Morgunblaðið - 23.01.2016, Síða 22
22 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. JANÚAR 2016
Heyrðu umskiptin
Fáðu heyrnartæki til reynslu
Það er næstum því sama hvernig heyrnarskerðingu þú ert með
og hvernig lifi þú lifir, því ReSound heyrnartækin eru vel til þess
fallin að hjálpa þér við að skilja talmál, hafa framúrskarandi
hljómgæði og snjalla þráðlausa tengingu.
Apple, Apple merkið, iPhone, iPad og iPod touch eru
vörumerki Apple Inc, skráð í BNA og öðrum löndum.
App Store er þjónustumerki Apple Inc. Hlíðasmára 11 · 201 Kópavogur · Sími 534 9600 · heyrn.is
Heyrnartæki eruniðurgreidd afSjúkratryggingum
Íslands
VIÐTAL
Guðrún Vala Elísdóttir
Akranesi
Áður en Jenna Gottlieb kom í fyrsta
sinn til Íslands vissi hún fátt annað
um landið en að Björk og Sigurrós
væru héðan. Enginn sem hún þekkti
hafði komið hingað en hún hafði á til-
finningunni að Ísland væri rólegt og
kyrrlátt land. Jenna bjó þá í New
York-borg, vann sem blaðamaður og
skrifaði greinar um viðskipti; fjármál
og fjárfestingar. Fyrsta heimsóknin
til Íslands var í maí 2006 og varði í
fimm daga.
,,Ég var hefðbundinn ferðamaður,
fór gullna hringinn, í Bláa lónið og í
stutta ferð um Suðurlandið. Ég þráði
kyrrð og ró eftir allt atið á Wall
Street og ég viðurkenni að ég varð
fyrir miklum áhrifum af Íslandi, svo
miklum að ég kom aftur fjórum mán-
uðum síðar.“
,,Ísland talaði til mín“
Jenna, sem alin er upp í Queens í
New York, hafði kynnst tilvonandi
eiginmanni sínum, Birni Lúðvíks-
syni, í fyrstu ferðinni í gegnum
sameiginlegan vin. Þau kynni höfðu
þó ekki beinlínis áhrif á að hún kom
aftur. ,,Nei, við vorum bara vinir þá,
en eins og ég sagði hafði ég orðið fyr-
ir upplifun. Ég veit að það hljómar
eins og klisja þegar ég segi að Ísland
hafi talað til mín á einhvern hátt sem
enginn annar staður hafði áður gert.
Ég fann fyrir sköpunarkrafti, mig
langaði til að skrifa og Ísland vakti
eitthvað í mér sem ég get ekki út-
skýrt almennilega.“
Þegar Jenna kom í annað sinn til
Íslands var hún í 10 daga og skoðaði
meira af landinu, m.a. fór hún í hvala-
skoðun og segir að sér hafi aldrei
orðið eins kalt á ævinni. Það kom þó
ekki í veg fyrir að hún kom næst í
febrúar 2007. ,,Þá hélt fjölskylda mín
að ég væri endanlega gengin af göfl-
unum, en það var bara einhver orka
sem dró mig hingað. Í þeirri ferð
upplifði ég vetrarveður, kulda, myrk-
ur, illviðri og norðurljósin en ég fann
að ég gat alveg elskað Ísland að vetr-
arlagi.“ Jenna segist reyndar ekki
vera mikið fyrir sól hvort eð er, og
myrkið geti verið ansi notalegt.
Strembið að læra íslensku
Eftir að hafa farið aftur heim til
New York tók hún í framhaldinu þá
ákvörðun að flytja til Íslands og læra
íslensku í Háskólanum. Hún vann
sem lausapenni í blaðamennsku
ásamt því að stunda námið, sem hún
segir að hafi verið ansi strembið.
„Þarna var ég, kona á fertugsaldri,
með skólasystkinum um tvítugt sem
áttu auðvelt með að læra málið og
mér leið eins og ég væri algjör auli.
Það varð úr að ég hætti um áramót
og fór aftur heim til New York, að-
allega þó vegna breyttra fjölskyldu-
aðstæðna þar ytra.“
Jenna hélt áfram í blaðamennsk-
unni en saknaði Íslands. „Allan
þennan tíma vorum við Björn vinir
og sú vinátta var mér mikilvæg. Við
héldum sambandi og þar kom að vin-
áttan þróaðist í ást, nokkuð sem við
höfðum ekki gert ráð fyrir, og enn
einu sinni var ég á leiðinni til Íslands,
nú árið 2012.“ Þau ákváðu að láta
reyna á sambandið og aftur fór
Jenna í Háskólann og nú í fram-
haldsnám í stjórnmálafræðum, en
hún er með BA-gráðu í þeim fræðum
frá University of Connecticut.
Mjög hamingjusöm á Íslandi
„Við Björn erum bæði mjög hag-
sýn og þegar árið var að líða undir
lok ræddum við hvert samband okk-
ar stefndi. Við ákváðum að gifta okk-
ur og ég vann áfram við skrif fyrir
t.d. Associated Press, The Independ-
ent og Quartz í Bandaríkjunum og
hérlendis fyrir Iceland Review, Ice-
landic Times og Icelandair Magaz-
ine. Íslendingar hafa tekið mér opn-
um örmum. Það var ekki í mínum
plönum að eiga heima á Íslandi en nú
hefur það gerst og ég er mjög
hamingjusöm með það,“ segir Jenna,
en þau Björn búa á Akranesi. Hún
segir markmiðið vera að læra ís-
lenskuna vel, enda skilji hún flestallt
en sé feimin við að tala.
