Morgunblaðið - 31.03.2016, Blaðsíða 46
46 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. MARS 2016
SVIÐSLJÓS
Ágúst Ásgeirsson
agas@mbl.is
Í dymbilvikunni var hulunni svipt af
heimsins stærsta loftfari í flugskýli
nokkru í Cardington í Bedford-skíri
í Bretlandi. Er það 92 metra langt,
eða 18 metrum lengra en stærsta
þota heims, Airbus A380. Eigin
þungi þess er 20 tonn og mesti flug-
hraði 80 hnútar, eða 148 km/klst.
Knýja fjórir hreyflar loftskipið nýja
en þeir velta um ása, allt að 360
gráður, og lyfta farinu, lækka flugið
eða halda því kyrru og stöðugu.
Burðargeta þess er 10 tonn.
Það er breska fyrirtækið Hybrid
Air Vehicles (HAV) sem smíðað hef-
ur Airlander 10, eins og loftfarið
heitir. Upphaflega var það hannað
fyrir bandaríska landherinn til eft-
irlits og njósnaflugs. Þegar fé til
verkefnisins þvarr keypti HAV her-
inn út úr verkefninu. Áætlað er að
smíða allt að 12 eintök fram til árs-
ins 2018.
Þótt Airlander sé í sjálfu risastórt
ferlíki stafar engin mengun frá því.
Þykir loftfarið vera áhugaverður
kostur til bæði borgaralegrar starf-
semi og hernaðarlegrar. Svo sem til
að gegna hlutverki í fjarskiptum,
landmælingum og rannsóknum og
vöruflutningum. Til flugs með far-
þega er hægt að koma fyrir sætum
fyrir allt að 48 manns.
Kjörið til útsýnisflugs
„Loftfarið er fullkomið til útsýn-
isflugs því veggir og gólf farþega-
klefans geta verið úr gegnsæju efni.
Og það er hægt að opna glugga þar
sem hvorki er flogið í mikilli hæð,
eins og aðrar farþegafluvélar, né
eins hratt,“ segir Chris Daniels,
einn af yfirmönnum HAV.
Forsvarsmenn HAV telja að loft-
farið eigi fyrir sér framtíð í flug-
samgöngum. Einn af stjórum þess,
Chris Daniels, segir: „Við munum
ekki keppa við farþegaþotur á Atl-
antshafinu en getum boðið upp á
draumaflug fyrir ferðaþjónustuna
og magnaðar útivistarferðir. Loft-
farið er hið fullkomna far til skoð-
unarferða úr lofti því hægt er að
hafa gólf og veggi farþegaklefans úr
gegnsæju efni. Við getum opnað
gluggana því við fljúgum hvorki eins
hátt né eins hratt og venjulegar
flugvélar. En við munum ekki bjóða
upp á flug til að koma mönnum frá A
Útsýnisflug Airlander væri meðal annars ákjósanlegur til útsýnisflugs eins og sést á þessari tölvugerðu mynd. Fyrsta tilraunaflugið verður síðar á árinu.
Stærsta loftfar heims
getur flotið á legi
Í Airlander 10 fara saman hönnun loftskipa og tækni
venjulegra flugvéla Árangurinn ofurskilvirkt loftfar
Risi Starfsfólkið á myndinni virðist dvergvaxið í samanburði við ferlíkið.
Sölustaðir:
Fjarðarkaup, Byko, apótek, og öllum
helstu leikfangaverslunum um land allt
Safnaðu þeim
öllum
UMBOÐSAÐILI:
www.danco.is