Morgunblaðið - 31.03.2016, Page 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. MARS 2016
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Eignir í skattaskjólum samrýmast
ekki trúnaðarstörfum fyrir flokkinn
og það gildir um alla. Ef önnur nöfn
koma fram gildir það um þau líka,“
segir Árni Páll Árnason, formaður
Samfylkingar. Í gær greindi Vil-
hjálmur Þorsteinsson, gjaldkeri
flokksins, frá því að hann ætti félag í
Lúxemborg en landið hefur gjarnan
verið skilgreint sem skattaskjól. Til-
vist félagsins segir Vilhjálmur aldrei
hafa verið leyndarmál og af tekjum
þess hafi verið greiddir skattar og
annað sem ber. Að félagið sé skráð
ytra helgist þó ekki af skattamálum,
heldur að allar aðstæður í Lúxem-
borg séu hagfelldari og áhættuminni
en hér, með tilliti til efnahags- og
stjórnmála.
Vilhjálmur svari sjálfur
Árni Páll Árnason segir að Vil-
hjálmur verði að svara sjálfur fyrir
eign sína á aflandsfélaginu í Lúxem-
borg. Meginmálið sé þó að ytra
greiði félagið sína skatta og mál því
viðvíkjandi séu á þurru. Þeir sem
leita í skattaskjólin verði í öllu falli
að skýra málavöxtu og úr því Vil-
hjálmur hafi sagt frá aflandsfélagi
sínu verði málið sennilega ekki rætt
frekar á vettvangi Samfylkingar.
Hins vegar séu enn að berast ítar-
legri frásagnir af eignarfélögum ráð-
herra sem skráð séu í útlöndum og
því sé heildarmynd þessara mála enn
ekki orðin lýðum ljós.
„Þetta eru upplýsingar sem var
haldið frá kjósendum í aðdraganda
síðustu kosninga og skiptir máli að
fólk hafi fyrir framan sig,“ segir Árni
Páll við mbl.is.
Svari fyrir skattaskjólin
Vilhjálmur á félag í Lúxemborg Skattar eru greiddir
Skjól samræmast ekki störfum fyrir Samfylkinguna
Vilhjálmur
Þorsteinsson
Árni Páll
Árnason
Vilhjálmur A. Kjartansson
Lára Halla Sigurðardóttir
Sunna Sæmundsdóttir
Ýmsar ástæður geta verið fyrir
stofnun félaga í skattaskjólum án
þess að um skattasniðgöngu sé að
ræða eða tilraun til að fela eignar-
hald, að sögn Stefán Más Stefáns-
sonar, prófessors við lagadeild Há-
skóla Íslands.
„Mjög oft eru menn með eignar-
hald í svona félagi til að ná skattaleg-
um árangri en það verður jafnframt
að taka það fram að slíkt er ekki
ólöglegt. Þú mátt í þínum fjárhags-
legu ráðstöfunum nota allar ráðstaf-
anir sem skila árangri ef það er lög-
um samkvæmt.“
Ekki má rugla alþjóðlegri skatta-
sniðgöngu, sem skilgreind er sem
viðleitni skattaðila til að öðlast
skattalegt hagræði með því að hag-
nýta sér skattalöggjöfina á þann hátt
að hann öðlist hagræði sem ekki hafi
verið gert ráð fyrir í löggjöfinni, sam-
an við lögmæta skattafyrirhyggju.
Þá bendir Stefán á að viðskipta-
legar forsendur manna til að stofna
félög á lágskattasvæðum geti verið
margvíslegar og slíkt þurfi hvorki að
vera óeðlilegt né ólöglegt.
Hefði mátt vita af félaginu
Bjarni Benediktsson, fjármála- og
efnahagsráðherra, skýrði frá því við
mbl.is í gær að félag sem hann hefði
átt þriðjungshlut í og skráð var á
Seychelles-eyjum, og gefið hefði ver-
ið upp sem félag í Lúxemborg, hefði
fyrst og fremst verið hugsað til fjár-
festingar.
