Morgunblaðið - 23.01.2016, Qupperneq 31
UMRÆÐAN 31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. JANÚAR 2016
Óvænt úrslit hafa verið reglafremur en undantekning áSkákþingi Reykjavíkursem stendur yfir þessa
dagana í húsakynnum Taflfélags
Reykjavíkur við Faxafen. Í sjöttu
umferð sem fram fór á miðvikudags-
kvöldið gerði hinn 12 ára gamli
Vignir Vatnar Stefánsson sér lítið
fyrir og vann Íslandsmeistarann frá
2014, Guðmund Kjartansson, á sann-
færandi hátt. Hann hafði áður unnið
Björn Þorfinnsson og reiknast
frammistaða hans nú upp á tæplega
2.400 elo-stig. Jón Viktor Gunn-
arsson er enn í forystu en hefur
fengið félagsskap á toppnum. Efstu
menn:
1.-2. Jón Viktor Gunnarsson og
Stefán Kristjánsson 5½ v. (af 6) 3.-5.
Vignir Vatnar Stefánsson, Dagur
Ragnarsson og Björn Þorfinnsson 5
v. 6.-8 Guðmundur Gíslason, Mikha-
el Jóhann Karlsson og Þorvarður
Ólafsson 4½ v.
Í sjöundu umferð sem, fram fer á
morgun, sunnudag, tefla efstu menn
innbyrðis, Jón Viktor teflir við Stef-
án, Dagur við Vigni Vatnar og Björn
Þorfinnsson mætir Þorvarði Ólafs-
syni. Og þá er komið að einni umtöl-
uðustu skák mótsins:
Skákþing Reykjavíkur 216; 6.
umferð:
Vignir Vatnar Stefánsson – Guð-
mundur Kjartansson
Reti – byrjun
1. Rf3 Rf6 2. g3 c5 3. d3 d5 4.
Rbd2 g6 5. Bg2 Bg7 6. 0-0 0-0 7. e4
Kóngsindverska uppbyggingin
sem Bobby Fischer hafði mikið dá-
læti á kom einnig fyrir í skák Vignis
við Björn Hólm í 5. umferð.
7. … Rc6 8. c3 e5 9. a4 Dc7 10.
exd5 Rxd5 11. He1 Hd8 12. Rc4 Rb6
13. De2 Rxc4!? 14. dxc4 Bf5 15. Rd2
Bd3 17. De3 Ra5?
Gallinn við uppskiptin á c4 liggur í
veikingu á hvítu reitunum. Samt er
þetta fyrsta ónákvæmni svarts,
betra var 17. … Re7 sem hótar
18. … Rf5.
18. Bd5! Bc2 18. Df3 Hd7 19. Ha2
Lævís leikur sem hótar 20. b4.
19. … Bf5 20. Re4 Bxe4 21. Hxe4
Kh8 22. Hh4!
Hefur í hótunum. Nái hvítur að
leika g3-g4 getur reynst erfitt að
verja kóngsstöðuna.
22. … f5 23. g4!
Hótar 24. Hxh7+ Kxh7 25. Dh3+
og mátar.
23. … Hxd5?
Afræður að láta skiptamun af
hendi en betra var 23. … f4 því að
24. Hxh7+ Kxh7 25. Dh3+ Bh6 26.
g5 má svara með 26. … Hxd5!
o.s.frv.
24. cxd5 f4 25. De4 Bf6 26. Hh3
Rb3 27. c4!
Snarplega leikið. Vignir sá að
riddarinn á ekki afturkvæmt frá c1.
27. … Dd7 28. Dxg6!
Alls ekki 28. Hxb3 Dxg4+ og
29. … Dd1+.
28. … Hf8 29. Kf1! Bd8 30. Dh5
Rxc1 31. Ha1
Nú er eftirleikurinn auðveldur.
