Gerðir kirkjuþings - 01.01.2012, Síða 85
85
Jafnréttisnefnd þjóðkirkjunnar
Skýrsla til kirkjuþings
Í jafnréttisnefnd íslensku þjóðkirkjunnar eru aðalmenn þessir: Sr. Solveig Lára Guð munds-
dóttir vígslubiskup, formaður, sr. Sigurður Ægisson, ritari, og sr. Arna Ýrr Sigurðardóttir,
Ólafur Ólafsson héraðsdómari og sr. Sunna Dóra Möller. Og varamenn eru í stafrófsröð
þessir: Agnar Gunnarson, sr. Guðmundur Guðmundsson, Pétur Björgvin Þorsteinsson,
Seselía María Gunnarsdóttir og Sólrún Dögg Árnadóttir
Alls hefur nefndin komið fimm sinnum saman, og ávallt í Glerárkirkju á Akureyri.
Fyrsti fundur nefndarinnar var haldinn 7. desember 2011, sá næsti 9. janúar 2012, sá þriðji
20. mars 2012, sá fjórði 18. september 2012 og sá fimmti 6. nóvember 2012.
Á fyrsta fundi nefndarinnar var einkum rætt um Jafnréttisstefnuna og framkvæmdaáætlun
hennar og hvaða verkefni væru brýnust í ljósi þess að starf nefndarinnar hafði þá legið
niðri í heilt ár vegna veikinda fyrrverandi formanns. Lagt var til að nefndin minnti
Skálholtsútgáfuna og fræðslusvið Biskupsstofu á að fylgja Jafnréttisstefnunni og gefa
út 2-4 samverur fyrir barna- og æskulýðsstarf um kynjasamþættingu. Og auk þess að
athuga hvort fræðslusviðið gæti útbúið námskeið um kynjasamþættingu fyrir sóknir sem
aðgengilegt væri á Netinu.
Var nefndarfólk sammála því, að brýnustu verkefnin væru þau að safna upplýsingum
um laun starfsfólks kirkjunnar, annars vegar á prófastsdæmisvísu hvað varðar starfsfólk
safnaða og hins vegar á landsvísu hvað varðar presta og starfsfólk Biskupsstofu og stofnana
kirkjunnar, sbr. kafla 3 í framkvæmdaáætlun. Einnig að brýnt væri að taka saman tölulegar
upplýsingar um starfsfólk kirkjunnar, greina þær út frá kyni og gera skýrslu um stöðuna,
sem og að taka saman upplýsingar um kynjahlutföll í nefndum, ráðum og stjórnum á
vegum kirkjunnar. Varðandi þetta var lagt til að fá fulltrúa frá Jafnréttisstofu til fundar
við nefndina á næsta fundi, í janúarbyrjun 2012, til ráðgjafar um framkvæmdina, og
mætti Tryggvi Hallgrímsson, sérfræðingur til þess fundar. Kvaðst hann þá vera búinn að
skoða jafnréttisstefnu kirkjunnar, sagði hana lofa góðu og í raun væri það plagg með því
betra sem hann hefði séð af því taginu. Fannst honum ekkert því til fyrirstöðu að ráðast
í verkefnið. Var því næst skipulega flett í gegnum jafnréttisstefnuna og rætt nánar um
einstaka liði hennar og möguleika á útfærslum.
Sr. Arna Ýrr Sigurðardóttir lagði þarna fram áhugaverða samantekt um kynjaskiptingu
ákveðins hluta starfsfólks þjóðkirkjunnar í Hóla- og Skálholtsstifti (biskupa, prófasta,
sóknarpresta, presta, djákna, formanna sóknarnefnda, héraðsnefnda, kirkjuþings og
kirkjuráðs). Var í kjölfarið ákveðið að taka næsta skref og afla frekari gagna. Var ritara
falið að gera uppkast að bréfi sem sent yrði til prófasta, þar sem þess yrði farið á leit að þeir
kölluðu eftir upplýsingum frá sóknarnefndum um launuð og ólaunuð störf í söfnuðunum,
starfslýsingum og kynjaskiptingu. Sunna Dóra bauðst til að athuga hvernig þessu væri
háttað hjá æskulýðsfulltrúum kirkjunnar.