Morgunblaðið - 31.03.2016, Blaðsíða 54

Morgunblaðið - 31.03.2016, Blaðsíða 54
54 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. MARS 2016 Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Htin Kyaw, náinn aðstoðarmaður baráttukonunnar Aung San Suu Kyi, tók í gær við embætti forseta Búrma (eða Myanmar). Lauk þar með endanlega hálfrar aldar valda- tíð hersins í landinu. Kyaw sagði að sitt fyrsta verk yrði að standa að umbótum á stjórnarskrá landsins, sem herinn kom á, en samkvæmt henni var Suu Kyi meinað að gegna forsetaembættinu. Suu Kyi, sem er sjötug, lýsti því yfir að hún mundi þrátt fyrir það leiða ríkisstjórn landsins í gegnum Kyaw, en hún varð heimsfræg fyrir baráttu sína fyrir auknu lýðræði í Búrma, þegar hún mátti meðal ann- ars sitja í stofufangelsi í nærri því tvo áratugi. Suu Kyi hlaut friðar- verðlaun Nóbels fyrir baráttu sína árið 1991. Ærin verkefni bíða Valdaskiptin koma í kjölfar þess að flokkur Suu Kyi, Þjóðarbandalag um lýðræði (NLD), vann stórsigur í þingkosningum sem haldnar voru í nóvember síðastliðnum, þar sem hann fékk um 80% greiddra at- kvæða. Kosningarnar voru liður í umbótum Thein Sein, síðasta forseta herforingjastjórnarinnar. Þrátt fyrir velgengni Þjóðar- bandalagsins hefur herinn enn mikil ítök í samfélagi Búrma, og eiga fulltrúar hans um fjórðung þing- sæta. Þjóðarbandalagið tekur hins veg- ar við erfiðu búi úr höndum hersins, þar sem efnahagurinn hefur mátt láta á sjá á síðustu árum, auk þess sem fátækt er algeng. Þá ríkir spenna milli þjóðarbrota í landinu og hafa blossið upp skærur í sumum landamærahéruðum landsins. Jákvæð viðbrögð erlendis Valdatöku Kyaw var fagnað víða um heim og sendu þjóðarleiðtogar honum og Aung San Suu Kyi heilla- óskir. Barack Obama, Bandaríkja- forseti, sagði að stundin væri einstök í sögu Búrma. „Embættistaka Htin Kyaw markar söguleg tímamót á vegferð landsins í átt að lýðræðis- og borgaralegri stjórnskipan,“ sagði forsetinn í fréttatilkynningu frá Hvíta húsinu. Þá sendi Evrópusambandið sömu- leiðis heillaóskir sínar og sagði að umbætur síðustu ára hefðu verið undraverðar. Stíga þyrfti þó stór skref til þess að tryggja lýðræðið í sessi. Nýtt tímabil hafið í sögu Búrma  Htin Kyaw sór embættiseið forseta  Hálfrar aldar einræði á enda AFP Söguleg tímamót Htin Kyaw (þriðji frá vinstri) sver embættiseið sinn sem forseti Búrma ásamt Myint Swe and Henry Van Thio, varaforsetum. Rússland heldur úti „skugga- ríkisstjórn“ undir stjórn FSB leyni- þjónustunnar í austurhluta Úkraínu þar sem uppreisnarmenn ráða ríkj- um. Þetta kemur fram í ítarlegri fréttaskýringu þýska dagblaðsins Bild, sem byggðist á minnisblöðum frá rússneskum embættismönnum. Sagði í frétt blaðsins að grunn- þáttum í borgunum Donetsk og Lugansk væri stýrt af sex mismun- andi stýrihópum með fulltrúum úr fimm ráðuneytum. Þetta stangast á við fyrri yfirlýsingar Rússa, sem hafa hafnað því að þeir hafi nokkur ítök meðal aðskilnaðarsinna. Stjórna Rússar bak við tjöldin? ÚKRAÍNA Hryðjuverka- mennirnir sem gerðu sprengju- árás á flugvöll og neðanjarðarlest- arpall í Brussel í síðustu viku leit- uðu einnig upp- lýsinga um stað- setningu heimilis og skrifstofu belgíska forsætisráðherrans, Char- les Michel, í aðdraganda árásanna. Þetta kemur fram á vef BBC. Upplýsingarnar fundust á tölvu sem hent hafði verið í ruslið eftir árásirnar. Óstaðfestar heimildir herma að þar hafi einnig fundist teikningar af skrifstofunni. Einnig fundust hinstu skilaboð eins árás- armannsins. Charles Michel BELGÍA Leituðu að húsi forsætisráðherra Francois Hol- lande, forseti Frakklands, hef- ur hætt við áform sín um að breyta stjórnar- skrá