Morgunblaðið - 23.01.2016, Side 35

Morgunblaðið - 23.01.2016, Side 35
MINNINGAR 35Messur á morgun MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. JANÚAR 2016 AÐVENTKIRKJAN í Reykjavík | Biblíufræðsla í dag, laugardag kl. 11. Guðsþjónusta kl. 12. Ræðumaður: Einar V. Arason. Barna- og unglinga- starf. AÐVENTKIRKJAN í Vest- mannaeyjum | Guðsþjónusta Breka- stíg 17, Vestmannaeyjum í dag, laug- ardag, kl. 12. AÐVENTSÖFNUÐURINN á Ak- ureyri | Biblíurannsókn Eiðsvallagötu 14, Gamla Lundi, í dag, laugardag, kl. 11. Guðsþjónusta kl. 12. Barnastarf AÐVENTSÖFNUÐURINN á Suð- urnesjum | Biblíufræðsla Blikabraut 2, Keflavík í dag, laugardag, kl. 11. Guðsþjónusta kl. 12. Ræðumaður Er- ling B. Snorrason. AÐVENTSÖFNUÐURINN í Árnesi | Biblíufræðsla Eyravegi 67, Selfossi í dag, laugardag, kl. 10. Guðsþjónusta kl. 11. Ræðumaður Björgvin M. Snorrason. Barna- og unglingastarf. AÐVENTSÖFNUÐURINN í Hafn- arfirði | Guðsþjónusta Hólshrauni 3 í dag, laugardag, kl. 11. Ræðumaður Eric Guðmundsson. Bibl- íufræðsla kl. 11.50. Barna- og ung- lingastarf. Umræðuhópur á ensku. Súpa og brauð eftir samkomu. AKUREYRARKIRKJA | Guðsþjón- usta kl. 11. Prestur er Hildur Eir Bolla- dóttir. Félagar úr Kór Akureyrarkirkju syngja. Organisti er Sigrún Magna Þór- steinsdóttir. Sunnudagaskóli í Safn- aðarheimilinu kl. 11. Umsjón sr. Sunna Dóra Möller. Æðruleysismessa kl. 20.00. Umsjón sr. Sunna Dóra Möller og sr. Oddur Bjarni Þorkelsson. Krossbandið sér um tónlistina. Mola- sopi í Safnaðarheimilinu að messu lokinni. ÁRBÆJARKIRKJA | Messa kl. 11. Sr. Petrína Mjöll Jóhannesdóttir pré- dikar og þjónar fyrir altari. Kór Árbæj- arkirkju syngur undir stjórn Krisztinu Kalló Szklenár. Sunnudagaskólinn er á sama tíma í safnaðarheimilinu í umsjá Bryndísar og Kjartans. ÁSKIRKJA | Messa og barnastarf kl. 11. María Ágústsdóttir héraðsprestur prédikar og þjónar fyrir altari. Jar- þrúður Árnadóttir og Sigfús Jónasson annast samverustund sunnudaga- skólans. Kammerkór Áskirkju syngur, organisti Magnús Ragnarsson. Kaffi- sopi eftir messu. ÁSTJARNARKIRKJA | Guðsþjón- usta og sunnudagaskóli kl. 11. Kór Ástjarnarkirkju syngur undir stjórn Matthíasar V. Baldurssonar. Með- hjálpari er Sigurður Þórisson og prest- ur sr. Kjartan Jónsson. Sunnudaga- skóli á sama tíma í umsjá Hólmfríðar S. Jónsdóttur og Áslaugar Helgu Hálf- dánardóttur. BESSASTAÐAKIRKJA | Síðdeg- ismessa með léttu ívafi í Bessastaða- kirkju kl 17.00. Karen Ösp Friðriks- dóttir flytur hugleiðingu. Lærisveinar HANS spila undir sönginn. Að stund- inni þjóna Bjartur Logi, Margrét og sr. Hans Guðberg. BESSASTAÐASÓKN | Sunnudaga- skóli í Brekkuskógum 1 kl 11. Umsjón hafa Fjóla og sr. Hans Guðberg. BORGARNESKIRKJA | Messa kl. 11. Guðsþjónusta í Brákarhlíð kl. 13.45. Organisti Steinunn Árnadóttir. Prestur Þorbjörn Hlynur Árnason. BRAUTARHOLTSKIRKJA Kjal- arnesi | Guðsþjónusta kl. 11. Gunnar Kristjánsson, settur sóknarprestur, prédikar