Gerðir kirkjuþings - 01.01.2012, Blaðsíða 96
96 97
• Mikil fjölgun prófastsdæma, sem gætu þá jafnvel verið jafnmörg og samstarfssvæðin.
• Sameining svæðisins í eitt stórt prófastsdæmi.
• Lítið eða jafnvel óbreytt fyrirkomulag á skipan prófastsdæmanna.
Allar hafa þessar hugmyndir kosti og galla. Kosturinn við fjölgun prófastsdæmanna
virðist fyrst og fremst sá, að allt samstarf innan þeirra verður auðveldara eftir því sem
þau eru minni og líkurnar á virku samstarfi þannig meiri. Helstu gallarnir við fjölgun
prófastsdæmanna eru, að margvíslegt samstarf á svæðinu yrði mun flóknara með fjölda
nefnda og starfsmanna. Héraðssjóðirnir yrðu ekki eins burðugir til að takast á við
stærri verkefni. Þá var á það bent, að með stækkun prestakalla mætti um margt ná fram
hliðstæðum áhrifum og fengjust með fjölgun prófastsdæma.
Sameining svæðisins alls í eitt prófastsdæmi hefði hugsanlega í för með sér ýmiskonar
hagræðingarmöguleika og betri nýtingu starfskrafta. Slíkt prófastsdæmi yrði mjög
fjölmennt með yfir 70% landsmanna og með 53 prestum, miðað við núverandi fjölda, auk
sérþjónustuprestanna. Það er því ljóst að slíkt prófastsdæmi kallaði á prófast í fullu starfi,
og dygði varla til. Bent var á að slíkt starf væri varla í samræmi við íslenska kirkjuskipan,
enda yrði slíkt prófastsdæmi í mörgu líkara sjálfstæðu biskupsdæmi. Þá var einnig á það
bent, að sameining prófastsdæma á landsbyggðinni hefði ekki gefist nægilega vel og hvorki
skilað þeirri hagræðingu sem að var stefnt né því aukna samstarfi sem margir vonuðust
eftir. Því væri skynsamlegt að staldra við og skoða málin betur áður en hreyft væri við
prófastsdæmunum á svæðinu. Aukinni hagræðingu og betri nýtingu starfskrafta mætti
hugsanlega ná með auknu samstarfi núverandi prófastsdæma. Var í því sambandi vísað
til þess, að góð reynsla er af ýmsum samstarfsverkefnum Reykjavíkurprófastsdæmanna.
Það er því niðurstaða nefndarinnar, að leggja ekki til breytingar á skipan prófastsdæma á
svæðinu, að svo komnu máli. Nefndin telur þó að í framtíðinni hljóti núverandi skipan að
verða endurskoðuð í ljósi reynslunnar af þeirri skipan prestakalla sem nefndin leggur til.
Lokaorð
Tillögur nefndarinnar um breytta skipan prestakalla kallar á róttæka endurskoðun á
starfsreglum og starfsháttum kirkjunnar. Telur nefndin að ekki verði undan því vikist
í ljósi breyttrar stöðu kirkjunnar í samfélaginu. Þannig verði vörn snúið í sókn. Enda
þótt nefndinni hafi aðeins verið fengið það verkefni að gera tillögur að framtíðarskipan
þjónustunnar á suðvesturhorninu lítur hún svo á að tillögur hennar gætu gagnast landinu
öllu.