt slíkt haldið í apríl sl. Aðspurður segir Þorbjörn að ekki hafi verið fjallað sérstaklega um málefni kvenna og réttindi þeirra. „Aðaláherslan var á öryggisviðbúnað. Hins vegar lögð- um við mikla áherslu á ýmsar dekkri hliðar á alþjóðastarfsemi, eins og mansal, og að menn hegðuðu sér vel á staðnum. Að þeir gerðu ekkert sem þeir myndu skammast sín fyrir.“ Þá sagði Þorbjörn þá hafa hvatt friðargæsluliða til að sækja fundi og ráð- stefnur og tók sem dæmi ráðstefnu sem haldin var um Konur, stríð og öryggi 10.-11. október 2003 í Háskóla Íslands. Þar hafi ýmislegt fróðlegt og nytsamlegt komið fram um þessi málefni. Konur voru aðeins 14% þeirra friðargæsluliða sem voru að störfum fyrstu sex mánuði þessa árs. Þá lækkaði hlutfall kvenna úr 30% í 24% á árunum 2001-2003. Íslensk stjórnvöld hafa fjármagnað stöðu íslensks sérfræðings hjá UNIFEM í Kósóvó frá árinu 1999. Til þessa hafa fjórar íslenskar konur verið sendar til starfans og hafa þær gegnt stöðu sérlegs ráðgjafa og verkefnis- stjóra UNIFEM. Arnór segir það hafa verið vel þess virði að styðja UNIFEM og hafa íslensk stjórnvöld ákveðið að styðja verkefnið í Kósóvó til loka árs 2005. Þá segir hann yfirvöld reiðubúin að skoða aðra möguleika í ætt við UNIFEM-verkefnið í Kósóvó þegar því lýkur. Myndir Bls. 78: Kósóvó-Albanar sýna þakklæti sitt með því að spreyja fána og tilgreina nöfn þeirra sem álitnir eru hafa „frelsað“ þá frá oki serbneskra stjórnvalda. Á myndinni má sjá nafn Robin Cooks, fyrrverandi utanríkisráðherra Bretlands, Wesley Clarks, fyrrverandi yfirmanns NATO-hersins í Kósóvó, Xavier Solana, framkvæmdarstjóra NATO, merki NATO, auk þjóðarfána Bretlands, Kanada og Þýskalands. Ljósmynd: Lorin Lopotinsky. Til hægri: Á myndinni er Jónas Þorvaldsson, sprengjusérfræðingur Landhelgis- gæslunnar, en hann starfaði á vegum íslensku friðargæslunnar við að fjarlægja sprengjur í suðurhluta Íraks um tveggja mánaða skeið í byrjun ársins. Ljósmynd: Davíð Logi Sigurðsson. 80
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100

x

Tímarit UNIFEM

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit UNIFEM
https://timarit.is/publication/1156

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.