Tímarit UNIFEM - 01.01.2004, Qupperneq 84

Tímarit UNIFEM - 01.01.2004, Qupperneq 84
Lítið samráð við ríki um eigin efnahagsstjórn Þegar ríkisstjórnir í suðri sóttu til Alþjóðabankans og Al- þjóðagjaldeyrissjóðsins (IMF) um aðstoð við upphaf ní- unda áratugarins hófst það tímabil í sögu stofnananna sem hvað mest hefur verið gagnrýnt af breiðum hópi manna um heim allan. Stefnur Bretton Wood stofnananna, eins og bankinn og sjóðurinn eru gjarnan kallaðir, fólust í stuttu máli í því að lán voru veitt til þróunarríkja með ströngum skilyrðum um breytta efnahagsstjórn og stjórn- sýslu. Þessi skilyrði voru sett fram í svokallaðri kerfis- lægri aðlögun, eða Structural Adjustment Programmes (SAPs). Lítið samráð var haft við stjórnvöld og aðra aðila í viðkom- andi ríkjum við gerð þessara skilyrða sem höfðu það að grundvallarmarkmiði að auka útflutning og opna innlenda markaði fyrir erlendum fjárfestingum og vörum. Áhersla var lögð á að lánsríki einkavæddu stóran hluta ríkisrek- inna fyrirtækja og stofnana og leggðu af einokun. Mörg þessara ríkja höfðu frá því þau hlutu sjálfstæði aðhyllst mikil ríkisafskipti og verndarstefnu gagnvart innfluttum vörum. Því fól kerfislæg aðlögun í sér kúvendingu hvað efnahagsstjórn og félagslegt öryggi varðaði. Niðurgreiðslur á mat og lyfjum voru í mörgum tilfellum lagðar niður og verð á neysluvörum hækkaði verulega. Launalækkanir urðu í kjölfar aðlögunarinnar, sérstaklega hjá hinu opinbera og aðgangur að heilsugæslu og mögu- leikar til menntunar fóru minnkandi. Kerfislæg aðlögun bitnaði mest á fátækustu íbúunum, konum, eldra fólki og sjúklingum. Hlutur regnhlífarsamtaka Heimssamtökin Jubilee 2000, sem voru samtök frjálsra félagasamtaka, fjölmiðla, sérfræðinga, háskólasamfélaga og annarra, vöktu athygli á slæmum vinnubrögðum stofn- ananna í lok 20. aldarinnar. Þau börðust ötullega fyrir því að stofnanirnar tvær legðu niður allar eða hluta af skuld- um fátækustu ríkjanna. Meðal þeirra sem töluðu fyrir mál- stað Jubilee 2000 voru Bono, söngvari U2, Jóhannes Páll páfi og Mohammad Ali, auk þess sem stjórnmálaleiðtogar eins og Bill Clinton, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, og Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, hafa sýnt málefn- inu stuðning. Engin vafi leikur á því að störf samtakanna hafa skilað töluverðum árangri. Í það minnsta vöktu almenning til umhugsunar um skuldastöðu þróunarríkj- anna. Markmiðið að draga úr fátækt Í stað kerfislægrar aðlögunar þurfa þróunarríki sem nú fá lán eða niður- greiddar skuldir að útbúa áætlun um það hvernig þau hyggjast bæta efnahagsstjórn og minnka fátækt í landinu (Poverty Reduction Strategic Paper, PRSP). Áherslan er því fyrst og fremst á að draga úr fátækt, að lánsríki leiði gerð þessara áætlana í samvinnu við frjáls félagasamtök og aðra innlenda aðila, sem og alþjóðlegar stofnanir og samtök sem starfa að þróunarmálum í viðkomandi landi. Þessi skilyrði eru í samræmi við breyttar áherslur í þróunarmálum og kröfur um að ríki „eigi“ eða séu fyrst og fremst ábyrg fyrir þróunarstarfi í eigin landi (e. ownership) og þau markmið að draga úr fátækt í heiminum. „PRSP er ákveðin bylting. Alþjóðabankinn og Alþjóðagjaldeyrissjóð- urinn tóku ákvörðun um að leggja ábyrgð í hendur landanna sjálfra sem er töluverð breyting frá því sem var. Í PRSP eiga allir að vera með,“ segir Hermann Örn. „Wolfenshon tók við forsæti Alþjóðabankans árið 1995 en hann hefur verið tilbúinn að hlusta meira á gagnrýnisraddir en verið hafði og ímynd Alþjóðabankans hefur batnað. HIPC-verkefnið var sett á laggirnar fljótlega eftir að Wolfenshon tók við. Félagasamtök hafa veitt þessum stofnunum (bankanum og sjóðnum) aðhald. Það sem skiptir mestu máli er að löndin sjálf treysti sér til að setja stólinn fyrir dyrnar og berjast fyrir skoðunum sínum. Með PRSP hafa þau þetta tæki.