Morgunblaðið - 31.03.2016, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 31.03.2016, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. MARS 2016 Fallegt var um að litast í Borgarfirðinum þegar ljósmyndari Morgunblaðs- ins átti þar leið um eitt síðdegið. Við heiðskíran himininn bar hest sem spókaði sig um í blíðviðrinu. Vorið er framundan og veðurspáin góð. Morgunblaðið/Eggert Vorlegt um að litast Hestur í sólsetrinu í Borgarfirði HB Grandi hf. hefur ákveðið að hætta við þátt- töku í árlegri al- þjóðlegri sjávar- útvegssýningu sem haldin verð- ur í Brussel dag- ana 26.-28. apríl næstkomandi. Tvö minni fyrir- tæki sem ætluðu að vera með í samflotinu á þjóðarbásnum hafa hætt við þátttöku og einhver fyrir- tæki hafa ákveðið að senda færra fólk út. Ástæðan er í öllum tilvikum áhyggjur af öryggi starfsfólks í kjöl- far hryðjuverkaárása í borginni. Áætlað var að senda 27 starfs- menn HB Granda á sýninguna, en „að vel ígrunduðu máli telja stjórn- endur félagsins ekki forsvaranlegt að senda starfsmenn til Brussel að þessu sinni þar sem óvíst er hvort hægt verði að tryggja öryggi þeirra með viðunandi hætti eftir nýlegar hryðjuverkaárásir í borginni“, segir á heimasíðu HB Granda. Sérstök öryggisgæsla HB Grandi hefur verið eitt af stærri íslensku sjávarútvegsfyrir- tækjunum á sýningunni og segir Berglind Steindórsdóttir, sýning- arstjóri hjá Íslandsstofu, slæmt að missa það út. Hún kannast við um- ræður innan fleiri fyrirtækja, hér og erlendis, um öryggi starfsfólks. Hún veit þó ekki til þess að fleiri stórir ís- lenskir sýnendur hafi hætt við. Það komi í ljós á næstu dögum. Margir óttast að fáir gestir sæki sýninguna. Stjórnendur sýning- arinnar hafa tilkynnt sérstakar ör- yggisráðstafanir í samvinnu við borgaryfirvöld. Þá er verið að skipu- leggja rútuferðir því vitað er að margir fulltrúar sýnenda og gestir vilja ekki nota almennings- samgöngur við núverandi aðstæður. Hætta við þátttöku í sýningu  HB Grandi sendir ekki fólk til Brussel Vinna HB Grandi framleiðir afurðir til útflutnings. Ingveldur Geirsdóttir ingveldur@mbl.is Verkefnum lögreglunnar sem varða útigangsmenn fer frekar fækkandi eftir að Reykjavíkurborg tók upp aðra stefnu varðandi þjónustu við þá. Þetta segir Jóhann Karl Þór- isson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá Lögreglu höfuðborgarsvæðisins. Eins og fram kom í Morgun- blaðinu í gær halda utangarðsmenn í misjöfnu ástandi orðið mikið til á Kaffistofu Samhjálpar yfir daginn svo starfsfólkinu þar stendur ekki orðið á sama. Jóhann Karl segir að lögreglan sé stundum kölluð að Kaffistofunni en eins og er séu mál- efni útigangsmanna ekki íþyngjandi fyrir lögregluna. „Eftir að borgin lengdi afgreiðslu- tíma gistiskýlisins sjáum við minna af þeim í fangaklefum hjá okkur. Við förum yfirleitt beint með þá í gisti- skýlið. Borgin stendur sig mjög vel og við vinnum þetta vel saman,“ seg- ir Jóhann Karl. Lifir ekki frítt Því hefur heyrst fleygt að það sé of gott að vera útigangsmaður í Reykjavík og því sé erfitt að fækka í hópi þeirra. Þeir fái mat og húsa- skjól og svo örorkubætur eða fjár- hagsaðstoð sem þeir geta drukkið óskert fyrir. Sigþrúður Arnardóttir, framkvæmdastjóri þjónustu- miðstöðvar Miðborgar og Hlíða, segir að það sé ekki hægt að segja að fólk geti lifað hér frítt en það sé alltaf til hópur sem hefur ekki tæki- færi til að nýta fé sitt öðruvísi en til neyslu eða annars út af veikindum. „Ef fólk er húsnæðislaust hrakar því mjög hratt og færnin til að bjarga sér hverfur. Þetta er staða sem er mjög erfitt að komast upp úr en við erum að reyna að koma til móts við viðkomandi með stuðningi og að tryggja þeim húsnæði. En okkur vantar fleiri búsetuúrræði fyrir þennan hóp.