Jón á Bægisá - 01.09.2003, Side 47

Jón á Bægisá - 01.09.2003, Side 47
Þýðingafrœði við Háskóla íslands ingafræði. Þær skiptast í 15 einingar í námskeiðum og 15 eininga M.A.-rit- gerð. Mjög metnaðarfullir nemendur geta tekið 30 eininga ritgerð og eng- in námskeið á síðara árinu. Námi þessu hefiir verið mjög vel tekið og eru nú tæplega 20 nemendur á þessum námsleiðum sem þykir gott þegar um framhaldsnám er að ræða. Það er greinilega metnaðarfullt fólk og áhugasamt sem sækir í þetta nám og hefur tímasókn verið hagað þannig að menn geti unnið sína vinnu með þessu ef þeir vilja. Vorið 2001 kenndi ég námskeiðið Þýðingar: ritsmiðja í heimspekideild Há- skólans og var námskeiðið á vegum skorar í almennri bókmenntafræði og málvísindum, en einnig tóku þar þátt nemendur úr öðrum skorum heim- spekideildar. Við ákváðum í upphafi að einbeita okkur að hagnýtum hlið- um þýðinga eins og gert var ráð fýrir í þessu námskeiði, en okkur langaði einnig til að skoða veruleikann á þessu starfssviði sem svo lítið hefur verið sinnt faglega hingað til. Það var því ákveðið að hluti námskeiðsins fælist í því að nemendur ynnu rannsóknarverkefni á tilteknu sviði þýðinga og öfluðu sér gagna frá þeim sem að ferlinu koma, þýðendum, verkkaupum og neytendum. Nem- endur sinntu þessu verkefni af gífurlegum áhuga og þegar þeir tóku að flytja erindi með niðurstöðum sínum kom fljótt í ljós að til var að verða mynd af þýðingastarfsemi þeirri sem fram fór á íslandi vorið 2001. Þetta var vitanlega engin heildarmynd, en hún var samt ærið ítarleg og víðfeðm. Okkur þótti því ekki ljúft til þess að hugsa að öll sú vinna sem fór í upp- lýsingaöflunina yrði einungis að einingum á einkunnablaði nemenda. Einnig höfðu margir viðmælenda nemendanna haft á orði að þeir vildu fá að sjá niðurstöður þeirra. Um vorið höfðum við því safnað mildum upplýsingum og vinnuhóp- arnir höfðu sett saman niðurstöður á hverju sviði. Hins vegar var ljóst að samræma þyrfti framsetningu á þeim og bæta við á mörgum stöðum til að fá betri mynd af því sem verið var að rannsaka. Það var því ákveðið að tveir nemendur önnuðust ritstjórn á efninu og sóttu þeir um styrk úr Nýsköp- unarsjóði námsmanna til að vinna verkið um sumarið. Svo ánægjulega vildi til að styrkurinn fékkst og með mótframlagi Þýðingaseturs Háskólans var þeim Rannveigu Jónsdóttur og Auðnu Hödd Jónatansdóttur gert kleift að vinna niðurstöðurnar upp í ítarlega skýrslu. Afrakstur þessarar vinnu kemur fram í skýrslunni sem Jón á Bœgisá birt- ir hér með og er ánægjulegt að þetta verk skuli sjá dagsins ljós opinberlega, á .JSœpásá- — Þegar stríð að stríðinu verður 45
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Jón á Bægisá

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Jón á Bægisá
https://timarit.is/publication/1166

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.