Jón á Bægisá - 01.09.2003, Page 62

Jón á Bægisá - 01.09.2003, Page 62
Auðna Hödd Jónatansdóttir og Rannveig Jónsdóttir uppsetningu annarra leikhúsa, segist ímynda sér alla hluta uppsetningar- innar í heild áður en hann ákveður að taka verlcið til sýningar; hlutverka- skipan leikara, leikstjóra, áhorfendahóp og þýðanda. Ef til vill sér hann strax að verkið hentar ákveðnum þýðanda mjög vel; að stíll og málfar þýð- andans henti leikritinu sem héldi þá frumleika sínum og yrði jafn ferskt á íslenskri tungu og frummálinu. Aðstæður sjálfstæðu leikhúsanna (sbr. op- inber framlög) gera það að verkum að markaðslögmálið er að miklu leyti ráðandi við verkefnaval, en opinberu leikhúsin þurfa ekki að einblína á það heldur geta sett upp metnaðarfull verk í tilraunastarfsemi þótt þau séu ekld endilega gróðavænleg. Þrátt íyrir að ekkert leikhúsanna hafi ákveðnar reglur um orðalag eða ákveðin bannorð eru þó gerðar tilteknar gæðakröfur til þýðenda. Sjálf- stæðu leikhúsin virðast frjálslynd varðandi slettur eða dónaorð — ef það hentar leikritinu, hentar það þeim — en staða Þjóðleikhússins sem ríkis- stofnunar setur því ákveðnar skorður. Hrein og falleg íslenska markar stefnu þess nema annað sé ómissandi hluti verksins. Þýdd verk virðast vera í meirihluta hjá flestum leikhúsum. Samkvæmt verk- efnalistum opinberu leikhúsanna voru þýdd verk sem tekin voru til sýninga í Þjóðleikhúsi og Borgarleikhúsi um 67,5% sýndra verka síðustu tíu árin.3 Þýdd verk í opinberu leikhúsunum 1990-2001 Eins og sést hér að ofan er hlutfall þýddra verka af sýndum verkum að meðaltali örlítið hærra í Þjóðleikhúsinu en í Borgarleikhúsinu. Þó er munurinn það lítill að hann er vart marktækur; á þessu tíu ára tímabili 3 Miðað er við sýnd leikrit og leildestra á vegum Þjóðleikhússins og Leilífélags Reykjavík- ur. Engin samstarfsverkefni, menningardagskrár, óperur, listdanssýningar, gestaleiksýn- ingar o.þ.h. voru tekin með í reikninginn. 60 á — Tímarit þýðenda nr. 7 / 2003
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Jón á Bægisá

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Jón á Bægisá
https://timarit.is/publication/1166

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.