Morgunblaðið - 31.03.2016, Blaðsíða 52
52 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. MARS 2016
Laufey Rún Ketilsdóttir
laufey@mbl.is
Forseti Brasilíu, Dilma Rousseff,
vinnur nú hörðum höndum að því að
safna atkvæðum í neðri deild brasil-
íska þingsins til að forða sér frá ákæru
vegna embættisafglapa. Ákæran
myndi byggjast á ásökunum í garð
Rousseff um að stoppa í fjárlagagöt
landsins með ólöglegum hætti og fela
þannig slæma stöðu hagkerfisins þeg-
ar hún sóttist eftir endurkjöri árið
2014.
Staða hennar veiktist verulega í
fyrradag þegar stærsti flokkur lands-
ins og samstarfsflokkur hennar í ríkis-
stjórn, Brasilíska lýðræðishreyfingin
(PMDB), ákvað að segja sig frá sam-
starfinu. Ráðherrar flokksins sögðu
sig í kjölfarið frá embættum sínum.
Þetta kemur fram á fréttavef AFP.
Rousseff stendur því eftir einangr-
uð en í harðri baráttu fyrir pólitísku
lífi sínu. Hún hefur lengi sætt hávær-
um ásökunum um spillingu en margir
af háttsettum samflokksmönnum
hennar voru nýlega fangelsaðir fyrir
þær sakir.
Fylgi ríkisstjórnar Rousseff hefur
fallið niður í 10% eins og fram kom í
skoðanakönnun sem birtist í gær.
Fylgi Rousseff forseta mældist um
14%.
Forsetinn á fáar vikur eftir
Rousseff þarf að koma í veg fyrir að
neðri deild brasilíska þingsins ákveði
að ákæra hana fyrir embættisafglöp
og þannig fjarlægja hana úr embætti
forseta. Til þess þarf hún þriðjung at-
kvæða. Takist það ekki fer fram sam-
bærileg kosning í öldungadeildinni
þar sem 2⁄3 atkvæða dygðu til að svipta
hana embætti.
Stuðningsmenn forsetans stóðu í
miklum hrossakaupum á þinginu í gær
til að tryggja henni fleiri atkvæði, en
nú hefur ríkisstjórnin sjö ráðherra-
embætti og 580 aðrar stöður til að deila
út til þeirra sem lofa atkvæði sínu.
Ljóst verður um miðjan apríl hvort
þingið ákveður að ákæra Rousseff
forseta.
Eliseu Padilha, fyrrverandi ráð-
herra í ríkisstjórn Rousseff, spáði því
að forsetinn ætti aðeins fáar vikur
eftir í embætti. „Útganga PMBD er
síðasti naglinn í kistuna,“ hefur AFP
eftir öldungadeildarþingmanninum
Aecio Neves, sem fer fyrir andstöð-
unni í PMBD og tapaði naumlega
fyrir Rousseff í kosningunum 2014.
Temer tæki við sem forseti
Fréttamaður BBC, Laura Bicker,
segir einnig að Rousseff geti átt von
á því að vera vikið tímabundið frá
störfum af þinginu í byrjun maí.
Michel Temer, varaforseti lands-
ins og leiðtogi PMDB, tæki þá við
embætti forseta á meðan þingið
ákvæði hvort henni yrði vikið varan-
lega frá.
Temer, sem er 75 ára lögmaður,
nýtur ekki mikilla vinsælda í heima-
landinu og er lítt þekktur þrátt fyrir
embætti sitt. Hann hefur þó lengi
viljað stíga undan skugga Rousseff
og kvartaði nýlega yfir því að vera
„til skrauts“ sem varaforseti. Hann
hefur til þessa staðið á hliðarlínunni
en nýtti tækifærið á mánudag og
hvatti flokk sinn til að slíta ríkis-
stjórnarsamstarfinu en hélt á meðan
embætti sínu sem varaforseti.
„Síðasti naglinn í kistuna“
Stærsti flokkur Brasilíu slítur stjórnarsamstarfi við flokk Rousseff forseta
Rousseff reynir að afstýra því að hún verði ákærð fyrir afglöp í embætti
AFP
Samstarfi slitið Þingmenn Brasilísku lýðræðishreyfingarinnar (PMDB) á
fundi þar sem þeir ákváðu að slíta stjórnarsamstarfi við flokk forsetans.