“ Reykjavíkurborg stendur ein undir rekstri þjónustu við útigangs- fólk með t.d. styrkjum til Sam- hjálpar og Hjálpræðishersins auk þess að reka önnur úrræði. Úti- gangsmenn í borginni koma víða að en önnur sveitarfélög hafa ekki tek- ið þátt í kostnaði við þessa þjónustu, þá kemur ríkið að málefnum úti- gangsfólks í gegnum heilbrigð- isþjónustu og lögregluaðstoð. Yfirfullt gistiskýli Yfirfullt hefur verið í gistiskýlinu við Lindargötu hverja nótt frá því í fyrravor. „Við erum með 25 rúm en það hafa verið að jafnaði 28 til 29 menn sem hafa gist hér. Þetta hefur verið nýtt að fullu,“ segir Sveinn Allan Morthens, umsjónarmaður gistiskýlisins, en það er fyrir heimilislausa karlmenn í Reykjavík. Hann hefur ekki á tilfinningunni að það sé að fjölga í hópi útigangs- manna. Þeir sem sækja í gistiskýlið eru á aldrinum 25 til 75 ára, til helminga íslenskir og útlenskir, og eiga oftast við vímuefnavanda að stríða að sögn Sveins, þeir sömu komi oftast nótt eftir nótt. Gistiskýlið er opið allan sólarhringinn en meginstarfsemin er frá kl. 17 til kl. 10 næsta dag. „Það þarf að þrífa vel á hverjum degi og þvo af öllum rúmum. Við nýtum daginn í það en getum tekið í 10 rúm yfir hádaginn.“ Ekki íþyngjandi fyrir lögregluna  Útigangsmenn sjaldséðari sjón í fangaklefum  Fara beint í gistiskýlið Morgunblaðið/Jakob Fannar Austurvöllur Heimilislausir á bekk. „Við þekkjum dæmi þess að fólk þurfi sjálft að bera mik- inn kostnað, t.d. vegna krabbameinsmeðferðar. Því verð- ur að breyta og ráðamenn hafa skilning á því. Möskvarnir í neti velferðarkerfsins þurfa stundum að vera þrengri, svo öryggi fólks sé betur tryggt,“ seg- ir Kristján Oddsson, framkvæmda- stjóri Krabbameinsfélags Íslands. Afsláttarreglur eru götóttar Á sl. 30 árum hefur kostnaðarþátt- taka sjúklinga tvöfaldast og nú standa standa heimilin undir um 20% af öllum heilbrigðisútgjöldum með beinum greiðslum. Þessi kostnaður almenn- ings hefur aukist meira en það sem hið opinbera leggur til heilbrigðisþjón- ustu. Þetta er niðurstaðan í skýrslu sem unnin var á veg- um ASÍ og kynnt var í gær og ber yfirskriftina Kostn- aður sjúklinga vegna heilbrigðisþjónustu. Þar segir að auknum, beinum útgjöldum sjúklinga vegna heilbrigðisþjónustu fylgi sú hætta að fólk veigri sér við að leita þjónustu. Slíkt skapi hættu á misskipt- ingu. Þá er í skýrslu ASÍ sagt að ýmsar gildandi afslátt- arreglur séu götóttar. „Almennt eru sjúklingar því illa varðir fyrir háum út- gjöldum vegna veikinda,“ segir í skýrslu ASÍ. Þar er gerð að umfjöllunarefni saga konu sem greindist fyrir þremur árum með krabbamein, sem hafi kallað á langvinna lyfja- meðferð og rannsóknir þrisvar til fjórum sinnum í mán- uði. Heildarkostnaður hennar vegna meðferðar frá 2013 er nú orðin hálf milljón króna. Í skýrslunni er óhófleg gjaldtaka sögð geta takmarkað aðgengi, einkum tekjulægra fólks, og leitt til þess að nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu sé sleppt vegna mikils kostnaðar. „Nýtt boðað greiðsluþátttökukerfi þarf að taka á þessum vanköntum ef íslenskt heilbrigðiskerfi á í reynd að standa öllum opið,“ segir ASÍ. Erfið fyrir ungt fólk Kristján Oddsson segir að fólk sem veikist af krabba- meini hafi oft miklar fjárhagsáhyggjur. „Þetta er erfitt, til dæmis þegar á í hlut ungt fólk með börn og hefur þungar skuldbindingar á bakinu. Nýtt greiðsluþátttöku- kerfi sem heilbrigðisráðherra boðar nær vonandi utan um þetta,“ segir Kristján. sbs@mbl.is Sjúklingar illa varðir fyrir háum útgjöldum  Heilbrigðisþjónusta kostar almenning æ meira, segir ASÍ „Dæmin um fólk sem lendir í þeim gildrum að þurfa sjálft að greiða há- ar upphæðir fyrir heilbrigðisþjón- ustu eru sláandi,“ segir Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra. Hann væntir þess að geta í vikunni kynnt fyrir þingflokki sjálfstæðismanna nýtt greiðsluþátttökukerfi sem á að mæta fólki sem lendir í miklum kostnaði ef það þarf heilbrigðisþjón- ustu. Er meginlínan þá sú að fólk greiðir ákveðna grunnupphæð sjálft en ríkið borgar hitt. Dæmin eru sláandi GREIÐSLUÞÁTTTÖKUKERFI KYNNT Í VIKUNNI Kristján Þór Júlíusson Kristján Oddsson Bókaðu núna á baendaferdir.is Sími 570 2790 bokun@baendaferdir.is Síðumúla 2, 108 Reykjavík Glæsileg vikuferð þar sem við kynnumst mannlífi og merkri sögu dvergríkisins Andorra, töfrum Barcelona og klettabæjarins Tossa de Mar á Costa Brava. Upplifðu einstaka fjallafegurð Pýreneafjallanna, töfrandi bæi og afslappað strandlíf í einni ferð. Verð: 169.900 kr. á mann í tvíbýli. Mjög mikið innifalið! Sp ör eh f. Fararstjóri: Soffía Halldórsdóttir 27. ágúst - 3. september DvergríkiðAndorra&Spánn Sumar 16
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.