Morgunblaðið - 31.03.2016, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 31.03.2016, Blaðsíða 45
Rannsóknir Vits er þörf og þekk- ingin er undirstaða allra framfara. Verja á um 130 milljónum króna úr atvinnuleysistryggingasjóði til að kosta átaksverkefni til að fjölga tímabundnum störfum fyrir náms- menn í sumar. Slíkt hefur verið gert síðustu sumur í starfi þar sem Vinnumálastofnun leiðir samvinnu við stofnanir ríkisins og sveitarfélög. Í verkefninu nú er horft til há- skólanema, en margir þeirra þurfa reynslu á sínu fagsviði. Sérhæfð störf sem ríkisstofnanir og sveitar- félög bjóða í sumar verða eingöngu fyrir nemendur í háskólanámi, sem á að gangast þeim í starfsþjálfun. Von- ir standa til að með átakinu verði til 260 tímabundin störf sem verða aug- lýst um miðjan apríl. Í frétt frá velferðarráðuneytinu segir að atvinnuástand meðal ungs fólks hafi batnað mikið að undan- förnu. Ljóst sé að flestir námsmenn geti fengið sumarstarf af einhverju tagi – s.s. við umhiðu, þjónustu og slíkt – og háskólafólk vonandi í sam- ræmi við nám sitt. sbs@mbl.is Námsmenn fá starfsþjálfun  Skapa á 260 sérhæfð sumarstörf fyrir 130 milljónir króna FRÉTTIR 45Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. MARS 2016 VIÐTAL Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is „Reykjavík er einfaldlega tákn í skákheiminum, einn af þeim áfangastöðum sem skákmenn vilja koma til,“ segir Helgi Ólafsson stórmeistari, en nýlega kom út seinna bindi rit- verks hans, Reykjavík- urskákmót í 50 ár. Helgi tekur þar þráðinn upp þar sem fyrra bindinu sleppti og tekur saman sögu allra Reykjavíkur- skákmótanna frá árinu 1992 og fram til 2014. Reykjavíkurmótið hefur í seinni tíð verið „opið“ mót þar sem hver sem er hefur getað tekið þátt óháð getu en var á árum áður boðsmót, þar sem sumum af sterkustu skák- mönnum heims var boðið til þátt- töku. „Þetta hefur hvort tveggja sinn sjarma,“ segir Helgi um þessa þróun sem orðið hefur á mótinu í tímans rás. Glæsileg umgjörð Hörpunnar „Aðalbreytingin hefur verið sú að það eru engin stigalágmörk, sem hefur gert mótið nokkuð skemmti- legt á síðustu árum,“ segir Helgi. Það sé ekki síst vegna þess hvað Harpan hafi reynst áhugaverður keppnisstaður. „Salurinn rúmar vel fjöldann, og Harpan vekur mikla athygli í umfjöllun um mótið, til dæmis á erlendum skákvefsíðum.“ Umgjörðin þyki þar hin glæsileg- asta, en eini gallinn sem menn hafi orðið varir við sé að stöku sinnum berist tónlist inn í salinn frá öðrum viðburðum Hörpunnar. „Ég hef þó ekki frétt af því að það hafi truflað menn svo nokkru nemi, þó að menn séu vissulega misnæmir fyrir svona áreiti.“ Það breyti því þó ekki að heild- arsvipur mótsins hafi verið góður í seinni tíð. „Fólk er að koma hingað héðan og þaðan víðsvegar um heim- inn. Til dæmis sigurvegarinn í ár, Gupta, kemur frá Indlandi í fimmta sinn til Reykjavíkur.“ Þá séu einnig keppendur frá Kína og fleiri lönd- um sem hafi lagt langan veg undir fót til þess að taka þátt í mótinu. „Það er mörgum sem finnst að þeir verði að koma til Reykjavíkur og tefla, þó það sé bara einu sinni,“ segir Helgi. Frægasta skák 21. aldarinnar Helgi segir að þessar vinsældir megi rekja til þeirrar miklu sögu og dramatíkur sem fylgi íslenskri skáksögu. Þá hafi ungir skákmenn oft komið hingað, sem sumir hverjir séu nú meðal stærstu nafnanna í skákheiminum. Hann nefnir sem dæmi að árið 2004 hafi Magnús Carlsen, núver- andi heimsmeistari, komið til lands- ins, 13 ára gamall, til þess að tefla á mótinu. „Samhliða því var haldið Reykjavík Rapid mótið, og þar vill svo til að hann teflir við Kasparov,“ segir Helgi. Sú skák eigi gott tilkall til þess að kallast frægasta skák sem tefld hafi verið á þessari öld, en hægt sé að finna umfjallanir um hana á netinu og víðar. Veki ekki síst athygli að undrabarnið Carlsen gerði jafntefli við Kasparov og var á tímabili með yfirhöndina í skák- inni. „Þarna má segja að gamli og nýi tíminn hafi mæst,“ segir Helgi, sem rekur þessa skák í verki sínu. Viðbrigði fyrir unga skákmenn Það séu þó ekki bara undrabörn eins og Carlsen sem hafi notið góðs af mótinu, heldur hafi íslensk ung- menni mörg hver fengið þar góða reynslu inn í framtíðina. „Þetta er mjög stór viðburður, eitt aðalmótið á árinu, og þarna fá þau ákveðna eldskírn,“ segir Helgi sem segir helst hægt að líkja þessu við mun- inn á stórmóti og venjulegu móti í golfi. „Það er því oft mikil unun að sjá unga skákmenn standa sig vel á þessu móti,“ segir Helgi að lokum. Morgunblaðið/Styrmir Kári Reykjavíkurskákmótið Helgi Ólafsson segir að Harpan hafi vakið mikla athygli meðal skákáhugamanna erlendis sem glæsilegur mótsstaður. Áfangastaður sem skákmenn vilja vitja  Helgi Ólafsson með seinna bindið um sögu Reykjavíkurskákmótsins Helgi Ólafsson Skútuvogi 11 104 Reykjavík Sími 553 4000 www.prentvorur.is Sérfræðingar í prenthylkjum K ri n g la n Kr in gl um ýr ar br au t Miklabraut Miklabraut Við erum hér! Til bo ð 17 10bitar fyrir 4-5 5 Stórir bitar og 5minni. Stórt hrásalat og kokteilsósa. Stór af frönskum og 2l. Pepsi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.