31. … Dg7 32. Hxc1 Bg5 33. He1
h6 34. Hf3 Hd8 35. h4 Kg8 36. hxg5
hxg5 37. Kg2 b6 38. Hh3 Hf8
– og gafst upp um leið
Afleikur ársins í Wijk aan Zee
Magnús Carlsen tók mikla áhættu
í skák sinni við Hollendinginn Van
Wely í 5. umferð stórmótsins í Wijk
aan Zee sl. fimmtudag. Hann fórnaði
skyndilega manni í jafnri stöðu og á
einum stað gat Van Wely knúið fram
vinning, missti af tækifærinu og tap-
aði í 39.leikjum. Þetta var fyrsta sig-
ur heimsmeistarans en staðan er
þessi:
1.-2. Caruana og Ding 3½ v. 3.-6.
Hou Yifan, Wesley So, Magnús
Carlsen og Eljanov 3 v. 7.-9. Karjak-
in, Wei Yi og Mamedyarov 2½ v. 10.-
12. Giri, Tomashevsky og Navara 2
v. 13. Van Wely 1½ v. 14. Adams 1 v.
Afleikur ársins kom í 3. umferð í
eftirfarandi stöðu:
Mamedyarov – Eljanov
Svartur lék síðast 37. …. Hdc8 og
nú vinnur 38. Hb6 létt. En Aserinn
sem átti nægan tíma uggði ekki að
sér og lék 38. c5?? Eftir 38. … Dxb1
stoppaði hann klukkuna og gafst
upp.
Mikið um óvænt úrslit á Skákþingi Reykjavíkur
Skák
Helgi Ólafsson
helol@simnet.is
Ármúla 26 | 108 Reykjavík | Sími 578 4400 |
Undanfarið hefur
hæstvirtur utanrík-
isráðherra, Gunnar
Bragi, farið mikinn í
fjölmiðlum í tengslum
við innflutningsbann
Rússa á íslenskar
vörur, þar hefur hann
reynt að klæða þátt-
töku Íslands í þessum
refsiaðgerðum í hetju-
legan búning.
Rétt er að taka fram
að ég er hlutdrægur, ég
starfa hjá fyrirtæki í
sjávarútvegi sem hefur
orðið fyrir tapi vegna
þessara aðgerða og sé
fram á að tapa háum
upphæðum til viðbótar
ef ekkert er að gert.
Eðlilega hef ég mínar
efasemdir um þetta
ævintýri ráðherrans,
finnst þetta dýru verði keypt svo ut-
anríkisráðherra geti spilað sig sem
stóran karl úti í heimi.
Ráðherranum hefur verið tíðrætt
um nauðsyn þess að sjávarútvegur-
inn fórni minni hagsmunum fyrir
meiri. Gott og vel, það er ágætis
hugsun, en hverjir eru þessi hags-
munir sem Gunnar Bragi biður okk-
ur um að fórna fyrir? Aldrei hefur
utanríkisráðherra sýnt fram á að
með þessum aðgerðum sé verið að
vinna með hagsmuni Íslands í huga,
þvert á móti hefur þessi aðgerð ein-
ungis skaðað íslenska hagsmuni það
best ég veit.
Það er sorglegt að sjá utanrík-
isráðherra ganga fram með þeim
hætti sem hann hefur gert, hann
málar sjávarútveginn sem sjálfselsk
illmenni sem hann þori að standa
uppi í hárinu á. Svo kemur kórinn
sem er sammála honum, kóar með
og bendir á „vondu“ stórfyrirtækin
sem græði svo mikið að þau hafi nú
efni á að fórna fyrir málstaðinn. Það
sem fylgir ekki sögunni er að það
eru líka við, litlu og meðalstóru fyr-
irtækin sem tökum á okkur höggið.
Ég sé fram á erfitt ár með ákveðna
vöruflokka sem fóru áður til Rúss-
lands en við höfum ekki markað fyr-
ir eins og staðan er í dag. Þetta
finnst Gunnari Braga lítið mál, enda
er auðvelt að rífa kjaft þegar þú
þarft ekki persónulega að greiða
fyrir skaðann.
Það eru svo ekki einungis fyr-
irtækin sjálf sem tapa á þessu æv-
intýri, ég mun hafa færra fólk í
vinnu vegna þessa og þeir starfs-
menn sem ég hef nú þegar fá minni
yfirvinnu. Þetta hefur svo að sjálf-
sögðu frekari áhrif þar
sem að ég þarf að
kaupa minni þjónustu
frá öðrum, færri vörur
og þar sem að ég og
óbeinir aðilar fáum
minni tekjur, þá er
minna sem kemur í rík-
issjóð á endanum.