Barack Obama, forseti Bandaríkj-
anna, mildaði refsingu 61 fanga
sem allir höfðu verið dæmdir fyrir
brot tengd kókaíni. Með þessu
þrýsti hann enn frekar á um um-
bætur í réttarkerfinu þegar kem-
ur að fíkniefnabrotum.
Hvíta húsið tilkynnti í gær að
forsetinn myndi milda refsingu
sem ýmist væri lífstíðarfangelsi
eða styttri fangelsisvist.
Obama hefði því alls mildað
refsingu 244 einstaklinga sem
dæmdir voru fyrir slík brot. Suma
þeirra hitti hann svo í Hvíta hús-
inu í gær.
Mildar refsingar
fyrir fíkniefnabrot
BANDARÍKIN
Yfirvöld í París
fluttu í gær 985
flóttamenn úr
flóttamannabúð-
um sem spruttu
upp austan við
höfuðborgina í
mars, segir
AFP. Flótta-
mennirnir, sem
voru flestir frá
Súdan, Erítreu
og Afganistan, verða hýstir í neyð-
arskýlum í mánuð þar sem þeim
verður gert kleift að sækja um
hæli í landinu.
Flytja 985 flótta-
menn frá París
París Flóttamað-
ur fluttur um set.
FRAKKLAND
Möguleikinn á því að Ríki íslams
geti komið höndum yfir svonefnda
„sorasprengju“, verður meðal þess
sem rætt verður á leiðtogafundi
um öryggi kjarnorkuvopna, sem
haldinn verður í Washington-borg
í dag og á morgun.
Barack Obama, Bandaríkjafor-
seti, mun þar taka á móti leiðtog-
um um fimmtíu ríkja, til þess að
ræða leiðir til þess að bæta öryggi
kjarnorkuvopna.
Fundurinn er haldinn í skugga
voðaverkanna í Brussel, en í
fregnum síðustu daga hefur komið
fram að tveir ódæðismannanna
hafi reynt að útvega Ríki íslams
geislavirk efni. Slík efni væri síðan
hægt að nota með hefðbundnum
sprengjum til þess að búa til
„sorasprengjur,“ sem gætu meng-
að stór svæði með geislavirkum
úrgangi, með skelfilegum afleið-
ingum.
Ríki íslams eru þó ekki einu
hryðjuverkasamtökin sem hafa
reynt að verða sér úti um slík efni.
„Í gegnum tíðina hafa ýmsir
hryðjuverkahópar sýnt viðleitni til
þess að nálgast geislavirk efni,“
sagði Ben Rhodes, aðstoðarörygg-
isráðgjafi Obama, í aðdraganda
fundarins. Bætti hann við að í
sumum tilfellum hefðu slíkir hópar
setið um kjarnorkuver í von um að
finna þar slík efni.
Óttast „sorasprengjur“
Leiðtogafundur um kjarnorkuvopn haldinn í Washington
IB ehf • Fossnes 14 • 800 Selfoss • ib.is
Sími 4 80 80 80
• Varahlutir • Sérpantanir
• Aukahlutir • Bílasala
• Verkstæði
Ford F350 King Ranch á lager
GMC Sierra 3500 á lager
Opið virka daga kl. 10–18, laugard. kl. 11–14, sunnud. lokað
Rau›arárstígur 14 · sími 551 0400 · www.myndlist.is
Við leitum að
listaverkum
erum að taka á móti verkum á næsta listmunauppboð
Við leitum að verkum eftir frumherjana í íslenskri myndlist. Sérstaklega eftir
Ásgrím Jónsson, Jóhannes S. Kjarval, Kristínu Jónssdóttur, Louisu Matthíasdóttur,
Þórarinn B. Þorláksson, Svavar Guðnason og Nínu Tryggvadóttur.
Ennfremur er mikil eftirspurn eftir verkum Georgs Guðna, Kristjáns Davíðssonar,
Gunnlaugs Blöndal og Gunnlaugs Scheving.
Áhugasamir geta haft samband í síma 551-0400