Frá Wall Street til Akraness
„Ísland vakti eitthvað í mér sem ég get ekki útskýrt almennilega“ Fann eiginmanninn á Íslandi
Vann sem blaðaðmaður og hefur skrifaði ferðabók um Ísland sem kemur út í Bandaríkjunum
Morgunblaðið/Guðrún Vala Elísdóttir
Góðar móttökur Íslendingar hafa tekið mér opnum örmum, segir Jenna Gottlieb blaðamaður og rithöfundur.
Jenna heldur úti vefsíðunni
www.jennagottlieb.com og hefur
fengið verkefni í gegnum hana. „Og
það var einmitt þannig sem ég fékk
tilboð frá Avalon, sem er útgáfufyr-
irtæki í Kaliforníu sem gefur út
ferðabækur. Það hefur m.a. gefið
út bækur um ríki Bandaríkjanna,
Suður-Ameríku en fáar um Evr-
ópulönd.“
Hún segir flestar ferðabækur skrifaðar af ferðafólki
en ekki þeim sem eiga heima í viðkomandi landi. Avalon
vildi fá sjónarhorn einhvers sem ætti heima hér og gæti
sagt frá lífinu á Íslandi eins og það er. „Mér fannst
þetta góð hugmynd og hafði líka ákveðin atriði í huga
sem ég vildi koma áleiðis. T.d. akstur á íslenskum veg-
um að vetrarlagi, sem er stórhættulegur fyrir fólk sem
er óvant snjó, að aka ekki utan vega, um að tjalda ekki
hvar sem er, að gæta öryggis á ferðalögum og láta vita
um ferðir sínar. Ég vildi upplýsa ferðamenn um hlutverk
björgunarsveita og hvetja fólk að sýna ábyrgð og góða
umgengni.“
Jenna fór um allt landið í efnisöflun og segist hafa
komið á marga staði sem hún hafði ekki komið til áður.
„Það var allt svo fallegt og stórkostlegt en ef ég ætti að
nefna einhvern stað sem mér finnst flottastur verð ég
að segja Snæfellsnesið. Þar eru gríðarlegar andstæður
í landslagi, ólík birta og stórbrotin náttúra.“ Bókin
skartar mörgum myndum og flestar tók maðurinn
hennar, en aðrar eru frá vinum og einhverjar tók hún
sjálf.
Bókin, sem heitir Moon Iceland, kemur út í apríl en
hægt er að panta hana fyrirfram á Amazon. Aðspurð
segist hún ekki vita hvort bókin verði fáanleg á Íslandi
en dettur einna helst Eymundsson í hug. Nú þegar
þetta verkefni er á enda situr Jenna ekki auðum hönd-
um heldur tekst á við skrif fyrir Iceland Review og fleiri
tímarit.
Vildu fá sjónarhorn einhvers sem byggi hér
FÉKK TILBOÐ FRÁ ÚTGÁFUFYRIRTÆKI SEM GEFUR ÚT FERÐABÆKUR
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir
segir svínaflensuna vera orðna fastan
lið á flensudagatalinu. Frá því hún
kom upp árið 2009
hafi hún komið
upp árlega og svo
verði einnig í ár.
Fyrr í vikunni
var staðfest að
fjórir hefðu veikst
af svínaflensu í
Álasundi í Noregi
og liggja þeir nú í
einangrun á
sjúkrahúsinu í
bænum. Í frétt
norska ríkissjónvarpsins, NRK, kom
fram að grunur léki á að tveir hefðu
veikst til viðbótar.
Svínaflensan, A(H1N1), skaut upp
kollinum fyrri hluta ársins 2009. Hún
breiddist hratt út meðal fólks, um
fjórum sinnum hraðar en aðrar veiru-
sýkingar, og var henni m.a. líkt við
spænsku veikina. Alþjóðaheilbrigðis-
stofnunin WHO óttaðist að hún yrði
að heimsfaraldri og á annað hundrað
þúsund Íslendingar létu bólusetja sig
gegn flensunni. Sumarið 2009 var
hún komin á það stig að kallast far-
aldur, að sögn Haraldar Briem, þá-
verandi sóttvarnalæknis.
„Þessi tegund inflúensu fékk nafn-
ið svínaflensa árið 2009, þegar hún
var nýr stofn af inflúensuveirunni.
Þegar nýr heimsfaraldur af inflú-
ensu kemur upp heldur sá stofn
áfram sem árleg inflúensa, með ör-
litlum breytingum í hvert skipti,“
segir Þórólfur. Hann segir rangnefni
að tala sérstaklega um svínainflú-
ensu, sú skilgreining sé nú lítið notuð
í heilbrigðiskerfinu. Nær væri að tala
einfaldlega um inflúensu, því svína-
flensan sé núna hin árlega inflúensa.
Inflúensan fer hægt af stað
Inflúensan fer hægt af stað í ár og
það sem af er ári hefur verið lítið um
klínískar inflúensugreiningar.
Það sem af er ári hefur einn verið
lagður inn á Landspítalann vegna
inflúensu og átta einstaklingar hafa
greinst með inflúensu, þar af sjö með
A(H1N1) og einn með inflúensu af B-
stofni.
Þá hafa níu greinst með RSV-vír-
usinn og fjórir með hMPV sem er
skammstöfun fyrir Human metap-
neumoveiru. Bæði RSV og hMPV
geta valdið alvarlegum öndunar-
færaeinkennum samkvæmt upplýs-
ingum á vefsíðu Embættis landlækn-
is.
Svínaflensan
kemur árlega
Tekur smábreytingum í hvert skipti
Þórólfur
Guðnason