landsins til að heimilt sé að svipta dæmda hryðjuverka- menn frönskum ríkisborgararétti sínum. Þetta kom fram á vef BBC í gær. „Málamiðlun virðist ekki vera í sjónmáli,“ sagði Hollandi eftir að báðar deildir franska þingsins höfnuðu stjórnarskrár- breytingunni. Lagði hann tillöguna fram á þinginu í kjölfar hryðjuverkaárás- anna á París síðastliðinn nóvember sem urðu 130 manns að bana. Mik- il andstaða reis gegn tillögunni og fór þar dómsmálaráðherra lands- ins, Christiane Taubira, fremst í fylkingu. „Ég hef tekið eftir því að stjórn- arandstaðan hefur verið á móti öll- um breytingum á stjórnarskránni,“ sagði Hollande eftir ríkisstjórnar- fund í gær. „Ég harma hegðun þeirra því við þurfum að gera allt sem við getum í þessum að- stæðum.“ Nicolas Sarkozy, leiðtogi stjórnarandstöðunnar, sagði hins vegar forystu Hollande vera um að kenna. laufey@mbl.is Ekki sviptir ríkisborg- ararétti  Hafna stjórnar- skrárbreytingu Francois Hollande Donald Trump, sem sækist eftir útnefningu Repúblikanaflokksins í komandi forsetakosningum í Bandaríkjunum, hefur dregið til baka loforð sitt um að styðja hvern þann frambjóðanda flokksins sem ber sigur úr býtum í forkosning- unum sem lýkur í sumar. Hann mun því aðeins styðja sjálfan sig. Þetta segir á fréttavef BBC. Mótherjar Trumps, Ted Cruz og John Kasich, neituðu í kjölfarið að svara hvort þeir myndu sameina krafta sína að baki endanlegum frambjóðanda. Allir frambjóðendur flokksins skrifuðu hins vegar undir yfirlýs- ingu síðastliðinn nóvember þar sem þeir lofuðu stuðningi sínum. Dró blaðamann niður Þá hefur Trump einnig staðið í ströngu við að verja kosninga- stjóra sinn í fjölmiðlum en sá síðarnefndi var ákærður í fyrradag fyrir líkamsárás. Á hann að hafa togað blaðamann niður á jörðina á blaðamannafundi í Flórída þegar hún hugðist spyrja Trump spurn- ingar. „Hann er góður maður og örygg- isupptökurnar skera endanlega úr um þetta,“ sagði hann og bætti við að þar væri ekkert sjáanlegt sem varpaði sök á Lewandowski. Stutt er einnig síðan ríkisstjóri Wisconsin studdi Cruz en vika er í forkosningar í ríkinu. Er því ljóst samkvæmt BBC að Trump á undir högg að sækja þótt hann haldi enn forskoti sínu á aðra frambjóðend- ur. laufey@mbl.is Trump hyggst aðeins styðja sjálfan sig til forseta  Kosningastjóri Trumps ákærður fyrir líkamsárás AFP Trump Frambjóðandinn stendur í ströngu við að verja kosningastjóra sinn sem hefur verið ákærður. Hann hefur ákveðið að styðja aðeins sjálfan sig. Mynd af Ben Innes, brosandi við hliðina á flugræningja Egypt Air- farþegavélarinnar þar sem hann er með sprengjubelti um sig miðjan, vakti mikla athygli í gær. Innes segir í viðtali við götublaðið Sun að hann hafi verið að reyna að sjá sprengjubeltið betur, auk þess sem hann hafi viljað „taka mótlæt- inu fagnandi“. Myndin var tekin á meðan viðræður við flugræningjann stóðu yfir á Larnca-flugvellinum á Kýpur í fimm klukkustundir. Yfirvöld í Kýpur hafa fært flug- ræningjann í fangelsi en hann sagð- ist hafa verið örvilnaður og viljað sjá fyrrverandi konu sína og börn. Ránið tengdist því ekki hryðjuverk- um. Eftir að flugræninginn var handsamaður í fyrradag sló forseti Kýpur á létta strengi aðspurður hvort ránið hefði verið vegna konu. „Það er alltaf kona,“ sagði hann hlæjandi. Farþegi fékk mynd af sér með flugræningja Egypt Air www.smarativoli.is / Sími 534 1900 / Smáralind SKEMMTUN FYRIR ALLA! ER AFMÆLI FRAMUNDAN? VERÐ FRÁ 1.99 0,- Svissnesku rakatækin Rakatæki íshúsið S:566 6000 ∑ Smiðjuvegur 4a, græn gata, 200 Kópavogur Er loftið á skrifstofunni heilsuspillandi þurrt?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.