“ Hermann Örn segir það rétt að PRSP hafi gengið misvel eftir löndum. Það fari mikið eftir því hversu leiðandi yfirvöld í hverju landi eru, hversu vel þau vinna með innlendum hagsmunahópum og ríkjum sem veita þróunaraðstoð. Hvað varðar kynja- og jafnréttismál segir Hermann Örn það velta mjög á áherslum innlendra aðila, hvort sem um ræðir yfirvöld eða aðra, hversu mikið tillit er tekið til slíkra mála við framkvæmdir sem miða að uppbyggingu og útrýmingu fátæktar. „PRSP er sóknarfæri fyrir löndin sjálf og hagsmunaaðila í löndunum. Samráðsferlið felur í sér að hagsmuna- aðilar koma á framfæri ákveðnum áherslum og skoðunum. Oft eru þrýstihópar sem hafa jafnrétti og bætta stöðu kvenna að leiðarljósi ekki nægilega sterkir og því spurning um hvernig stofnanir eins og UNIFEM koma inn í umræðuna. Norðurlöndin stukku á þessa hugmynd með PRSP og sáu þar gott tækifæri til að bæta ástandið og samskipti vestrænna ríkja við þróunarlönd.“ Þúsaldarmarkmið SÞ til grundvallar þróunaraðstoðar Árið 1996 einsettu 21 aðildarríki OECD, fjölmörg óháð félagasamtök og alþjóðlegar stofnanir sér að fækka tilfellum sárafátæktar um helming fyrir árið 2015. Þetta markmið er eitt af helstu áhersluatriðum í þúsaldar- markmiðum SÞ um þróun, og tekur HIPC-átakið mið af þeim. Nánar er fjallað um þúsaldarmarkmiðin annars staðar í blaðinu, en þau samanstanda af átta markmiðum um þróun og bætt lífskjör. Hermann segir markmiðin þjóna mikilvægu hlutverki þótt þau séu ekki fullkomin. „Þau eru mikil einföldun að mínum dómi, en hljóta samt að hjálpa. Þarna sameinast alþjóðasamfélagið í heild sinni um markmið til að vinna að, bæði Bretton Woods stofnanirnar og tvíhliða stofnanir. Öll erum við að vinna að sameiginlegum markmiðum. Það hlýtur að vera mjög jákvætt. Á Monterrey-ráðstefnunni um fjármögnun þróunar árið 2002 gáfu ríku löndin til að mynda loforð um verulega aukningu framlaga til þróunaraðstoðar.“ Þessi loforð um aukningu hafa hins vegar ekki staðist sem skyldi og hafa gagnrýnisraddir verið uppi um að mikill hluti þróunaraðstoðar hafi verið veittur til uppbyggingarstarfs í Afganistan og Írak, á kostnað þró- unaraðstoðar til annarra landa. Þeirra vandamál njóti hins vegar ekki eins mikillar athygli fjölmiðla og þar af leiðandi rati minna fjármagn til þeirra. Hermann Örn segir framlög til fátækustu landanna ekki hafa farið lækkandi. „En þetta er þó vísbending um að þrátt fyrir hækkun framlaga ríku þjóðanna til þróunaraðstoðar er hún kannski ekki nægjanlega mikið ætluð baráttunni fyrir framgangi þúsaldarmarkmiðanna. Menn hafa því áhyggjur af því að við munum ekki ná markmiðunum og því fjármagni sem lofað hefur verið. Í dag er útlit fyrir að mikill fjöldi fátækra landa muni ekki ná þúsaldarmarkmiðunum. Við tökum þúsaldarmarkmiðin um þróun hins vegar mjög alvarlega og þau eru grundvöllurinn að stefnu Íslands í þróunaraðstoð.“ U N IC EF / H Q 00 -0 48 3/ R ad hi ka C ha la sa ni
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100

x

Tímarit UNIFEM

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit UNIFEM
https://timarit.is/publication/1156

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.