Morgunblaðið - 31.03.2016, Qupperneq 13
Morgunblaðið/Golli
Drag „Það er hægt að gera nánast hvað sem er [í dragi]. Auðvitað er þetta líka smá athyglissýki,“ segir Hjálmar.
þjóðar þegar hann verður kominn
með vinnu.
„Ég var fyrst ekki viss hvernig
mér yrði tekið. Mér var boðið að
koma því klúbburinn þar sem þetta
var haldið vildi halda í þá ímynd að
hann væri „gayfriendly“. Þetta var í
gömlu leikhúsi sem búið var að
breyta í klúbb og þar var allt til alls.
Ég hafði farið þangað nokkrum sinn-
um áður og leist í raun ekkert á fólkið
sem sótti staðinn en ég ákvað samt að
prufa. Það voru 420 manns í salnum
og það varð eiginlega bara allt vit-
laust. Ég bjóst ekki við svona við-
brögðum,“ segir Hjálmar ánægður.
Hann segir gaman að koma fram
í dragi í Svíþjóð og hefur ekki upp-
lifað neina fordóma þar. Því miður sé
ekki hægt að segja sömu sögu hér
heima. „Ég lendi oft í einhverjum for-
dómum hérna heima þegar ég er í
dragi. Þegar ég labba á milli staða í
dragi er oft kallað á mann og ýtt í
mann. Það virðast alltaf vera hel-
massaðir strákar í kringum tvítugt.
Maður þekkir oftast týpurnar sem
maður mun lenda í veseni með,“ segir
Hjálmar. Hann segist hafa lært af
reynslunni og forðast aðstæður eins
og t.d. að vera einn í hliðargötum í
dragi.
Hjálmar ætlar að halda áfram að
koma fram í dragi, jafnvel aftur í Sví-
þjóð, enda þykir honum gaman að
fara í hlutverk og skemmta fólki.
„Það er hægt að gera
nánast hvað sem er.
Auðvitað er þetta líka
smá athyglissýki.“
DAGLEGT LÍF 13
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. MARS 2016
Í dag kl. 16 opnar Kristín Gunnlaugs-
dóttir sýningu í Skúmaskoti, Skóla-
vörðustíg 21. Hún sýnir ný verk unnin
út frá stúdíum um mannslíkamann,
teikningar og bláar vatnslitamyndir.
Sýningin er opin á afgreiðslutíma
verslunarinnar og stendur til 17.
apríl.
Kristín hefur starfað að myndlist
eingöngu sl. áratugi. Sýning hennar í
Listasafni Íslands 2013 vakti mikla
athygli með verkum tengdum tabúi
kynlífs og kvenlægum veruleika.
Skúmaskot er gallerí rekið af 10 lista-
konum og hönnuðum. Kristín er
fyrsti listamaðurinn sem sýnir í litlu
sýningarrými hjá Skúmaskoti sem
hægt verður að leigja í framtíðinni.
Kristín Gunnlaugsdóttir sýnir í Skúmaskoti
Stúdíur um mannslíkamann
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Listakona Kristín Gunnlaugsdóttir
„Okkur fannst vanta eitthvað
skemmtilegt að gerast á hinseg-
insenunni á Íslandi. Hún var orðin
eitthvað svo líflaus og dauð. Við
vildum skapa eitthvert líf með
það í huga að vera með „amatör-
show“ þar sem fólk getur stigið
sín fyrstu skref sem listamenn á
sviði. Fyrst vorum við með þá
hugmynd að halda okkur við hin-
segin fólk en svo viljum við ekki
njörva það niður í það. Þetta er
hinsegin menningarviðburður og
öllum er velkomið að koma fram
og vera með, en drag loðir við
hinsegin,“ segir Hafsteinn himin-
ljómi Sverrisson, einn af skipu-
leggjendum Drag-súgs, en það
eru dragkvöld sem haldin hafa
verið í hverjum mánuði frá því í
nóvember. Á kvöldunum stíga að
jafnaði um tíu manns á svið og
skemmta og kvöldin hafa verið
vel sótt. Síðast var aðsóknarmet
slegið þegar um tvö hundruð
manns mættu. Hafsteinn tekur
fram að alltaf sé verið að leita að
nýju hæfileikaríku fólki til að
koma fram og hvetur fólk til að
koma og vera með. Næsta kvöld
er 22. apríl með þemað „Club
kids freak out“ og eru allir hvatt-
ir til að mæta í brjáluðum bún-
ingi. Drag-súgur fer fram á
Gauknum og í samstarfi við Pink
Iceland.
Ekki bundinn við hinsegin
DRAG-SÚGUR HALDINN NÆST 22. APRÍL
Drag-súgur Það er gleði og stuð á Gauknum á dragkvöldunum.
Lögregluhundurinn sem nefndur er
Choc hlaut heiðursverðlaun
frönsku lögreglunnar nýverið.
Choc, sem er af kyninu Malinois,
belgísku fjárhundakyni, hefur í
störfum sínum fyrir lögregluna
fundið eiturlyf sem eru metin á um
7,5 milljónir evra, um fimmtíu vopn
og bankakvittanir metnar á 1,5
milljónir evra.
Lögreglumaðurinn Eric Tisser-
and, umsjónarmaður Choc, svaraði
spurningum fjölmiðla eftir verð-
launaveitinguna.
Fundvís á eiturlyf og vopn
Afkastamikill lögregluhundur
AFP
Frægur hundur Fjölmiðlar vildu spjalla við hundinn og umsjónarmann.
AÐALFUNDUR
Dagskrá
1. Venjuleg aðalfundarstörf skv. 18. gr. í samþykktum félagsins.
2. Tillaga um heimild til félagsstjórnar um kaup á eigin hlutum
skv. 55. gr. hlutafélagalaga.
3. Önnurmál.
Aðalfundur HBGranda hf. verður haldinn föstudaginn
1. apríl 2016 í matsal félagsins að Norðurgarði 1, 101 Reykjavík
og hefst hann klukkan 17:00. Fundurinn fer fram á íslensku.
Á hluthafafundum fylgir eitt atkvæði
hverri einni krónu í hlutafé. Eigin bréf
félagsins njóta ekki atkvæðisréttar.
Atkvæðaseðlar og fundargögn verða
afhent á fundarstað.
Hluthafar sem ekki eiga kost á að sækja
fundinn geta:
a) veitt öðrum skriflegt umboð.
b) greitt atkvæði skriflega.
Þeim hluthöfum sem hyggjast nýta sér
annan hvorn þessara kosta er bent á að
kynna sér á heimasíðu félagsins hvernig
þeir skuli bera sig að. Þar er að finna
leiðbeiningar um skráningu, form skjala og
hvernig þeim skuli skilað til félagsins.
Aðrar upplýsingar
Dagskrá og öll skjöl sem lögð verða fyrir
aðalfundinn, þ.m.t. ársreikningur félagsins
og tillögur á íslensku, eru hluthöfum tiltæk
á heimasíðu félagsins og á skrifstofu
félagsins á venjulegum skrifstofutíma.
Allar nánari upplýsingar um aðalfundinn er
að finna á vefsíðu félagsins,
www.hbgrandi.is
Stjórn HBGranda hf.
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
G
R
A
78
79
2
03
/1
6