og þjónar fyrir altari, org- anisti: Páll Helgason, félagar úr Karla- kór Kjalnesinga leiða söng. Stuttur fundur með fermingarbörnum og for- eldrum þeirra eftir messuna. BREIÐHOLTSKIRKJA | Messa kl. 11. Prestur Þórhallur Heimisson. Ræðuefni Þarf aðgöngumiða að himnaríki? Kór Breiðholtskirkju syng- ur, organisti er Örn Magnússon. Sunnudagaskóli á sama tíma í umsjá Steinunnar Leifsdóttur og Steinunnar Þorbergsdóttur. Kirkjukaffi á eftir. BÚSTAÐAKIRKJA | Barnamessa sunnudag kl. 11. Fjölbreytt tónlist og fræðandi starf fyrir börnin. Jónas Þórir við hljóðfærið. Petra Eiríksdóttir og Daníel Ágúst Gautason leiða sam- veruna ásamt sóknarpresti. Guðs- þjónusta kl. 14. Félagar úr Kór Bú- staðakirkju leiða sönginn. Organisti Jónas Þórir. Messuþjónar aðstoða. Heitt á könnunni eftir messu. Prestur sr. Pálmi Matthíasson. DIGRANESKIRKJA | Messa og sunnudagaskóli kl. 11. Prestur Gunn- ar Sigurjónsson. Organisti Sólveig Sig- ríður Einarsdóttir. Kammerkór Digra- neskirkju sér um söng. Súpa í safnaðarheimili að messu lokinni. Fermingarfræðsla kl. 13. Dómkirkja Krists konungs, Landakoti | Messa virka daga kl. 18, einnig kl. 8 á mánudögum, mið- vikudögum og föstudögum. Á laug- ardögum kl. 16 á spænsku og kl. 18. Á sunnudögum kl. 8.30 á pólsku, kl. 10:30, kl. 13 á pólsku, kl. 15 á lithá- ísku og kl. 18 á ensku. DÓMKIRKJAN | Messa kl. 11 þar sem Karl Sigurbjörnsson, biskup pré- dikar og þjónar fyrir altari. Barnastarf á kirkjuloftinu á sama tíma. Dómkór- inn og organisti er Kári Þormar. Æðru- leysismessa er kl. 20. Ástvaldur Traustason leikur á flygilinn. EYRARBAKKAKIRKJA | Messa kl. 11. Kór kirkjunnar syngur. Organisti er Haukur Arnarr Gíslason. FELLA- og Hólakirkja | Messa kl. 11. Prestur er Guðmundur Karl Ágústsson. Organisti er Arnhildur Val- garðsdóttir. Reynir Þormar leikur á saxófón. Kór kirkjunnar leiðir safn- aðarsöng. Sunnudagaskólinn á sama tíma í umsjá Péturs og félaga. FRÍKIRKJAN Kefas | Sunnudaga- skóli kl. 11 með fræðslu, söngvum og brúðuleikhúsi. Hressing að lokum. Al- menn samkoma kl. 13 þar sem Pétur Erlendsson prédikar og tónlistarhópur kirkjunnar leiðir lofgjörð. Gæsla fyrir börn og kaffi og samvera í lokin. FRÍKIRKJAN Reykjavík | Guðsþjón- usta kl. 14. Sigríður Kristín Helgadótt- ir, prestur Fríkirkjunnar í Hafnarfirði, predikar. Sönghópurinn við Tjörnina leiðir sönginn ásamt Gunnari Gunn- arssyni organista. GAULVERJABÆJARKIRKJA | Messa kl. 14. Kór kirkjunnar syngur. Organisti er Haukur Arnarr Gíslason. GLERÁRKIRKJA | Messa kl. 11. Sr. Gunnlaugur Garðarson þjónar. Kór Glerárkirkju leiðir söng undir stjórn Val- mar Väljaots. Allir velkomnir. GRAFARVOGSKIRKJA | Guðsþjón- usta kl. 11, fundur verður að lokinni messu með fermingarbörnum úr Rimaskóla ásamt foreldrum þeirra. Séra Guðrún Karls Helgudóttir prédik- ar og þjónar fyrir altari ásamt séra Vig- fúsi Þór Árnasyni. Kór kirkjunnar syng- ur. Organisti Hákon