Gerðir kirkjuþings - 01.01.2012, Qupperneq 25

Gerðir kirkjuþings - 01.01.2012, Qupperneq 25
25 Setningarræða forseta kirkjuþings, Magnúsar E. Kristjánssonar Kirkjuþing 2012 er sett, 49. kirkjuþing hinnar íslensku þjóðkirkju. Hjartanlega velkomin öll hingað í dag, kirkjuþingsfulltrúar og góðir gestir. Í dag fögnum við og heilsum sérstaklega nýjum biskupi Íslands, frú Agnesi M. Sigurðardóttur sem nú kemur á sitt fyrsta reglulega kirkjuþing. Við væntum mikils af samstarfi við hana á kirkjuþingi sem og af forystu hennar í öllu starfi þjóðkirkjunnar. Frú Agnes hefur tekið við því vandasama hlutverki að leiða okkur sem biskup Íslands og er fyrsta konan sem gerir það. Það er okkar allra sem í þjóðkirkjunni erum að styðja okkar biskup. Við óskum frú Agnesi heilla og biðjum henni Guðs blessunar í þessu starfi. Þá vil ég fyrir hönd kirkjuþings færa herra Karli Sigurbjörnssyni fyrrum biskupi Íslands bestu þakkir fyrir hans mikla og góða starf og óska þeim hjónum herra Karli og frú Kristínu Guðjónsdóttur alls hins besta og Guðs blessunar á þessum tímamótum í þeirra lífi. Við heilsum líka nýjum vígslubiskupi á Hólum sr. Sólveigu Láru Guðmundsdóttur og bjóðum hana sérstaklega velkomna í sínu nýja hlutverki til kirkjuþings. Jafnframt þökkum við gott samstarf við sr. Jón Aðalstein Baldvinsson fyrrum vígslubiskup á Hólum og biðjum þeim hjónum sr. Jóni Aðalsteini og konu hans frú Margréti Sigtryggsdóttur blessunar Guðs. Þá vil ég færa Pétri Hafstein fyrrum forseta kirkjuþings þakkir okkar kirkjuþingsfulltrúa fyrir hans mikla framlag til kirkjuþingsins. Persónulega vil ég þakka einstaklega góð og gefandi samskipti. Ég veit að ég mæli fyrir munn allra kirkjuþingsfulltrúa þegar ég óska Pétri og frú Ingu Ástu Hafstein Guðs blessunar og allra heilla. Það eru mikil tímamót þegar svo mikil breyting verður á forystufólki kirkjunnar á stuttum tíma og það minnir okkur á að allt er breytingum háð, ekkert stendur í stað, lífið allt er á stöðugri ferð. Í því ljósi er ágætt að hugleiða ábendingu herra Karls Sigurbjörnssonar biskups er hann hvatti til þess við setningu prestastefnu 2011 að kirkjan ætti að vera hreyfing lærisveina. Mér þótti þetta gott veganesti. Eins og ég skil þetta þá er hreyfing ekki stöðnuð heldur stöðugt á ferð og lærisveinar eru hópur sem telur sig ekki fullnuma og því viljugur til að læra meira. Í þessu felst auðmýkt því af leiðir að lærisveinar eru ekki orðnir meistarar og ef þeir eru hreyfing þá eru þeir ekki komnir á neinn endanlegan stað. Hreyfing lærisveina hlýtur því að vera síkvik, tilbúin að læra, tilbúin að bregðast við breytingum stöðugt leitandi að aðferðum til að geta gert betur í dag en í gær. Ég vil því gjarnan tilheyra þannig hreyfingu lærisveina. Það eru svo miklar breytingar á því umhverfi sem við störfum í og ekki minnstar vegna aðgerða stjórnvalda. Þjóðkirkjan taldi sjálfsagt, eðlilegt og sanngjarnt að taka þátt í þeim niðurskurði sem flestir þurftu að gera eftir ósköpin sem á okkur dundu í efnahagsmálum. Ég veit hins vegar ekki hvernig það á að geta talist sanngjarnt að þjóðkirkjan og sóknir hennar
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128
Qupperneq 129
Qupperneq 130
Qupperneq 131
Qupperneq 132
Qupperneq 133
Qupperneq 134
Qupperneq 135
Qupperneq 136
Qupperneq 137
Qupperneq 138
Qupperneq 139
Qupperneq 140

x

Gerðir kirkjuþings

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.