Morgunblaðið - 31.03.2016, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. MARS 2016
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Farfuglarnir eru góður og öruggur vorboði og
það eru malbiksmenn raunar líka. Í gær, þegar
vel viðraði í borginni, fóru þeir á stjá og fylltu í
holur í götum við Kringluna og víðar í Reykja-
vík. Þeir gengu mjög rösklega til starfa, sem líka
þarf enda bíða mörg aðkallandi verkefni. Víða
eru vegir og götur illa farin eftir veturinn – og
holur, bungur og sprungur skapa bæði hættu á
slysum og skemmdum.
Holufyllingar í blíðviðrinu í borginni
Morgunblaðið/Golli
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
GRECO, Samtök ríkja Evrópuráðs-
ins gegn spillingu, beindu þeim til-
mælum til íslenskra stjórnvalda árið
2013 að núverandi fyrirkomulag
hagsmunaskráningar alþingismanna
yrði útvíkkað.
Þar á meðal var lagt til að skoðað
yrði hvort hagsmunaskráin ætti
einnig að geyma upplýsingar um
fjármál maka alþingismanna og eins
t.d. barna á framfæri alþingismanna.
Tekið var fram að slíkar upplýsingar
yrðu ekki endilega gerðar opinberar.
Þessi breyting hefur ekki verið gerð
á reglum um hagsmunaskráningu.
Þetta má lesa í nýrri áfanga-
skýrslu sem GRECO birti 23. mars
sl. varðandi úttekt á því hvernig Ís-
landi hafi tekist að fara að tilmælum
samtakanna. Skýrslan fjallar um
varnir gegn spillingu á meðal alþing-
ismanna, dómara og saksóknara.
GRECO lagði einnig til að hags-
munaskráningin næði yfir fjármuni
og framlög sem alþingismenn veita
viðtöku. Einnig innihéldi hún sund-
urliðaðar upplýsingar um fjárskuldir
alþingismanna aðrar en eðlilegar
skuldir vegna húsnæðiskaupa eða al-
mennar skuldir innan tiltekinna
marka.
GRECO mælti með því að Alþingi
yki á trúverðugleika hagsmuna-
skráningarinnar með því að auka eft-
irlit með því að reglunum væri fram-
fylgt. Einnig þyrftu alþingismenn að
hafa aðgang að ráðgjöf og leiðbein-
ingum á þessu sviði. Auk þess yrðu
tekin upp einhvers konar viðurlög
gagnvart þeim alþingismönnum sem
fara ekki að reglunum.
Þess má geta að reglur um skrán-
ingu á fjárhagslegum hagsmunum
alþingismanna og trúnaðarstörfum
utan þings voru samþykktar 2009.
Þær voru síðan endurskoðaðar 2011.
Reglurnar voru samdar með hliðsjón
af reglum danska þingsins.
Einnig má nefna að Alþingi sam-
þykkti 16. mars sl. nýjar siðareglur
alþingismanna. Við samningu siða-
reglnanna var m.a. horft til siða-
reglna Evrópuráðsþingsins, sem
nær öll þjóðþing Evrópu eiga aðild
að. GRECO beindi á sínum tíma til-
mælum til Íslands um að settar yrðu
siðareglur alþingismanna. Í nýju
skýrslunni er lýst ánægju með und-
irbúningsvinnuna við setningu
þeirra.
Vilja ítarlegri hagsmunaskráningu
GRECO-samtökin lögðu fram tilmæli um hagsmunaskrán-
ingu alþingismanna Kveða á um hagsmuni maka og barna
Sorpmagn frá hverjum Reykvíkingi
á síðasta ári var 179 kíló en hafði
verið 176 kíló árið 2013. Aukningin
milli ára er 1,7%. Til samanburðar
má nefna að vísitala kaupmáttar
launa hækkaði um 7,1% frá janúar
2015 til janúar á þessu ári. Oft hef-
ur mátt sjá fylgni milli þróunar
kaupmáttar og sorpmagnsins, þótt
svo sé ekki nú. Af því má draga þá
ályktun að fólk sé nýtnara en áður,
að sóun sé á undanhaldi ellegar að
meiri kaupmáttur hafi ekki skilað
sér til allra hópa.
Svipað og síðustu ár
Hjá umhverfis- og skipulagssviði
Reykjavíkurborgar er vakin at-
hygli á því að skil á endur-
vinnslustöðvar Sorpu hafi aukist að
undanförnu. Meðal þess sem fólk
endurnýi nú þegar hagur rýmkast
séu til dæmis heimilistæki, innrétt-
ingar og fleira.
Blandað sorp, það er almennt
rusl sem til fellur á heimilum og fer
í gráu tunnuna svonefndu, var 151
kíló á mann í fyrra. Það er svipað
og árin tvö þar á undan. Í tölunum
birtist sú vitundarvakning að nú
flokka flestir sorpið sem til fellur í
sínum ranni. Magn blandaðs sorps
fer minnkandi en æ meira af pappír
fer í blátunnurnar. Þær eru ætlaðar
fyrir t.d. dagblöð, mjólkurfernur,
umbúðakassa og svo fleira slíkt. Í
þær skilaði hver borgarbúi 28,5
kílóum í fyrra borið saman við rétt
tæp 27 kíló frá hverjum borgarbúa
árið 2014.