Leifsson. Sunnudagaskóli kl. 11. Umsjón hafa séra Arna Ýrr Sigurðardóttir og Þóra Björg Sigurðardóttir. Undirleikari er Stefán Birkisson. GRAFARVOGUR - KIRKJUSELIÐ Í SPÖNG | Selmessa kl. 13. Séra Arna Ýrr Sigurðardóttir prédikar og þjónar fyrir altari. Vox Populi syngur. Org- anisti: Hilmar Örn Agnarsson. Sunnu- dagaskóli á sama tíma. Umsjón hefur Rósa Ingibjörg Tómasdóttir. Undirleik- ari er Stefán Birkisson. GRENSÁSKIRKJA | Morgunverður kl. 10, bænastund kl. 10:15. Barna- starf kl. 11 í umsjá Silvíu, Ástu Lóu ofl. Messa kl. 11. Altarisganga. Sam- skot til í Kristniboðssambandsins. Messuhópur þjónar. Félagar úr kirkju- kór Grensáskirkju leiða söng. Org- anisti Ásta Haraldsdóttir. Prestur sr. Ólafur Jóhannsson. Molasopi eftir messu. Hversdagsmessa með léttu sniði á fimmtudag kl. 18.10. Þorvaldur Hall- dórsson sér um tónlist. GRUND dvalar- og hjúkrunarheim- ili | Guðsþjónusta í umsjón Félags fyrr- um þjónandi presta kl. 14 Í hátíðasal Grundar. Séra Gunnar Björnsson þjón- ar. Grundarkórinn leiðir söng undir stjórn Kristínar Waage organista. GUÐRÍÐARKIRKJA í Grafarholti | Útvarpsguðsþjónusta og barnastarf kl. 11. Prestar Karl V. Matthíason og Skírnir Garðarsson, organisti Hrönn Helgadóttir, Kristjana Helgadóttir spil- ar á þverflautu og kór Guðríðarkirkju syngur. Barnastarf í umsjá Aldísar R. Gísladóttur og Valbjörns S. Lilliendahl. Kirkjuvörður Lovísa Guðmundsdóttir. Kaffisopi eftir messu. HAFNARFJARÐARKIRKJA | Messa og sunnudagskóli kl. 11. Prestur Jón Helgi Þórarinsson. Organisti Douglas A. Brotchie. Félagar úr Barbörukórnum syngja. Sunnudagskólinn hefst í kirkj- unni en síðan fara börnin með Mar- grétu Hebu og öðrum leiðtogum inn í safnaðarheimilið. Hressing eftir stundirnar. Morgunmessa miðvikudaga kl. 8.15 - 8.45. Morgunverður á eftir. HALLGRÍMSKIRKJA | Messa og barnastarf kl. 11. Dr. Sigurður Árni Þórðarson prédikar og þjónar fyrir alt- ari ásamt sr. Jóni Dalbú Hróbjartssyni og hópi messuþjóna. Félagar úr Mót- ettukór Hallgrímskirkju syngja. Org- anisti er Björn Steinar Sólbergsson. Umsjón barnastarfs Inga Harðardóttir. Tónleikar laugardag kl. 14 á vegum Listvinafélags Hallgrímskirkju og Listaháskóla Íslands. Bænastund mánud. kl. 12.15. Fyrir- bænaguðsþjónusta þriðjud. kl. 10.30. Árdegismessa miðvikud. kl. 8. Kyrrð- arstund fimmtud. kl. 12. HÁTEIGSKIRKJA | Fjölskylduguðs- þjónusta kl. 11. Organisti Kári All- ansson. Prestur sr. Helga Soffía Kon- ráðsdóttir. HJALLAKIRKJA Kópavogi | Guðs- þjónusta kl. 11. Umfjöllunarefni: Verkamenn í víngarði – réttlæti og mis- kunnsemi. Eiga allir jafnan rétt? Fé- lagar úr kór Hjallakirkju syngja, org- anisti Guðný Einarsdóttir, prestur Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir. Kaffi- sopi eftir guðsþjónustu. Sunnudagaskóli kl. 11. Umsjón Krist- ín Rut Ragnarsdóttir og Hilmar Ein- arsson. Brúðuleikhús, söngur og gleði. Hressing eftir stundina. HVÍTASUNNUKIRKJAN Fíladelfía | Samkoma Kl. 11. Kennsluröð jan- úarmánaðar ber yfirskriftina Hrein- gerningin. Kl. 14.00 Samkoma á ensku hjá Alþjóðakirkjunni. English speaking service. ÍSLENSKA KIRKJAN í Svíþjóð | Gautaborg. Guðsþjónusta kl. 14. í V- Frölundakirkju. Íslenski kórinn í Gauta- borg syngur. Orgelleik og kórstjórn annast Lisa Fröberg. Barnastund, smábarnahorn. Kirkjukaffi. Aðalsafn- aðarfundur. Prestur sr. Ágúst Ein- arsson. Fermingarfræðsla frá 11.30. ÍSLENSKA Kristskirkjan | Sam- koma kl. 13. Ólafur H. Knútsson pre- dikar. Barnastarf á sama tíma. Heilög kvöldmáltíð. Kaffi og samfélag eftir stundina. KEFLAVÍKURKIRKJA | Sunnudaga- skóli og messa kl. 11. Söngurhópurin Vox Felix syngur. Súpa og brauð í boði. Prestur er Erla Guðmundsdóttir. Þriðjudagur 26. janúar kl. 20. Vilborg Davíðsdóttir rithöfundur verður með erindi um sorg og sorgarvinnu. Miðvikudagur 27. janúar kl. 12. Kyrrð- arstund í Kapellu vonarinnar. Súpa og bauð á 500 kr. Fimmtudagur 28. janúar kl. 20. Sorg- arhópur í umsjón sr. Evu Bjarkar Valdi- marsdóttur. KÓPAVOGSKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Dr Sigurjón Árni Eyjólfsson, hér- aðsprestur prédikar og þjónar fyrir alt- ari. Kór Kópavogskirkju syngur undir stjórn Lenku Mátéová. Sunnudaga- skólinn hefst í kirkjunni en eftir upphaf guðsþjónustunnar heldur hann í safn- aðarheimilið Borgir. Umsjón með sunnudagaskólanum hafa þau Bjarmi Hreinsson, Oddur Örn Ólafsson og Þóra Marteinsdóttir. Mál dagsins er alla þriðjudaga kl 14.30 í safn- aðarheimilinu Borgum. LANGHOLTSKIRKJA | Messa og sunnudagaskóli kl. 11. Guðbjörg Jó- hannesdóttir sóknarprestur þjónar fyr- ir altari og predikar. Birna Kristín Ás- björnsdóttir spilar undir. Gradualekór Langholtskirkju leiðir safnaðarsöng og tekur lagið fyrir kirkjugesti. Messu- þjónar og kirkjuvörður aðstoða við helgihaldið. Sunnudagaskólinn fer fram á sama tíma eftir sameiginlegt upphaf í kirkj- unni. Snævar og Jóhanna taka á móti börnum. Kaffi, djús, kex og föndur eft- ir stundina. LAUGARNESKIRKJA | Messa og sunnudagaskóli kl. 11. Sr. Kristín Þór- unn Tómasdóttir prédikar og þjónar ásamt messuþjónum. Flugfreyjukór- inn syngur og leiðir safnaðarsöng und- ir stjórn Arngerðar Maríu og Magnúsar Kjartanssonar. Öflugt barnastarf í safnaðarheimilinu í umsjón Hjalta Jóns Sverrissonar. Kaffi og djús eftir samveru. LÁGAFELLSKIRKJA | Guðsþjónusta í Lágafellskirkju kl. 11. Kirkjukórinn syngur undir stjórn Keith Reed, org- anista. Sr. Birgir Ásgeirsson. Sunnu- dagaskólinn kl. 13. LINDAKIRKJA í Kópavogi | Sunnu- dagaskóli kl. 11. Dibbabú fyrir 6 ára og eldri. Guðsþjónusta kl. 20. Kór Lindakirkju syngur undir stjórn Óskars Einarssonar og við undirleik hljóm- sveitar. Tónlistarmaðurinn Pétur Ben flytur einnig tvö lög. Sr. Guðmundur Karl Brynjarsson þjón- ar. NESKIRKJA | Messa og barnastarf kl. 11. Sameiginlegt upphaf. Sigurvin L. Jónsson æskulýðsprestur kveður söfnuðinn. Kór Neskirkju og