Morgunblaðið - 31.03.2016, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 31.03.2016, Blaðsíða 50
Konur og börn eru í miklum meirihluta suður- súdönsku flóttamannanna sem fylla móttöku- búðirnar í Adjumani-héraði í Úganda. Skýringin er einföld: Karlmennirnir eru annaðhvort dánir eða að berjast í borgarastyrjöldinni, margir gegn vilja sínum. Ekki er útilokað að jafnmargir hafi fallið í Suður-Súdan síðustu tvö ár og í stríðinu í Sýrlandi. Það er ómögulegt að áætla fjölda látinna, lík eru étin jafnóðum af hýenum og krókódílum. Margir hafa einnig soltið í hel eða dáið úr sjúkdómum. Það er sömuleiðis ómögulegt að vita fjölda þeirra stúlkna og kvenna sem hefur verið nauðgað í þessum grimmilegustu þjóðernishreinsunum síðari ára. AF VETTVANGI Texti: Sunna Ósk Logadóttir Myndir: Kristín Heiða Kristinsdóttir Rykið frá gulrauðu moldinni þyrlast upp. Það er þó mun minna en í gær og síðustu mánuði þegar ekkert rigndi. Í nótt opnuðust himnarnir loks og vöknuðu þúsundir flótta- manna frá Suður-Súdan upp við þrumur og eldingar í Úganda. Og kærkomið var þetta steypiregn. Allt er hreinna og ferskara. Nema hug- urinn sem ótal flóknar hugsanir fara nú í gegnum. Þeir eru komnir í nýtt land, burt frá stríði, vonleysi, þurrk- um og uppskerubresti. En hvað bíður þeirra? Er hann á lífi? „Ég kom hingað vegna barnanna,“ segir Helen Minga, 35 ára 11 barna móðir, og strýkur þriggja mánaða dóttur sinni, Achan, mjúklega um kollinn á meðan hún sýgur brjóstið. Hún fær þó ekki dropa af næringu þaðan í augnablikinu. Á ýmsu hefur gengið í lífi Helen og nú hefur hún misst mjólkina. „Maðurinn minn var dreginn að víglínunni, ég átti enga peninga til að framfleyta börnunum. Ég varð að fara.“ Barnahópurinn er stór og það hef- ur ekki verið auðvelt að koma honum öllum yfir landamærin. En það tókst Helen. Nú situr hún í tjaldi í Úganda, langt frá heimkynnum sínum. Henni við hlið eru tveir ungir synir hennar með tvíburabróður Achan, Opio litla, í fanginu. „Ég á ekki von á að eigin- maður minn komi hingað. Ég hef ekki séð hann frá því áður en tvíburarnir fæddust. Ég veit ekki hvort ég sé hann aftur. Ég veit það eitt að hann var fluttur á vígstöðvarnar. Er hann enn á lífi? Ég veit það ekki.“ Helen segir stríðið hafa haft áhrif á allt og alla í Suður-Súdan. Innviðir landsins eru bókstaflega í molum, hvort sem horft er til heilbrigðis- þjónustu, skólakerfisins eða sam- gangna og fjarskipta. Nú hafa svo sögulegir þurrkar, sem taldir eru or- sakast af loftslagsbreytingum, bætt enn á neyð fólksins. Um tvær millj- ónir hafa flúið heimili sín og mun fleiri eiga á hættu að svelta í hel. Tæp milljón manna hefur því flúið til ná- grannalandanna, flestir til Úganda. Þangað hefur fólkið ekki komist án þess að klofa yfir beinagrindur og rotnandi lík fórnarlamba stríðsins. Slíkur er viðbjóðurinn. Eins og svart og hvítt Þetta fólk á litla von um að fá hæli í Evrópu. Það hefur flúið örbirgð en þarf nú að búa við fátækt í landi sem tekur vel á móti flóttamönnum en hefur ekki upp á mörg tækifæri til betra lífs að bjóða. Að vera flóttamað- ur þýðir nefnilega ekki það sama alls staðar í heiminum. Kjör þeirra eru misjöfn, eins og svart og hvítt. „Ég var hræddur. Ég er enn hræddur. Ég veit ekkert hvar fjöl- skyldan mín er,“ segir Nash Juma, 23 ára. Hann kom til Úganda í febrúar. Nú bíður hann í móttökubúðunum í Adjumani-héraði þar sem flóttamenn eru skráðir og heilsufar þeirra skoð- að. „Mamma og pabbi, – ég veit ekki hvar þau eru,“ segir hann. Hann ótt- ast nú að þau séu látin. Það er ekki ólíklegt. Sameinuðu þjóðirnar segja að frá því að borgarastyrjöldin hófst í þessu yngsta ríki heims í desember árið 2013 hafi að minnsta kosti 50 þúsund fallið en mannúðarsamtök sem þar starfa segja töluna mun hærri, jafnvel á pari við það sem átt hefur sér stað í Sýrlandi. Í heimalandinu hafði Nash reynt að ganga í skóla. Það er hans stærsti draumur að halda því áfram. En hann er langt á eftir í náminu og veit ekki hverjir möguleikar hans í Úganda Flýja grimmd og leita vonar Börn á flótta Mörg hundruð börn dvelja í móttökubúðum í Úganda á degi hverjum. UNICEF gengur mjög illa að safna fé til að sinna neyðarhjálp í heimalandi þeirra, Suður-Súdan. 50 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. MARS 2016 Gleymda stríðið í Suður-Súdan 5 milljónir barna í Suður-Súdan finna fyrir áhrifum borgarastríðsins 7.300 börn hafa misst foreldra sína eða orðið viðskila við þá 166.000 börn í landinu eru vannærð 16 þúsund börn hafa verið þvinguð til að taka þátt í stríðsátökunum » Tækni í þína þágu hitataekni.is Bjóðum upp á fjölbreyttan búnað svo sem loftræsingar, hitakerfi, kælikerfi, rakakerfi sem og stjórnbúnað og stýringar. Smiðjuvegur 10, 200 Kópavogur - Sími 588 60 70 - hitataekni@hitataekni.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.