Blöð í blátunnur
Árið 2013 var vegið pappírsmagn
sem fór í bláar tunnur 19,9 kíló per
borgarbúa, en 7,4 kg. árið 2012.
Það sama ár, 2012, var blandaða
sorpið frá hverjum borgarbúa, en
dagblöð voru þá með, 174 kg. og
borið saman við 151 kg. í fyrra er
það 12,2% minna magn. Því sækir
endurvinnslan mikið á, ekki síst í
pappírnum. sbs@mbl.is
Sorpmagnið eykst milli ára
Morgunblaðið/Golli
Rusl Sorphreinsunarmenn á fullu.
Blátunnan með
blöðunum í endur-
vinnslu sækir á
„Upplýsingarnar
sem við fáum eru
þær að ríkis-
stjórnin muni á
næstu dögum
taka ákvörðun um
smíði nýrrar
ferju. Eins og
staðan er núna
megum við heldur
engan tíma
missa,“ segir Elliði Vignisson, bæj-
arstjóri í Vestmannaeyjum.
Birt var í gær minnisblað frá Sig-
urði Áss Grétarssyni hjá Vegagerð-
inni þar sem fram kemur að módel-
prófanir af nýrri Vestmannaeyja-
ferju sýni að skv. núverandi hönnun
geti frátafir í siglingum milli Eyja og
Landeyjahafnar orðið 30 dagar á ári.
Áður var búist við að þeir væru að-
eins 10 á ári. Þættirnir sem frátöfum
geta valdið eru einkum og helst öld-
ur, vindur, dýpi og slíkt.
„Þessi prófun nú breytir kannski
ekki öllu, nema þá þarf að búa skipið
betur til siglinga upp í Þorlákshöfn.
En það munar öllu að hægt verði að
fara stystu leiðina alls 11 mánuði á
ári í stað fjögurra til fimm eins og nú
er. Núverandi stöðu í samgöngum til
og frá Eyjum þarf að leysa, enda er
hún öllum dýr og óþægileg,“ segir
bæjarstjórinn. sbs@mbl.is
Ákvörðun á
næstu dögum
Elliði Vignisson
Elliði: Megum
engan tíma missa
„Mér finnst
langt til seilst
að skrá hags-
muni maka eða
barna þing-
manna. Það er
mín skoðun,“
sagði Einar K.
Guðfinnsson,
forseti Alþingis.
Hann kvaðst
ekki hafa séð nýja áfanga-
skýrslu GRECO um frammi-
stöðu Íslands.
„Ég kannast við að GRECO
hefur haft uppi þessi sjónarmið
á fyrri stigum,“ sagði Einar.
Hann sagði það eiga við um
reglur um hagsmunaskráningu
alþingismanna, eins og aðrar
reglur, að þær væru undir-
orpnar breytingum.
„Ég tel að breytingar á hags-
munaskráningu verði að gera
að mjög vandlega íhuguðu
máli. Menn verða að gera sér
grein fyrir því til hvers þær
munu leiða,“ sagði Einar. „Mér
finnst eðlilegt að fara efn-
islega yfir þessar ábendingar
frá GRECO. Þegar þessi skýrsla
berst okkur finnst mér sjálf-
sagt að forsætisnefnd Alþingis
fari yfir hana.“
Málið verður skoðað
EINAR K. GUÐFINNSSON, FORSETI ALÞINGIS
Einar K.
Guðfinnsson
Tabula gratulatoria
Þann 6. apríl nk. verður séra Vigfús Þór Árnason
sjötugur. Af því tilefni réðust vinir hans og
velunnarar í það mikla verk að láta skrifa um
hann bók og verður hún hvort tveggja í senn,
endurminningar hans og afmælisrit.
Ragnar Ingi Aðalsteinsson hefur séð um ritunina
og mun bókin koma út á haustdögum. Hún verður
bráðskemmtileg eins og þeirra félaga er von og
vísa, en snertir einnig hina viðkvæmu strengi í
brjóstum okkar.
Aftast í bókinni verður heillaóskaskrá (Tabula gratulatoria) og þar geta þeir
sem gerast áskrifendur að bókinni – og heiðra um leið séra Vigfús Þór á
þessum tímamótum – fengið nafn sitt skráð. Eru þeir beðnir að hafa samband í
netfangið: holar@holabok.is (og taka þá fram fullt nafn þess eða þeirra sem á
að skrá + heimilisfang og kennitölu) eða í síma 557-5270.
Verð bókarinnar verður 6.980 kr. og greiðist fyrirfram.
F.h. Bókaútgáfunnar Hóla
Guðjón Ingi Eiríksson
holar@holabok.is — www.holabok.is