Morgunblaðið - 31.03.2016, Blaðsíða 1
Stofnað 1913 74. tölublað 104. árgangur
F I M M T U D A G U R 3 1. M A R S 2 0 1 6
AUÐVELDA INN-
FLUTNING Á
HÆFILEIKAFÓLKI 15 SYSTKIN — ÞÚSUND ÁR
ÉG OG RADIO-
HEAD: 23 ÁRA
SAMBAND
AFKOMENDUR AXLAR-BJÖRNS 24 FER Á KOSTUM Á TÓNLEIKUM 82VIÐSKIPTAMOGGINN
Engin takmörk eru fyrir þeim grimmdarverkum
sem framin eru um þessar mundir í yngsta ríki
heims, Suður-Súdan. Borgarastyrjöldin hefur stað-
ið í tvö ár og kostað tugþúsundir manna lífið, mögu-
lega jafnmarga og í Sýrlandi. Um milljón hefur flú-
ið landið, flestir til Úganda.
„Maðurinn minn var dreginn að víglínunni, ég
átti enga peninga til að framfleyta börnunum. Ég
varð að fara,“ segir Helen, 11 barna móðir, í sam-
tali við Morgunblaðið sem kynnti sér aðstæður
flóttafólksins. „Ég veit ekki hvort ég sé hann aftur.
Er hann enn á lífi? Ég veit það ekki.“ »50-51
Morgunblaðið/Kristín Heiða
„Er hann enn á lífi?“
Gleymda stríðið í Suður-Súdan
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Fasteignafélagið Reitir áformar að byggja allt
að 100 þúsund fermetra af atvinnu- og íbúðar-
húsnæði við Kringluna. Til samanburðar er
Kringlan nú rúmir 50 þúsund fermetrar og
yrði þetta því sennilega mesta uppbygging
verslunarhúsnæðis í sögu landsins.
Guðjón Auðunsson, forstjóri Reita, segir
hugmyndina þá að bæta við verslunum og
skrifstofum, byggja nýtt hótel og reisa allt að
250 íbúðir við Kringluna.
Guðjón segir Reiti horfa til Norðurlandanna
í þessu efni. Þar séu mörg dæmi um að íbúðir
og ýmis afþreying og þjónusta sé byggð upp
við verslunarmiðstöðvar. Hann segir áformin
unnin í samstarfi við Reykjavíkurborg. Mark-
miðið sé að hefja uppbyggingu á næstu árum.
Leiguverðið komið að þolmörkum
Guðjón segir Reiti hafa hætt við uppbygg-
ingu á stórum byggingarreitum í miðborg
Reykjavíkur, enda hafi áhættan verið of mikil.
Leiguverð sé í sumum tilfellum orðið svo hátt
að það verði ekki hækkað meira. „Þetta er
ekki bara spurning um hvort viðkomandi
rekstraraðili sé í stakk búinn til að standa
undir leigunni til nánustu framtíðar,“ segir
Guðjón.
Þrefalda
Kringlu-
svæðið
Reitir bæta við 100
þúsund fermetra byggð
MNýtt þorp... »ViðskiptaMogginn
Teikning/Reitir
Breyting Byggingarmagnið margfaldast.
Framkvæmdastjóri hjá Isavia
telur heppilegt að hefja notkun
mannlausra flutningaflugvéla í
löngu flugi, t.d. um heim-
skautasvæðin. „Þar eru langar
vegalengdir, góð hagkvæmni og
ekki eins þétt umferð. Ekki er
heldur sama hætta á jörðu niðri,
ef eitthvað fer úrskeiðis, því
megnið af pólleiðunum er yfir
óbyggðum svæðum,“ segir Ás-
geir Pálsson en hann velti þeirri
hugmynd upp á síðustu heim-
skautaráðstefnu forseta Íslands,
Arctic Circle, að heppilegt kynni
að vera að hefja flug mannlausra
flutningavéla um heimskauta-
svæðin.