Svona gerist um allt
land, safnast þegar
saman kemur, en þetta
þykir ekkert tiltökumál
hjá utanríkisráðherra.
Gunnar og meðreið-
arsveinar hans hafa
réttlætt þessa ákvörð-
un með því að benda á
brot Rússa gagnvart
alþjóðalögum. Enginn
efast um að ráðamenn í
Moskvu eru ekki prúð-
ustu piltarnir í heim-
inum, hvorki þegar
kemur að framferði
þeirra gagnvart ná-
grönnum sínum eða
samborgurum. En ef það á að vera
eitthvert leiðarljós með því hvaða
þjóðir viðskipti eru stunduð við, þá
er ég hræddur um að þá yrði lítið um
alþjóðaviðskipti. Hægt er að benda á
önnur ríki sem ráðherrann gerir
enga athugasemd við að stunda við-
skipti við en eru þó ekki síðri brota-
menn heldur en Rússland, nægir þar
að nefna Tyrkland og ýmis harðræð-
isríki Mið-Austurlanda – ráðherrann
virðist þó ekki veigra sér við að fá
sér kaffi og kruðerí með erindrekum
þeirra!
Hinn kaldi raunveruleiki er sá að
það er lítið um „vini“ í heimi al-
þjóðastjórnmála. Vissulega geta góð
samskipti skipt máli og jafnvel geta
samskipti á milli leiðtoga þjóðanna
haft talsverð áhrif. Við skulum þó
ekki blekkja okkur, þegar öllu er á
botninn hvolft þá eru það hagsmunir
sem ráða för, vináttan má sín lítils
gegn hörðum raunveruleika hags-
munanna sem stýra þjóðunum, því
frumskylda ríkisstjórna er að vinna
að hag eigin þegna, líkt og við sáum í
framferði „vina okkar“ í Icesave-
deilunni. Þetta sjónarmið virðist þó
ekki stjórna Gunnari Braga, hann
lætur aðrar þjóðir spila á sig eins og
harmonikku og viðhlæjendur hans
dansa með. Á meðan mega íslenskir
hagsmunir og íslensk fyrirtæki, sem
hann á að vera að verja, blæða og til
að bæta gráu ofan á svart þá gengur
hann fram í fjölmiðlum og málar
okkur sem tökum á okkur höggið
sem aðila sem „virðast hugsa meira
um næsta ársreikning en hag þjóð-
arinnar“.
Það er best að ég leiðrétti Gunnar
Braga með það. Íslenskur sjávar-
útvegur hefur ávallt verið tilbúinn til
að leggja lóð sín á vogarskálarnar.
Íslenskur sjávarútvegur er nettó-
greiðandi til samfélagsins í formi
venjulegra skatta, auðlindagjalda og
annarra slíkra greiðslna. Þá veit ég
um mörg sjávarútvegsfyrirtæki út
um allt land sem eru jafnframt dug-
leg við að styrkja nærsamfélagið
hvort sem um er að ræða íþrótta-
starf eða hjálparstarf, af þeirri einu
ástæðu að þau vilja byggja upp
sterkt og gott samfélag. Það er al-
veg ljóst að íslenskur sjávarútvegur
reynir eftir fremsta megni að standa
sig þegar kemur að samfélaginu
hverju svo sem Gunnar Bragi eða
aðrir vilja halda fram. Það sem er þó
ekki ljóst er hvaða hagsmunir það
eru sem utanríkisráðherra er svona
æstur í að fórna hagsmunum ís-
lensku þjóðarinnar fyrir. Gunnar
Bragi mætti líta sér nær næst þegar
hann slær sig til riddara á fundi fé-
laga sinna, sem hugsa fyrst og
fremst hvernig megi eyða peningum
en ekki afla þeirra fyrir þjóðarbúið.
Dans hégómans
Eftir Ólaf
Hannesson
Ólafur Hannesson
» Svona gerist
um allt land,
safnast þegar
saman kemur,
en þetta þykir
ekkert tiltöku-
mál hjá utanrík-
isráðherra.
Höfundur er framkvæmdastjóri.