Morgunblaðið - 31.03.2016, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 31.03.2016, Blaðsíða 22
22 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. MARS 2016 Kristján H. Johannessen khj@mbl.is Meginorsök flugslyssins sem varð á Keflavíkurflugvelli hinn 21. júlí 2013, er Sukhoi Civil Aircraft RRJJ-95B hafnaði utan flugbrautar, má rekja til þreytu flugmanna. Kemur þetta fram í nýútgefinni skýrslu rannsóknarnefndar sam- gönguslysa. Flugvélin var stödd hér á landi í prófunarflugi á vegum rússnesks framleiðanda og hugðist áhöfnin fljúga lágflug tveimur til þremur fet- um yfir flugbraut 11 á Keflavíkur- flugvelli í hliðarvindi, nálægt há- markslendingarþyngd og með einn hreyfil óvirkan. Var tilgangur flugs- ins að prófa sjálfvirknibúnað vélar- innar við þessar aðstæður. „Meginorsök flugslyssins var rak- in til þreytu flugmanna, er varð til þess að flugmenn flugvélarinnar gáfu röngum hreyfli inn í fráhvarfs- flugi, eftir að flugvélin snerti flug- brautina. Snerting flugvélarinnar við flugbrautina sló út sjálfvirkni- búnaði fyrir fráhvarfsflugið,“ segir í niðurstöðum rannsóknarnefndar. Flugslysaáætlun sein í gang Flugslysið varð klukkan 5:23 um morguninn og var slökkviliðið á Keflavíkurflugvelli ræst út 23 sek- úndum eftir að magi flugvélarinnar skall á flugbrautinni. Flugslysaáætl- un Keflavíkurflugvallar var hins vegar ekki virkjuð fyrr en tæpum níu mínútum eftir flugslysið og hef- ur Isavia fengið tillögur í öryggisátt frá rannsóknarnefndinni vegna þessa. Var áætlunin ekki virkjuð fyrr en slökkviliðsmenn höfðu sam- band við flugturninn til að kanna stöðu sjúkrabíla sem þá voru ekki mættir á slysstað. Voru þá átta mín- útur og 49 sekúndur liðnar frá brot- lendingunni. Neyðarrennibrautir klikkuðu Fram kemur í skýrslu rannsókn- arnefndar að ein af neyðarrenni- brautum flugvélarinnar, sú sem er vinstra megin að framan, blés ekki út sem skyldi þegar einn úr áhöfn vélarinnar opnaði dyrnar eftir brot- lendinguna. Kom síðar í ljós að gleymst hafði að virkja brautina. Sú neyðarrennibraut sem finna má til móts við þá sem ekki blés út reyndist einnig ónothæf, en hún fauk undir skrokk vélarinnar í hlið- arvindi og festist þar er hún blés út. Þetta olli seinkun á rýmingu vélar- innar. Fimm voru um borð í flugvélinni þegar slysið varð og var einn þeirra fluttur á sjúkrahús til aðhlynningar. Slasaðist sá þegar hann yfirgaf flug- vélina en áverkar hans reyndust minniháttar, eða brotinn ökkli. Flugvélin skemmdist hins vegar mjög mikið í brotlendingunni, en í skýrslunni kemur meðal annars fram að báðir hreyflar hennar sem og neðri hluti skrokksins hafi laskast mjög. Að auki olli vélin nokkru tjóni á jörðu niðri, einkum á flugbrautar- ljósum, er hún rann eftir brautinni í kjölfar brotlendingarinnar. Ljósmynd Víkurfréttir – Eyþór Sæmundsson Brotlending Rússneska flugvélin rann út af flugbraut 11 á Keflavíkurflugvelli og staðnæmdist við brautarendann. Þreyta flugmanna meginorsök flugslyss  Um níu mínútur liðu áður en flugslysaáætlun var virkjuð Lokamót Glugga- og glerdeildar áhugamanna fer fram í kvöld. Keppt er í tölti í Samskipahöll Hesta- mannafélagsins Spretts. Stutt er á milli efstu manna í stiga- keppni áhugamannadeildarinnar og ráðast úrslitin í töltinu í kvöld. Þor- varður Friðbjörnsson leiðir einstakl- ingskeppnina með 19 stigum. Í