Tímarit UNIFEM - 01.01.2004, Síða 82

Tímarit UNIFEM - 01.01.2004, Síða 82
Sumarið 2003 var sett á stofn svið fjölþjóðlegrar þróunarsam- vinnu innan alþjóðaskrifstofu utanríkisráðuneytisins. Hrund Gunnsteinsdóttir þróunarfræðingur ræðir við Hermann Örn Ingólfsson sendiráðunaut um stefnur og strauma alþjóðlegra stofnana og hlut Íslands í marghliða þróunaraðstoð. Seta í stjórn Alþjóðabankans forgangsverkefni Á sviði fjölþjóðlegrar þróunarsamvinnu starfa fjórir sérfræðingar auk rit- ara og fer skrifstofan með málefni marghliða þróunaraðstoðar Íslands. Slík aðstoð er veitt í gegnum stofnanir, en ekki beint frá einu ríki til annars. „Forgangsverkefni skrifstofunnar er að styðja við setu Íslands í stjórn Alþjóðabankans, sem óhætt er að segja að sé ein valdamesta stofnunin á sviði þróunarmála í dag,“ segir Hermann Örn Ingólfsson, sendiráðu- nautur á sviði fjölþjóðlegrar þróunarsamvinnu. „Í október 2003 tók Þorsteinn Ingólfsson, fyrrverandi sendiherra Íslands hjá Sameinuðu þjóð- unum í New York, sæti aðalfulltrúa kjördæmis Norðurlanda og Eystra- saltsríkja í stjórn Alþjóðabankans (IBRD). Alls sitja 24 í stjórn bankans í Washington, en hlutverk Íslands í sæti aðalfulltrúa er að samræma afstöðu þessara átta ríkja og leiða störf þeirra í þrjú ár, eða til ársins 2006.“ Að auki tekur svið fjölþjóðlegrar þróunarsamvinnu að sér ýmis verk- efni sem snerta störf ráðuneytisins og eru á vegum Þróunaráætlunar Sam- einuðu þjóðanna (UNDP), Mannfjöldasjóðs SÞ (UNFPA), Norræna þróunarsjóðsins (NDF), Matvælaaðstoðar SÞ (WFP), Alþjóðasjóðs um þróun landbúnaðar (IFAD) og ráðstefnu SÞ um viðskipti og þróun (UNCTAD). Þá vinnur skrifstofan að aðild Íslands að þróunarsamvinnu- nefnd Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD), eða DAC. Hlutverk DAC (Development Assistance Committee) er að sögn Hermanns fyrst og fremst að veita ríku þjóðunum aðhald, að vera vett- vangur fyrir mótun sameiginlegra stefnumiða um framkvæmd þróunar- aðstoðar og halda utan um upplýsingar um þróunaraðstoð þeirra. Með aðild að DAC komum við til með að þurfa að „veita meiri og nákvæmari upplýsingar um hvernig aðstoð og hve mikið fé við leggjum til þróunaraðstoðar. Nefndin gerir úttekt á þróunaraðstoð aðildarlanda á nokkurra ára fresti og með aðild að henni viljum við auka gæði þróunar- aðstoðar okkar,“ segir Hermann Örn. Samkvæmt viðmiðum þróunarsamvinnunefndarinnar og SÞ er gert ráð fyrir að ríki eyði 0,7% af landsframleiðslu til þróunaraðstoðar. Þróun- araðstoð Íslendinga var 0,17% árið 2003 eða 1.400 millj. kr. Samkvæmt fjárlögum er gert ráð fyrir að þróunaraðstoðin verði 0,19% af landsfram- leiðslu á þessu ári. Halldór Ásgrímsson, fyrrverandi utanríkisráðherra, lýsti því yfir á Alþingi í vor að stefna Íslands væri að 2008-2009 yrði hlutfall þróunaraðstoðar komið í 0,35% af landsframleiðslu. „Íslendingar vilja taka ábyrgð“ Hermann Örn segir heildarstefnu Íslands í marghliðaþróunaraðstoð vera í mótun. „Við erum að vega og meta hvar íslenskum fjármunum sé best varið og með hvaða alþjóðlegu stofnunum sé best að vinna að ákveðnum málum.“ Hermann segir Ísland hingað til hafa takmarkað sig við samstarf og fjárstuðning til tiltölulega fárra stofnana. „Ástæðan er einfaldlega sú að við erum lítið ríki og höfum þar af leiðandi ekki yfir miklum fjármunum að ráða til að geta haft áhrif á mörgum stöðum í einu.“ Hermann segir þróunaraðstoð okkar hafa til þessa miðast fyrst og fremst við að standa við skuldbindingar okkar gagnvart alþjóðlegum stofnunum. Lítið svigrúm hafi þar af leiðandi skapast til að beita sér á afmörkuðum sviðum. Hann segir tvö sjónarmið vera uppi varðandi stefnumótun í þróunarmálum og fari þau vel saman. „Annað sjónarmiðið felur í sér að veita fjármunum til einstakra stofn- „Viljum auka gæði Um marghliða þróunaraðstoð Íslands þróunaraðstoðar“ U N IC EF / H Q 01 -0 26 2/ G ia co m o Pi ro zz i 82
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Tímarit UNIFEM

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit UNIFEM
https://timarit.is/publication/1156

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.