Gerðir kirkjuþings - 01.01.2012, Page 13
13
Setningarræða forseta kirkjuþings Margrétar Björnsdóttur
Samkvæmt heimild í 1. gr. starfsreglna um þingsköp kirkjuþings nr. 949/2009 lýsi ég því
yfir að aukakirkjuþing 2012, 48. kirkjuþing, er sett.
Ágætu kirkjuþingsfulltrúar. Verið öll velkomin til kirkjuþings í dag.
Ég vil í upphafi orða óska biskupi Íslands, séra Agnesi M. Sigurðardóttur til hamingju með
biskupskjör hennar og bjóða hana velkomna hingað í dag, en hún situr nú kirkjuþing í
fyrsta sinn.
Sömuleiðis vil ég óska nýkjörnum vígslubiskupi í Hólaumdæmi, séra Solveigu Láru
Guðmundsdóttur til hamingu með kjör hennar.
Til aukakirkjuþings er kallað til að ræða ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðslu um tillögur
stjórnlagaráðs að frumvarpi til stjórnarskipunarlaga að því er varðar ákvæði þess um
þjóðkirkjuna og til að skilgreina og setja fram afstöðu þjóðkirkjunnar þar að lútandi.
Á dagskrá þingsins er einnig tillaga til þingsályktunar um leiðréttingu sóknargjalda.
Þá verður nýr forseti kirkjuþings kjörinn, en Pétur Kr. Hafstein, forseti kirkjuþings, lét af
störfum fyrr á þessu ári.
Fyrsta mál þessa aukakirkjuþings er „Tillaga til þingsályktunar um að áfram verði ákvæði
um þjóðkirkjuna í stjórnarskrá lýðveldisins Íslands“.
Kjörseðillinn fyrir ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðslu um tillögur stjórnlagaráðs að
frumvarpi til stjórnarskipunarlaga var birtur á netinu sl. fimmtudag. Atkvæðagreiðsla
utan kjörfundar hefst í dag (laugardag) en sjálf hefst atkvæðagreiðslan þann 20. október.
Á kjörseðlinum eru sex spurningar sem svara skal með já eða nei en kjósandi þarf ekki að
svara þeim öllum. Í þriðju spurningu er spurt „Vilt þú að í nýrri stjórnarskrá verði ákvæði
um þjóðkirkju á Íslandi. Jákvætt svar felur í sér að í nýrri stjórnarskrá skuli vera einhver
hliðstæða núgildandi 62. gr. stjórnarskrárinnar. Neikvætt svar merkir það hins vegar að í
stjórnarskránni skuli a.m.k. ekki gengið lengra en gert er í 19. gr. í frumvarpi Stjórnlagaráðs:
„Í lögum má kveða á um kirkjuskipan ríkisins. Nú samþykkir Alþingi breytingu á
kirkjuskipan ríkisins og skal þá leggja það mál undir atkvæði allra kosningabærra manna
í landinu til samþykktar eða synjunar“.
Sjá má kjörseðilinn á kosning.is.
Á kirkjuþingi árið 2011 var samþykkt ályktun um 1. mál þingsins - skýrslu kirkjuráðs.
Ályktunin hljóðar svo:
Tillögur um nýja stjórnarskrá.
Kirkjuþing 2011 skorar á Alþingi að hafa ákvæði um íslenska þjóðkirkju í því frumvarpi
til nýrrar stjórnarskrár sem þingið afgreiðir með formlegum hætti eða leggur undir
ráðgefandi þjóðaratkvæði.