Gerðir kirkjuþings - 01.01.2012, Síða 76
76 77
Nefndarálit fjárhagsnefndar
Fjárhagsnefnd hefur farið yfir ársreikninga og fjárhagsáætlanir þjóðkirkjunnar, stofnana
hennar og sjóða. Nefndin fékk glöggt yfirlit um fjárhagsstöðu kirkjunnar, kröfur
ríkisvaldsins um hagræðingu á kostnaði vegna slæmrar stöðu ríkissjóðs og tillögur
kirkjuráðs um lækkun framlaga á ýmsum sviðum til þess að mæta hagræðingarkröfu
ríkisins.
Sérstaklega var farið yfir fjárhagsáætlun þjóðkirkjunnar og sjóða kirkjunnar. Nefndin
þakkar skýra framsetningu reikninga og áætlana og yfirgripsmikil yfirlit og skýringar
á öllum rekstri sem undir þjóðkirkjuna heyra. Nefndin fór yfir endurskoðunarskýrslu
Ríkisendurskoðunar, en í skýrslunni er fjallað um ársreikninga embætta, sjóða,
stofnana og fyrirtækja þjóðkirkjunnar. Nefndin hafði einnig til umfjöllunar skýrslur
frá Ríkisendurskoðun um yfirlit um ársreikninga sókna fyrir árið 2011 og yfirlit um
ársreikninga kirkjugarða vegna ársins 2011.
Kirkjuþing þakkar safnaðafólki um allt land sem lagt hefur svo mikið af mörkum á erfiðum
tímum niðurskurðar í fjármálum sóknanna.
Nefndin fékk á sinn fund Svein Arason, ríkisendurskoðanda, Inga K. Magnússon,
sviðsstjóra. Þeir svöruðu spurningum nefndarfólks um skýrslu um endurskoðun
kirkjustofnana 2011. Einnig kom fulltrúi stjórnar Prestafélags Íslands (PÍ), sr. Kristján
Björnsson, kjaramálafulltrúi. Rætt var um lækkun á rekstrarkostnaði til presta, námsleyfi,
auglýsingu embætta og um niðurskurð á starfsemi Biskupsstofu.
Fjárhagsnefnd beinir því til kirkjuráðs og biskups Íslands að áfram verði unnið að
eftirfarandi atriðum:
1. Að gerður verði formlegur samningur við ríkið um framtíðarskipan og innheimtu
sóknargjalda.
2. Að farið verði að tilmælum Ríkisendurskoðunar um að sjóðakerfi kirkjunnar verði
einfaldað og gert gegnsærra.
3. Að leitað verði leiða til að efla fjárhagslegt eftirlit og ráðgjöf til sókna þjóðkirkjunnar.
4. Að fjárhagsáætlun verði gerð til næstu þriggja ára með það að markmiði að jafnvægi
ríki í fjármálum kirkjunnar. Áætlun taki mið af þeim skipulagsbreytingum sem
unnið er að.
5. Að leitað verði leiða til þess að sóknir og/eða prófastsdæmi sameinist um verkefni
eins og aðstæður leyfa til hagræðis og sparnaðar t.d. í reikningshaldi, sameiginlegum
útboðum og innkaupum.