Stúlkna- kór kirkjunnar syngja. Organisti Stein- grímur Þórhallsson. Sr. Sigurvin pré- dikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Skúla S. Ólafssyni. Umsjón með barnastarfinu hafa Andrea, Katrín, Oddur og Ari. Veitingar á Torginu í boði sóknarnefndar. NJARÐVÍKURKIRKJA Innri- Njarðvík | Guðsþjónusta og sunnu- dagaskóli 24. janúar kl. 11. ÓHÁÐI SÖFNUÐURINN | Blús- messa kl. 14. Blússveit Þollýjar sér um tónlistina. Sr. Pétur Þorsteinsson predikar og þjónar fyrir altari. Messu- gutti er Petra Jónsdóttir. Barnastarfið verður á sínum stað. Kaffi og samvera eftir messu. SALT kristið samfélag | Samkoma kl. 14 í Kristniboðssalnum Háaleit- isbraut 58-60. 3.hæð. Átakið 40 dag- ar í orðinu. Túlkað á ensku. Barna- starf. SELFOSSKIRKJA | Messa kl. 11. Prestur Guðbjörg Arnardóttir. Organisti Edit Molnár, Kirkjukórinn syngur. Súpa og brauð gegn vægu gjaldi að athöfn lokinni. Sunnudagaskóli á sama tíma. Umsjónarmaður Jóhanna Ýr Jóhanns- dóttir. SELJAKIRKJA | Barnaguðsþjónusta kl. 11, Biblíusaga, söngur og gleði, nýr límmiði og hressing í lokin. Guðsþjón- usta kl. 14, sr. Bryndís Malla Elídóttir þjónar, Tómas Guðni Eggertsson leik- ur á orgel og Kór Seljakirkju syngur. Kaffisopi að messu lokinni. SELTJARNARNESKIRKJA | Guðs- þjónusta og sunnudagaskóli kl. 11. Bjarni Þór Bjarnason, sóknarprestur, þjónar. Friðrik Vignir Stefánsson er organisti. Pálína Magnúsdóttir, æsku- ýðsfulltrúi sér um sunnudagaskólann ásamt leiðtogum. Kammerkór Sel- tjarnarneskirkju leiðir almennan safn- aðarsöng. Kaffiveitingar og samfélag eftir athöfn. SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA | Messa kl. 11. Sr. Egill Hallgrímsson, sókn- arprestur, annast prestsþjónustuna. Organisti er Jón Bjarnason. SÓLHEIMAKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 14. Sr. Jóhanna Magnúsdóttir pré- dikar og þjónar fyrir altari. Ester Ólafs- dóttir, organisti leiðir almennan safn- aðarsöng. VILLINGAHOLTSKIRKJA í Flóa | Guðsþjónusta kl. 13.30. Prestur Guð- björg Arnardóttir. Organisti Ingi Heið- mar Jónsson. Kirkjukórinn syngur. VÍDALÍNSKIRKJA | Messa kl. 11. Sr. Jóna Hrönn Bolladóttir predikar og þjónar fyrir altari ásamt messuþjón- um. Félagar í kór Vídalinskirkju leiða söng ásamt Jóhanni Baldvinssyni org- anista. Sunnudagaskóli á sama tíma sem Heiðar Örn Kristjánsson, Matt- hildur Bjarnadóttir og Helga Björk Jónsdóttir stjórna. Djús og kaffi á eftir. VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði | Tónlistarguðsþjónusta kl. 11. Karla- kórinn Þrestir syngur undir stjórn Bjarna Jónatanssonar. Prestur Hulda Hrönn Helgadóttir. Sunnudagaskóli kl. 11 í suðursal. YTRI-Njarðvíkurkirkja | Guðsþjón- usta kl. 11. Gideon félagar með vitn- isburð. Kór Njarðvíkurkirkna syngur undir stjórn Stefáns Helga Krist- inssonar organista. Sunnudagaskóli kl. 11 í umsjá Maríu og Heiðars. Kaffi, djús og kökur að skóla loknum. Orð dagsins: Brúðkaupið í Kana Jóh. 2 Morgunblaðið/Sigurður Ægisson Háteigskirkja ✝ Kristín fæddist5. nóvember 1932 á Oddsparti í Þykkvabæ. Hún lést 1. janúar 2016. Foreldrar hennar voru Guðsteina Sig- urðardóttir frá Innsta-Hólmi, Akraneshreppi, f. 19. ágúst 1906, d. 4. október 1992, og Vigfús Markússon frá Dísukoti, Þykkvabæ, f. 18. október 1903, d. 18. desember 1946. Systkini Kristínar eru Ingimar Þórarinn Vigfússon, f. 13.11. 