Morgunblaðið - 31.03.2016, Blaðsíða 92

Morgunblaðið - 31.03.2016, Blaðsíða 92
FIMMTUDAGUR 31. MARS 91. DAGUR ÁRSINS 2016 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 517 KR. ÁSKRIFT 5613 KR. HELGARÁSKRIFT 3505 KR. PDF Á MBL.IS 4978 KR. I-PAD ÁSKRIFT 4978 KR. 1. Tók mynd með flugræningjanum 2. Þreyta flugmanna meginorsök… 3. Aflandsfélagið ekkert leyndarmál 4. Linda P íhugar framboð »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Alexandra Chernyshova sópran- söngkona flytur lög úr óperunni Skáldið og biskupsdóttirin í Fríkirkj- unni í Reykjavík í dag kl. 12, ásamt Guðrúnu Ásmundsdóttur sögumanni og Ásgeiri Páli Ágústssyni barí- tonsöngvara við undirleik Magnúsar Ragnarssonar. Óperan er eftir Alex- öndru og Guðrúnu. Flytja lög úr Skáldinu og biskupsdótturinni  Erlingskvöld Bókasafns Reykjanesbæjar, til heiðurs Erlingi Jónssyni lista- manni, verður haldið í kvöld kl. 20 og verður hús- ið opnað 15 mín. áður með ljúfum tónum og góðgæti. Meðal þeirra sem koma fram er rithöfundurinn Héðinn Unnsteinsson sem lesa mun upp úr bók sinni Vertu úlfur. Erlingskvöld haldið í Reykjanesbæ  Vísnabandið Spottarnir heldur tón- leika á Kaffi Rósenberg í kvöld kl. 21. Á þeim munu Spottarnir syngja vísur eftir Cornelis Vreeswijk sem er ein aðal- uppspretta sveitarinnar og á efnisskrá eru einnig lög eftir Magnús Ei- ríksson, Megas, Hank Willi- ams o.fl. Spottarnir flytja vísur Vreeswijks Á föstudag Austanátt, víða 13-18 m/s og rigning eða slydda, eink- um sunnan- og austanlands. Austan 5-13 síðdegis, en hvassara nyrst. Hiti 2 til 7 stig. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Vaxandi austanátt, 8-18 m/s síðdegis og 10- 23 í kvöld, hvassast suðvestantil. Skúrir eða él syðra og slydda eða rigning um kvöldið, en þurrt og bjart veður fyrir norðan. VEÐUR „Ég held að hún sé ekki mikið skotfastari en aðrir en hún er árásargjörn í sókninni. Þegar hún nær upp hraða áður en hún skýtur á markið þá verður það fast,“ segir Halldór Harri Kristjánsson, þjálfari Stjörnunnar, um Helenu Rut Örvarsdóttur sem er leikmaður umferðarinnar í Olís-deild kvenna í hand- knattleik hjá Morg- unblaðinu. »4 Hún er árásar- gjörn í sókninni Oddaleikur Stjörnunnar og Njarðvík- ur um sæti í undanúrslitum Íslands- móts karla í körfuknatt- leik fer fram í Garða- bæ í kvöld. Heima- menn í Stjörnunni geta vænst þess að Justin Shouse eigi talsvert inni því hann hef- ur verið langt frá sínu besta í þriggja stiga skotum í rimmu lið- anna til þessa. »2 Hitnar Justin á réttum tíma gegn Njarðvík? Vonir standa til þess að gengið verði frá ráðningu Geirs Sveinssonar í starf landsliðsþjálfara í handknatt- leik karla í dag. Illa hefur gengið að reka smiðshöggið á samning hans og HSÍ. Íslenska landsliðið fer til Noregs á laugardaginn og er allt kapp lagt á að Geir verði með í för. Annars stýrir Gunnar Magnússon, þjálfari Hauka, liðinu í Noregi. »2 Tekst mönnum að reka smiðshöggið í dag? ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Sigurður Björnsson lék listir sínar í nautaati í Povóa St. Miguel - Moura í Portúgal á páskadag. „Ég var hepp- inn með naut, það var hugrakkt og árásargjarnt, og ég komst þokkalega vel frá bardaganum,“ segir hann. Nautaat í Portúgal er frábrugðið nautaati á Spáni og til dæmis eru nautin hvorki illa særð né drepin, þó stungið sé í þau. Atið hefst á því að reiðmaðurinn kemur inn á völlinn og síðan er nautinu sleppt inn. Þá hefst eltingarleikur, nautið á eftir hest- inum, og knapinn færir leikinn inn á miðjuna, þar sem hann gerir atlögu að nautinu og hefur tíu mínútur til að sýna listir sínar. Tveir bardagar í maí Þetta var fyrsti opinberi bardagi Sigurðar en hann hefur lært réttu tökin undanfarna tvo mánuði og er skráður í tvo bardaga í maí, næst í Figuera da Foz 12. maí. „Ég hef verið í stífri þjálfun enda má lítið út af bera þegar komið er í hringinn,“ segir Sigurður. „Hest- arnir, sem eru af svokölluðu Lusit- ano-kyni, eru gríðarlega vel þjálfaðir og þetta er reiðmennska á hæsta stigi en hestunum er nánast alfarið stjórnað með fótum og ásetu.“ Sigurður segir að í fyrrasumar hafi tveir menn frá Portúgal verið með honum í hestaferð suður Kjöl og þeir hafi sagt honum frá þessari teg- und nautaats. „Þegar ég sá vídeó- myndir til nánari skýringar heill- aðist ég algerlega og sagði við sjálfan mig að þetta yrði ég að læra og hér er ég nú, búinn að læra grunnatriðin og búinn með fyrsta bardagann.“ Nautaatið í Portúgal er að mestu stundað af fjölskyldum, sem hafa verið í því mann fram af manni. „Nú eru ekki nema um 100 starfandi nautabanar og því ekki svo einfalt að komast inn í þennan heim en annar Portúgalinn, sem fór með mér í hestaferðina í fyrrasumar, gekk í málið og kom mér að hjá Jorge D’Al- meida, sem er gömul hetja með um 1.500 bardaga að baki.“ Sigurður hefur verið í Portúgal frá því í lok janúar. „Ég hef æft vel til þess að ná tökum á reiðmennsk- unni en það er of seint fyrir mig að slá í gegn í íþróttinni. Það eru ein- göngu listamenn í þessu og til þess að komast á toppinn þurfa menn að byrja að æfa á barnsaldri.“ Hann bætir við að þó hann snúi senn að fyrri störfum á hálendi Íslands verði reynslan ekki tekin frá honum. „Það er mikil pappírsvinna í sambandi við að fá að keppa og ég fékk atvinnu- leyfi sem listamaður undir eigin nafni.“ Í nautaati í Portúgal  Knapinn Sig- urður Björnsson í hóp listamanna Nautaat Sigurður Björnsson atast í nautinu áður en hann lætur til skarar skríða á vellinum í Portúgal. Dansað í takt Sigurður skipti einu sinni um hest áður en yfir lauk.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.