öðru sæti er Aníta Lára Ólafsdóttir með 17 stig og í því þriðja er Birgitta Dröfn Kristinsdóttir með 15 stig. Þar á eftir koma fimm knapar með 12 stig. Samkvæmt ráslista tölt- keppninnar eru sjö af átta efstu knöpunum með í kvöld, allir nema Aníta Lára. Játvarður Jökull Ingv- arsson sigraði í fyrra þegar keppnin var haldin í fyrsta skipti. Í liðakeppninni er Margréthof / Export hestar með forystu, með 391 stig. Appelsín er með 347 stig og Barki í þriðja sæti með 343 stig. Næstu lið eru þar skammt undan. Fimm móta keppni Áhugamannadeild Spretts er röð fimm móta sem haldin eru annan hvern fimmtudag seinni hluta vetr- ar. Tíu efstu knapar fá stig í hverri keppni, sá efsti 12 stig. Í liðakeppn- inni fær efsta liðið 45 stig. Keppnin hefst klukkan 19 en húsið er opnað einum og hálfum tíma fyrr. Aðgangur er endurgjaldslaus. Að lokinni töltkeppninni verða úr- slit í mótaröðinni ljós. Jöfn keppni áhugamanna  Lokamótið í Samskipahöllinni í kvöld  Úrslitin ráðast í töltkeppninni Alþjóðlegur dagur einhverfunnar, Blái dagurinn, er á morgun, föstudag- inn 1. apríl. Markmið hans er að vekja athygli á einhverfu og hvaða áskor- anir einhverfir glíma við í daglegu lífi. Blái dagurinn er liður í hinu árlega vitundar- og styrktarátaki Bláum apríl á vegum Styrktarfélags barna með einhverfu. Allt styrktarfé rennur óskert til málefnisins en í ár er safnað fyrir gerð á uppbyggilegu og jákvæðu fræðsluefni um einhverfu sérstaklega ætlað börnum. Flestir skólar landsins og fjölmörg fyrirtæki og stofnanir hafa tekið þátt í deginum síðustu ár með því að hafa bláa litinn í fyrirrúmi. Margir hafa brugðið á það ráð að setja myndir á instagram og facebook með því að merkja þær með #blar- april sem hefur hjálpað enn frekar til við að breiða út boðskapinn, segir í tilkynningu. Hægt er að styrkja mál- efnið um 1.000 kr. með því að hringja í símanúmerið 902-1010. Morgunblaðið/Eggert Klifur Krakkar á sumarnámskeiði Umsjónarfélags einhverfra. Haldið upp á dag ein- hverfunnar á morgun Reiknað er með að bæjarstjórn Vestmannaeyja samþykki í dag að íbúakosning verði 11. og 12. apríl um bætt aðgengi að Löngu, gróinni sandbrekku undir Heimakletti. Elliði Vignisson, bæjarstjóri, sagði að íbúakosningin væri skipu- lagslegs eðlis. „Hún er ekki fram- kvæmdaákvörðun og það er ekki verið að segja að við ætlum að gera þetta,“ sagði Elliði. Talsverð umræða hefur verið um hugmyndina á samfélagsmiðlum. Þar hefur m.a. verið bent á hættu á hruni úr Heimakletti. Elliði sagði að yrði ákveðið að fara í framkvæmdina yrði hættan á hruni væntanlega könnuð í skipulagsferlinu. Hægt verður að kjósa rafrænt með Íslykli eða á skrifstofu um- hverfis- og skipulagsráðs að Skild- ingavegi 5 umrædda daga kl. 9-12. Ráðið samþykkti að leggja eftirfar- andi spurningar fyrir íbúana: Vilt þú auka aðgengi að Löngu? Þeir sem segja já verða beðnir að velja á milli ganga í gegnum Heima- klett og göngubrúar. Þriðji kost- urinn er „með öðrum hætti“. gudni@mbl.is Heimaklettur Örin vísar á Löngunefið en Stóra-Langa er grasigróna sand- brekkan þar handan við. Yfir Löngu gnæfir Heimaklettur og haggast ekki. Kosið um kostina  Íbúakosning haldin í Eyjum 11.-12. apríl um aðgengi að Löngu Nýjung! Gómsætt morgunkorn -Engin aukefni -Enginn viðbættur sykur -Trefjaríkt
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.