1927. Steinunn Vigfús- dóttir, f. 16.10. 1940. Sambýlis- maður Kristínar frá 1952 var Lýður Kristinn Jónsson, f. 26.2. 1933, d. 24.4. 1998. Þau eign- uðust einn son, Vigfús, 23. ágúst 1953. Sonur Vig- fúsar er Kristinn Lýður, f. 16.9. 1988. Hann er í sambúð með Aðalheiði Ísold Hoffman. Þau eiga börnin Írenu Laufeyju og Hafþór Loka. Útför Kristínar fór fram 15. janúar 2016. Elsku Kristín mín. Það er svo margt sem mér langar að segja um þig enda varstu einstaklega fögur kona að innan sem utan. Þú sást alltaf það góða í fólki og það bjarta í slæmum aðstæð- um. Það sem er mér sárast er að barnabarnabörnin þín missi af þeirri einlægu ást sem fylgdi þér þó ég viti að þú elskir þau úr fjar- lægð. Það sem ég veit með fullri vissu er að þú varst og munt allt- af vera einstök langamma sem og mamma og amma. Ég mun sjá til þess að börnin okkar Kidda þekki þig og viti hversu fágæt perla langamma þeirra í raun var. Elsku Kristín, hlýja, góða og gef- andi kona við elskum þig enda- laust. Hún var einstök perla. Afar fágæt perla, skreytt fegurstu gimsteinum sem glitraði á og gerðu líf samferðamanna hennar innihaldsríkara og fegurra. Fáar perlur eru svo ríkulega búnar, gæddar svo mörgum af dýrmætustu gjöfum Guðs. Hún hafði ásjónu engils sem frá stafaði ilmur umhyggju og vináttu, ástar og kærleika. Hún var farvegur kærleika Guðs, kærleika sem ekki krafðist endurgjalds. Hún var vitnisburður um bestu gjafir Guðs, trúna, vonina, kærleikann og lífið. Blessuð sé minning einstakrar perlu. (Sigurbjörn Þorkelsson.) Aðalheiður Ísold Hoffmann, Írena Laufey og Hafþór Loki. Minningar eru merkilegt fyr- irbæri. Þær hafa þann eiginleika að láta manni líða vel á erfiðum stundum og endrum og sinnum virka þær eins og tímavél sem skýtur manni beint í gamlar að- stæður. Þegar ég tek þá ákvörðun fara í mína torkennilegu tímavél minningana enda ég oft á stað með manneskju sem kenndi mér ákaflega margt fallegt um lífið er ég var lítill drengur. Hún hreinlega tók mig að sér óumbeðin og setti sig í það hlut- verk að vera amma mín. Þessi einstaka kona hét Kristín Vigfús- dóttir (eða Stína amma eins og hún var títt kölluð). Í þessum minningum mínum erum við iðulega tvö. Við erum tvö á Þingvöllum í sumarbústað sem er við það að detta í sundur, en með ári hverju verður þessi bústaður fallegri og stæðilegri. Þú á fjórum fótum með þína grænu fingur að reyta óvelkominn arfa, ég að vakna við fuglasög og fyrir utan blasir við spegilslétt Þingvallavatn. Seinna um daginn erum við