„Það sem ég hef sagt frá er að
þarna var um að ræða kaup á fast-
eign í Dubai. Áður en ég kem að mál-
inu hafði verið komið upp félagi. Ég
kom ekki að stofnun félagsins og
augu mín voru fyrst á fjárfestingunni
sem slíkri, ekki kannski á þessu fyr-
irkomulagi sem hafði verið ákveðið
áður en ég kom að málinu. Þetta er
bara þannig en kaupin á félaginu, jú,
komu fram á minni skattskýrslu,“
sagði Bjarni við mbl.is en hann
skýrði einnig frá því á Face-
book-vegg sínum að hann hefði stað-
ið í þeirri trú að félagið, Falson &
Co., ætti varnarþing í Lúxemborg og
því skráð þar sem slíkt félag en mis-
skilningurinn hefði ekki áhrif í
skattalegu samhengi.
Vala Valtýsdóttir hjá Deloitte
sagðist í samtali við mbl.is telja afar
ólíklegt að það gæti farið framhjá
mönnum hvar félag í þeirra eigu væri
skráð. Hún benti á að eigendur skrif-
uðu í raun undir stofngögn og síðan
fengju þeir almennt reglulega upp-
lýsingar um stöðu frá banka eða
þeim sem annaðist eignaumsýslu.
Almannafé í skattaskjóli?
Íslensku lífeyrissjóðirnir eiga í
fjölda fyrirtækja bæði innan og utan
landsteinanna og segir Þórhallur B.
Jósepsson, almannatengill Lífeyr-
issjóðs verslunarmanna, að sjóðurinn
eigi í yfir 3.000 þúsund félögum og
ómögulegt sé að átta sig á því hvort
einhver þeirra eigi eða stundi við-
skipti á lágskattasvæðum.
Samkvæmt heimild Morgunblaðs-
ins er mjög sennilegt að íslenskir líf-
eyrissjóðir ávaxti fé sjóðfélaga sinna
í sjóðum eða fyrirtækjum sem eiga
eða stunda viðskipti í gegnum félög á
lágskattasvæðum. Slík lágmörkun
skatta þýðir þá meira fé til sjóð-
félaga.
Ýmsar ástæður
fyrir félögum í
skattaskjólum
Ekki ólöglegt að reyna að ná skatta-
legum árangri, segir prófessor við HÍ
Kaupþing Bankinn kom mjög við
sögu í Tortólamálum fyrir hrun.
136 félög
» Alls fengu 136 félög, sem
eru skráð til heimilis á Tortóla-
eyju, leyfi til að stunda við-
skipti á Íslandi 2000 til 2008.
» Kaupþing var umboðsaðili
52 þessara félaga. Fékk leyfi
fyrir 23 af þessum 52 félögum
á árinu 2008, þar af 10 síðustu
tvo mánuðina fyrir bankahrun.
Hjörtur J. Guðmundsson
hjortur@mbl.is
„Við teljum í raun og veru að það sé
mjög rík krafa uppi í samfélaginu um
viðbrögð af hálfu þingsins. Ég held að
réttu viðbrögðin séu þau að rjúfa
þing og boða til kosninga,“ segir
Katrín Jakobsdóttir, formaður
Vinstrihreyfingarinnar – græns
framboðs. Stjórnarandstaðan hefur
ákveðið að leggja fram sameiginlega
tillögu um að þing verði rofið og boð-
að til nýrra kosninga.
Rætt er um að leggja tillöguna
fram í næstu viku. Efni hennar er að
öðru leyti óljóst eða óákveðið.
