Morgunblaðið - 31.03.2016, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 31.03.2016, Blaðsíða 40
40 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. MARS 2016 og báðu mig fyrirgefningar á þessu. Lauritz Damm var einn skemmti- legasti hlaupari sem ég hef séð, snerpan var svo óskapleg en þarna var hann farinn að gefa eftir fyrir aldurs sakir, og það var ólíkt hon- um að taka þátt í svona löguðu á keppnisbraut,“ segir Kaldal um hlaupið í Fram til orrustu. Eftir að hafa unnið 3000 metrana óvænt komu hinir dönsku for- ráðamenn mótsins kátir og glaðir að máli við Jón. Lögðu þeir að hon- um að taka þátt í 5000 metrunum daginn eftir og töldu Jón eiga þar sigurmöguleika. „Ég var ekki trúaður á það eftir að hafa hlaupið 3000 m daginn áð- ur. En þeir voru bjartsýnir og sögðu við mig, að ef mér tækist að sigra í hlaupinu mundu þeir draga íslenska fánann að húni. Þetta hafði sín áhrif á mig. Að vísu var mér ljóst, að þeir voru að blíðka mig og eggja með þessu, en ég neita ekki að mér fannst að það yrði ógleym- anlegt að sjá íslenska fánann á stöng við hliðina á fánum hinna landanna. Ég lifnaði allur við þessa tilhugsun og ákvað að gera mitt besta í hlaupinu.“ Fyrir hlaupið hitaði Jón sig upp eins og hann var vanur, með smá- hlaupum um vallarsvæðið. Skokkaði hann meðal annars að fánastöng- unum svona eins og til að athuga hvort íslenski fáninn væri þar. Íslenski fáninn gaf kraftinn „Jú, ekki bar á öðru, þar lá hann fallega samanbrotinn við eina stöngina. Það fór einhver þægileg bylgja um mig þegar ég spretti úr spori í áttina að rásmarkinu. Litlu síðar er lagt af stað í hlaupið og það fór svo að mér tókst að sigra. Ég er sannfærður um að vonin í ís- lenska fánanum við hún átti drýgst- an hlut. Þegar svo að því kom var það danski fáninn sem birtist en ekki sá íslenski, en á samri stundu komu forráðamennirnir hlaupandi til mín leiðir og hryggir yfir því að verða að bregðast loforði sínu. Þeir afsök- uðu það á alla lund og ég skildi það mætavel, við nánari athugun, að þar sem ég keppti fyrir Danmörku varð sá fáni að dragast upp. Hitt er svo annað mál, að það var íslenski fáninn sem gaf mér kraftinn,“ segir hinn fóthvati og slyngi hlaupari, Jón Kaldal, um atvik þetta í Fram til orrustu. Jón átti velgengni að fagna á hlaupabrautinni meðan hann nam ljósmyndun í Kaupmannahöfn, en í þeirri grein þótti hann einstakur listamaður. Setti hann fjölda Ís- landsmeta sem sum hver stóðu í áratugi. Árangur hans í 5 km hlaupi 1922 (15:23,0 mín) hefði ver- ið sá besti á Íslandi á þeirri vega- lengd 75 árum síðar, árið 1997. Þá vann Jón Kaldal öll frægustu stór- hlaupin, svo sem Marselisborg- arhlaupið í Danmörku 1919, 1920 og 1921 og Fælledpark-hlaupið, svo og Limhamn-hlaupið fræga við Malmö í Svíþjóð, sem hann vann þrisvar, 1919, 1920 og 1923. Jón varð margfaldur danskur meistari í langhlaupum og vann til eignar m.a. veglega verðlaunagripi fyrir hlaupin í Marselisborg og Lim- hamn. Leiðasta atvikið á ferlinum Danir fóru fram á það við Jón að hann keppti á Ólympíuleikunum í Antwerpen í Belgíu 1920 undir merkjum Dana. Íslendingar áttu þess kost að að keppa á leikunum í fyrsta sinn sem fullvalda ríki og voru búnir að ganga þannig frá hnútunum við Alþjóðaólymp- íunefndina. Þrátt fyrir veglegan fararstyrk frá Alþingi bar Íþrótta- samband Íslands (ÍSÍ) hins vegar ekki gæfu til að senda keppendur til Antwerpen. Sendi það hins veg- ar tvo menn þangað til að fylgjast með leikunum og skipulagi þeirra. Jón hafði náð bestum tíma hlaup- ara í Danmörku og Svíþjóð en samt virðist ekki hafa hvarflað að ÍSÍ að senda hann til Antwerpen, eins og fram kemur í _Heil öld til heilla“, 100 ára sögu ÍR. Þegar Danir báðu Kaldal að keppa með þeim í Antwerpen hugs- aði hann fyrst heim. „Þá hugsaði ég með mér, að ef þeir teldu mig þess virði að fá mig, þá væri rétt að senda skeyti heim til Íþrótta- sambandsins og spyrjast fyrir hvort þeir vildu ekki senda mig sem fulltrúa Íslands og keppanda á leikana. Ég fékk fljótlega svar frá ÍSÍ þar sem sagði, að þeir ætli ekki að senda neinn keppanda.“ Þáði Kaldal því boð Dana þótt fremur hefði hann viljað keppa undir ís- lenskum fána. Í samtali í sérstöku ólympíublaði Morgunblaðsins í tilefni Rómarleik- anna 1960 segir Kaldal, að sjaldan hafi hann orðið fyrir meiri von- brigðum en er hann fékk hið nei- kvæða skeyti frá íþróttaforystunni heima á Íslandi. agas@mbl.is Verðlaunasafn Jón Kaldal með verðlaun sem hann vann til eignar á námsárunum í Kaupmannahöfn en hann vann öll helstu hlaup þar í landi. Myndin er tekin vorið 1921 og ferli Kaldals þá hvergi lokið. Þú gerir ekki *samkvæmt dekkjaprófun haustið 2014 Ipike W419Winter i'cept Korna- dekk – Síðan 1941 – Smiðjuvegi 68-72, Kóp Hjallahrauni 4, Hfj Fitjabraut 12, Njarðvík Austurvegi 52, Selfossi Skútuvogi 2, Rvk Sími 568 3080 betri kaup! Áberandi gott skv. FÍB* Einstök náttúrufegurð og forn menning. Serbía, Svartfjallaland og Króatía. Við ferðumst um þrjú af löndum fyrrum Júgóslaviu, Serbiu, Svartfjallaland og Króatíu. Þar er æfa gömul menning, sagan mikil og náttúrufegurð einstök. Við förum aftur í tíma og rúmi, sjáum gömul þorp þar sem tíminn hefur staðið í stað. Keyrum um falleg sveitahéruð, skoðum kirkjur, klaustur, söfn og glæsilegar borgir svo eitthvað sé nefnt. Við kynnumst brosandi heimamönnum og því spennandi umhverfi sem þeir lifa í. 13.-25. júní 2016 Verð 337.900 kr. á mann í 2ja manna herbergi Innifalið: Flug, skattar, hótel með morgun- mat, allar ferðir, öll keyrsla, hálft fæði megin- part ferðar og íslenskur fararstjóri Sími 588 8900 transatlantic.is Balkan- skaginn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.