tvö að borða bleikju sem ég veiddi úr Þingvallavatni. Þú hafðir ein- stakt lag á að steikja þessa litlu fiska á eldgamalli og beyglaðri pönnu – allt í bústaðnum virtist eldra en lífið sjálft séð frá bæj- ardyrum lítils drengs. Við borð- uðum fiskinn sem ég veiddi og við töluðum um allt og ekkert – veðr- ið, huldufólk og fólk í nærliggj- andi bústöðum. Ríkisútvarpið fékk auðvitað að hljóma lágt í bakgrunninum og kaffivélin bjó til alls kyns hljóð á meðan við nutum matarins. Tíminn virtist stöðvast í þess- um bústað og það var einmitt það sem gerðist. Mér leið vel á þess- um stað og stundum þegar róð- urinn hjá mér þyngist, eins og gengur og gerist í þessu skrýtna lífi, skelli ég mér örstutt aftur í tímann og hverf til Þingvalla og fæ að vera með þér, Stína mín. Á aðfangadag hitti ég þig í seinasta sinn. Þú horfðir á mig og virtist ekki þekkja mig, en vildir alls ekki sleppa hendinni á mér. Það var eins og þú værir viss um að hér væri kominn einstaklingur sem þú ættir að muna eftir. Þú horfðir út um gluggann einbeitt á svip og varst þögul. Síðan eftir nokkur augnablik þegar ég var orðin viss um að þú værir búin að gleyma mér til frambúðar sagðir þú skyndilega: „Já! Bjössi á mjólkurbílnum.“ Þá vissi ég vel að þú mundir eftir mér þar sem þú sagðir þetta allt- af er ég kom inn um dyrnar. En nú ert komin á annan stað, Stína mín, og ég sit hér og hripa niður þessi orð. Mig langar að hafa þessi loka- orð stutt og með þeim langar mig að þakka þér fyrir allar fallegu stundirnar sem við áttum saman. Svo langar mig líka að þakka þér fyrir alla vanilluhringina sem þú bakaðir, Allar mandarínurnar sem jólasveinninn gaf mér í skó- inn hjá þér, allar stundirnar sem þú huggaðir mig ef eitthvað bját- aði á og ég gæti haldið endalaust áfram. Björn Stefánsson. Á nýársdag, kvaddi ein sú fal- legasta og bjartasta kona sem hægt er að kynnast, hún amma/ mamma Kristín Vigfúsdóttir. Það sem hún hefur gefið mér öll þessi ár er ómetanlegt, svo stórt hjarta á ekki að komast fyrir inni í líkama á neinni manneskju, en þar sem amma var einstök fékk hún að hafa það stærsta. En veik- indi hennar gerðu það að verkum að þetta fallega hjarta sem gaf og gaf af sér ákvað að hætta að slá þann dag. En eins sorglegt og það er, er ég samt ánægður með að hún fór í svefninn langa, þar sem allt er orðið eins og það á að vera og móttökurnar ekki af verri endanum, þar sem afi er búinn að bíða eftir henni í 17 ár og það að þau eru sameinuð á ný gleður mig mjög. Elsku hjartans amma mín, þín verður svo sárt saknað að orð fá því ekki lýst, en góðu minning- arnar lifa áfram og verða aldrei gleymdar. Elsku besta amma mín, góða ferð. Þar sem þú kenndir mér allar bænirnar læt ég mína uppáhalds fylgja. Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sig. Jónsson frá Presthólum) Kristinn Lýður Vigfússon. Kristín Vigfúsdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.