Kalla umboðsmann til
„Við eigum síðan eftir að útfæra í
okkar hópi nákvæmlega hvaða form
þessi tillaga tekur. Hvort þetta verð-
ur vantrauststillaga að hefðbundinni
innri gerð eða einungis tillaga um
þingrof og kosningar,“ segir Árni
Páll Árnason, formaður Samfylking-
arinnar, og bætir við: „Við höfum líka
auðvitað hugsað það með hvaða hætti
við undirbyggjum vantrauststillögu
ef til hennar kemur. Hluti af því er
auðvitað að hefja nú þegar vinnu í
stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd og
óska eftir því að umboðsmaður Al-
þingis komi þangað og fá upplýsingar
hjá honum um það hvað hann telji sig
geta gert eða telur ástæðu til að
gera.“
Árni Páll segir að stjórnarand-
stöðuflokkarnir telji að Alþingi eigi
að fá skýrslu frá þeim ráðherrum
sem tengdir hafa verið umræðunni að
undanförnu um aflandsfélög.
Fordæmalaust ástand
„Stjórnarandstaðan var öll sam-
mála um það að þetta er fordæma-
laust ástand og vantraust í samfélag-
inu sem ekki er hægt að búa við. Það
sem við erum að reyna að gera er að
útfæra hvaða leiðir okkur bjóðast til
þess að bregðast við þessu ástandi,“
segir Óttar Proppé, formaður Bjartr-
ar framtíðar.
Katrín segir um ástæður tillögu-
flutningsins að komnar séu fram upp-
lýsingar um að ákveðnir ráðamenn
tilheyri þeim ríka forréttindahópi
sem geymt hafi fé í erlendum skatta-
skjólum og það sé mjög alvarlegt mál.
Sjálfstæðismenn funda
Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins
fundaði í gærkvöldi. Til stóð að ræða
fjölda stjórnarfrumvarpa sem fyrir
liggja. Einnig var ætlunin að ræða
málefni ráðherra sem tengjast eða
tengst hafa eignarhaldsfélögum í
skattaskjólum.
Morgunblaðið/Golli
Fundað Forystufólk stjórnarandstöðuflokkanna ræddi saman í gær vegna tillögu um vantraust á ríkisstjórnina.
Ekki hægt að búa við
vantraust samfélagsins
Stjórnarandstaðan með tillögu um þingrof og kosningar
Þingflokkur Framsóknarflokks-
ins hefur ákveðið að leggja
fram á Alþingi þingsályktun-
artillögu um að aflétta leynd
af gögnum sem tengjast sam-
skiptum við kröfuhafa föllnu
bankanna. Þar með talið gögn-
um sem urðu til þegar nýju
bankarnir voru afhentir kröfu-
höfum í tíð síðustu rík-
isstjórnar.
Í tillögunni felst meðal ann-
ars að leynd verður aflétt af
þeim gögnum sem geymd eru
í sérstöku gagnaherbergi á
nefndasviði Alþingis og tals-
verð umræða hefur skapast
um. Grundvöllur núverandi
reglna er samþykkt frá síð-
asta kjörtímabili um að gögn-
in yrðu ekki gerð opinber fyrr
en 110 ár verða liðin frá því
þau urðu til.
Leynd aflétt
af gögnum
FRAMSÓKNARFLOKKUR
Aðalfundur Ramma hf. verður haldinn í Höllinni,
Hafnagötu 16, Ólafsfirði, föstudaginn 8. apríl 2016
og hefst fundurinn kl. 15:00.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf skv. 12. gr. samþykkta félagsins.
2. Tillaga um heimild félagsins til að kaupa eigin bréf skv. 55. gr.
laga um hlutafélög.
3. Önnur mál, löglega upp borin.
Ársreikningur félagsins mun ligg ja frammi á skrifstofu félagsins á
Siglufirði viku fyrir aðalfund hluthöfum til sýnis. Aðgöngumiðar og
fundargögn verða afhent á fundarstað á fundardegi.
Siglufirði 9. mars 2016.
Stjórn Ramma hf.
Aðalfundur Ramma hf.