Tæknin til að fjarstýra flug-
vélum er til. Þeim yrði stýrt frá
jörðu í flugtaki og lendingu en
þess á milli hafðar á sjálfstýr-
ingu. Telur Ásgeir langt í að far-
þegar fáist til að stíga upp í flug-
vél sem eigi að fljúga án
flugmanns. Annað gildi um flutn-
ingaflug. Það geti haft í för með
sér mikinn efnahagslegan ábata.
Ásgeir telur jafnframt að Ís-
land gæti orðið ein af mið-
stöðvum slíks flugs. »10
Fjarstýrt flug
yfir heimskautin
Pökkun Ódýrara gæti orðið að fljúga
með lax í sushi Japana.
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Alls 70 milljónir íslenskra
króna voru gefnar fyrir frí-
merkjasafn Indriða heitins Páls-
sonar forstjóra þegar það var
boðið upp í Málmey í Svíþjóð á
dögunum. Mörg merk merki
voru í safninu, en aðeins 60%
þess eru nú seld. Hin 40% fara
væntanlega á uppboð á haust-
dögum þessa árs. »20
Frímerki Indriða
fóru á 70 milljónir
Sjálfsvígum 60 til 80 ára og eldri fjölgaði árin
2013 og 2014, samkvæmt tölum frá Embætti
landlæknis. Fjórir eldri en 80 ára sviptu sig
lífi árið 2014. Aldrei hafa fleiri í þessum ald-
urshópi fallið fyrir eigin hendi en árið 2014 ef
miðað er við tölur frá árinu 1996. „Þegar
rýnt er í þessar tölur þá líta síðustu tvö ár
ekki vel út og það vekur ugg. Ef þessi þróun
heldur áfram næstu tvö árin er þetta virki-
lega eitthvað sem þarf að fylgjast með því
þetta getur verið mælikvarði á heilsu og hag
aldraðra,“ segir Sigurður Páll Pálsson geð-
læknir á Landspítala. Öll sjálfsvíg eiga sér
einhverja forsögu um þunglyndi eða þung-
lyndiseinkenni en hjá öldruðum eiga sjálfsvíg
sér lengri sögu en þeim yngri. Hann segir
brýnt að fólk sé meðvitað um líðan annarra
og spyrji um geðheilsu. »28
Sjálfsvígum eldri borgara
hefur fjölgað milli ára
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Mér líst mjög vel á það, ef það
stefnir í að þau ætli að manna sig
upp í það að leggja fram vantraust
þótt þau kalli það öðru nafni. Ég
var farinn að óttast að það yrði
ekkert úr þessu hjá þeim,“ segir
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
forsætisráðherra um tillögu
stjórnarandstöðuflokkanna um
þingrof og nýjar kosningar sem
boðað er að komi fram í næstu
viku. Sigmundur Davíð segir að
nú sé góður tími til að taka um-
ræðu í þinginu um árangur rík-
isstjórnarinnar og jafnvel bera
hana saman við þá síðustu. „Ef
menn eru tilbúnir að sjá af dá-
litlum tíma þingsins í það líst mér
mjög vel á það,“ segir hann.
Bjarni Benediktsson fjármála-
ráðherra telur enga ástæðu til
þingrofs. „Ég tel að ríkisstjórnin
hafi náð miklum árangri í sínum
störfum. Ég tel að það sé meg-
inhlutverk hennar að ná árangri
fyrir fólkið í landinu. Það hefur
gengið að mörgu leyti vonum
framar. Af þeirri ástæðu tel ég
enga ástæðu til þingrofs.“ For-
sætisráðherra segir að ríkis-
stjórninni hafi gengið vel að ná
markmiðum sínum, jafnvel betur
en hann hefði þorað að vona.
„Nú hefur það svosem komið í
ljós að undanförnu að ég hef í
þeirri vinnu allri tekið hagsmuni
almennings fram yfir allt annað,
jafnvel fjölskylduhagsmuni. Ekki
er nema gott um það að segja ef
menn vilja ræða árangurinn og þá
margra ára baráttu sem þurfti til
að gera hann að veruleika.“ »6
Ræða árangur stjórnarinnar
Forystumenn ríkisstjórnarinnar telja enga ástæðu til þingrofs og kosninga
Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson
Bjarni
Benediktsson