Morgunblaðið - 31.03.2016, Blaðsíða 23
FRÉTTIR 23Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. MARS 2016
SAMFOK – samtök foreldra
grunnskólabarna í Reykjavík –
bjóða 10. bekkingum og for-
eldrum þeirra til fundar um inn-
töku nýnema í framhaldsskóla nú
í haust.
Fundurinn verður í Mennta-
skólanum við Hamrahlíð í kvöld,
fimmtudaginn 31. mars
kl. 19.30-22.00.
Í vor munu grunnskólanem-
endur í fyrsta sinn útskrifast
samkvæmt nýjum hæfniviðmið-
unum og einkunnakvarðanum
A-D og á sama tíma eiga allir
framhaldsskólar að bjóða nem-
endum upp á þriggja ára nám til
stúdentsprófs.
Á opnum fundi með nemendum
og foreldrum verða flutt stutt er-
indi og síðan gefinn góður tími til
umræðna. Tveir nemendur flytja
erindi sem og stjórnendur tveggja
framhaldsskóla. Sömuleiðis talar
sérfræðingur hjá Menntamála-
stofnun. Fulltrúar allra fram-
haldsskóla á höfuðborgarsvæðinu
hafa boðað komu sína í pallborð.
Fundarstjóri verður Brynhildur
Sigurðardóttir, skólastjóri í
Garðaskóla.
Fundur
um inntöku
nýnema
Framhaldsskóla-
kynning í MH í kvöld
Morgunblaðið/Golli
Eitt af páskatilboðum Grillbúð-
arinnar hljóðaði upp á sex brenn-
ara Landmann-grill sem kostaði
299.900 krónur. Tvö grill voru á
tilboðinu og seldust fljótt, að sögn
Einars Long, framkvæmdastjóra
Grillbúðarinnar. Grillið er kallað
útieldhús, með granítborðplötu og
innbyggðu kæliboxi.
„Við vorum að losa út eldra
módel af þessu grilli, það vildu svo
margir nýju týpuna af því að við
losuðum það út og lækkuðum
verðið. Við seljum töluvert af grill-
um sem kosta 250 til 300 þúsund
þótt mest sé selt af grillum sem
kosta 90 til 100 þúsund.“
Einar segist finna fyrir tölu-
verðri aukningu í seldum grillum
sem séu dýrari og vandaðri. Með
réttum útbúnaði getur grillið orðið
eign til margra ára sem einnig er
hægt að nota að vetri til.
„Þetta eru flottari grill með ljós-
um, granítborðplötum og öllum
pakkanum og oftar en ekki er
maturinn betri sé hann eldaður í
slíkum grillum. Það eru ákveðnir
eiginleikar í þeim sem geta gert
matinn betri. Margir smíða í
kringum þessi grill og gera
huggulegt. Það eru mismunandi
áhugamál hjá fólki,“ segir hann og
hlær.
Það er ekki bara hægt að kaupa
rándýr grill í Grillbúðinni heldur
er búðin einnig með ódýrari.
„Við erum með fá merki en góð.
Grillið þarf að þola íslenska veðr-
áttu og svo skiptir máli að það séu
til varahlutir í þau. Landman, sem
er okkar innflytjandi, er 50 ára í
ár og mörg flott grill frá þeim fyr-
ir sumarið.“
benedikt@mbl.is
Grill og gott læri í góðæri
Morgunblaðið/Eggert
Grillari Einar Long seldi tvö grill um páskana á rúmlega 300 þúsund kr. stykkið.
Mikið selt af dýrum grillum fyrir sumarið
Runninn er út
umsóknarfrestur
um stöðu skóla-
stjóra Melaskóla
í Reykjavík.
Umsækjendur
voru tólf:
Ásdís Elva
Pétursdóttir,
Björgvin Þór
Þórhallsson, El-
ísabet Jóns-
dóttir,
Guðrún Þorbjörg Björnsdóttir,
Helga Jóna Pálmadóttir, Íris
Anna Steinarrsdóttir, Kristín Jó-
hannsdóttir, Lind Völundardóttir,
Róbert Grétar Gunnarsson, Sig-
urður Arnar Sigurðsson, Sigríður
Sigurðardóttir og Sveinn Bjarki
Tómasson.
Fráfarandi skólastjóri er Dagný
Annasdóttir. Hún sagði stöðunni
lausri í lok janúar sl.
Melaskóli
Tólf vilja stýra
Melaskólanum