Morgunblaðið - 31.03.2016, Síða 20
20 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. MARS 2016
„Veðrið nú í vetur hefur oft verið
leiðinlegt en ég læt það aldrei
trufla mig neitt,“ segir Gunnlaugur
Hans Stephensen, sem er blaðberi
Morgunblaðsins við nokkrar götur
á Arnarnesinu í Garðabæ. „Ég fer á
fætur upp úr klukkan fimm og arka
af stað með blöðin og það klikkar
eiginlega aldrei að þessi göngutúr
taki eina klukkustund og tíu mín-
útur.“
Það eru tæplega tvö ár síðan
Guðmundur byrjaði í blaðburðinum.
„Ég sá þetta auglýst og ákvað að
slá til. Er í skóla en þarf auðvitað
að hafa einhvern pening og þá er
blaðburðurinn mjög fínt starf. Þetta
hafa oft verið um 40 þúsund á mán-
uði sem ég fæ inn á reikninginn.
Svo er líka mjög þægilegt að göt-
urnar þar sem ég ber út eru alveg í
nágrenni við heimili mitt. Þetta eru
til dæmis Þrenunes, Súlunes og
Teistunes; götur sem eru alveg
nyrst á Arnarnesinu og liggja niður
að Kópavoginum,“ segir Gunn-
laugur sem á góðum degi dreifir
allt að 150 blöðum. Auk Morg-
unblaðsins grípur hann svo stund-
um í útburð á öðru því sem Árvak-
ur sér um útburð á – og má þar til
dæmis nefna Fréttatímann, DV,
tímarit Birtings og fleira.
„Þetta er hressilegur göngutúr
að morgni dags og ágætur pen-
ingur. Fólk ætti að grípa svona
vinnu og tækifæri þegar það gefst,“
segir Guðmundur blaðberi að síð-
ustu. sbs@mbl.is
Veðrið truflar mig aldrei
Blaðberinn á Arnarnesi byrjar daginn á góðum göngutúr
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Garðbæingur Fólk ætti að grípa svona vinnu og tækifæri þegar það gefst,“
segir Guðmundur sem hefur borið út Morgunblaðið í um það bil tvö ár.
Guðmundur Magnússon
gudmundur@mbl.is
Jafnvirði um 70 milljóna íslenskra
króna fékkst fyrir safn íslenskra frí-
merkja sem erfingjar Indriða heit-
ins Pálssonar forstjóra létu bjóða
upp í Malmö í Svíþjóð. Upphæðin er
mun hærri en búist hafði verið við
þegar haft er í huga að um 40%
safnsins eru enn óseld og verða boð-
in upp í haust.
Steinar Friðþórsson hjá uppboðs-
húsinu Postiljonen í Malmö, sem
seldi frímerkin, segir að ánægjulegt
hafi verið að fylgjast með því hve
mikill áhugi var á frímerkjasafni
Indriða. Dróst uppboðið talsvert á
langinn vegna þess hve margir buðu
í safnið á staðnum og í síma.
Útlendur kaupandi
Einn aðili mun hafa eignast allt
safn Indriða, en ekki fæst upplýst
hver hann er nema að hann er út-
lendur. Þetta einstaka frímerkjasafn
verður því varðveitt utan Íslands.
Frímerkjasafnið var boðið upp í
um 200 einingum og var hæsta verð-
ið sem fékkst fyrir einstakan hluta
þess 130 þúsund evrur eða 18 millj-
ónir íslenskra króna. Um var að
ræða frímerkt bréf sent frá Djúpa-
vogi til Kaupmannahafnar 11. júní
1874. Á því var 16 skildinga frímerki
og var póstburðargjaldið hærra en
ella vegna þess að annað bréf var
inni í umslaginu. Samkvæmt stimpli
á bakhlið er bréfið móttekið í Kaup-
mannahöfn 26. júní.
Þess má geta að sænski greifinn
Douglas Storckenfeldt á mjög verð-
mætt safn íslenskra frímerkja. Með-
al dýrgripa í safni hans er svonefnt
Biblíubréf, frímerkt umslag frá
1876, sem fannst inni í gamalli biblíu
á Íslandi árið 1972. Það er verðmæt-
asta frímerkjabréf sem til er frá Ís-
landi. Storckenfeldt, sem er sterk-
efnaður, mun hafa sýnt safni Indriða
áhuga.
Eins og fram kom í Morgun-
blaðinu í nóvember í fyrra hafði ekki
verið leitað eftir leyfi Minjastofn-
unar Íslands fyrir útflutningi frí-
merkjasafnsins. Vöknuðu spurn-
ingar um það hvort þar með væri
brotið gegn lögum um útflutning
menningarverðmæta. Eftir samráð
Minjastofnunar og Þjóðskjalasafns
var óskað eftir því að fá rafrænt afrit
af safninu til varðveislu hér heima,
en að öðru leyti verður ekki frekar
aðhafst í málinu.
Í samtali við Morgunblaðið í febr-
úar sögðu tveir af forystumönnum
íslenskra frímerkjasafnara, Sig-
urður Thoroddsen og Hrafn Hall-
grímsson, að safn Indriða ætti heima
á Íslandi og létu í ljósi von um að það
yrði keypt af íslenskum stjórnvöld-
um og varðveitt í frímerkjasafni hér.
Ekki er kunnugt að opinberir aðilar
hér hafi boðið í safnið.
Verðmætt Útlendur frímerkjasafnari greiddi 18 milljónir króna fyrir þetta
16 skildinga bréf sem sent var frá Djúpavogi til Kaupmannahafnar 1874.
70 milljónir fyrir
frímerki Indriða
letra á þá. Taldi hann að fella ætti
innflutning steinanna undir tollflokk
2516 þar sem um væri að ræða óunn-
ið eða óhöggvið efni sem ekki ber
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Pússaðir granítsteinar sem fluttir
eru inn til legsteinagerðar þykja
nægilega mikið unnir til þess að þeir
falli í tollflokk með vörum á borð við
búsáhöld og skrautmuni. Fyrir vikið
þarf innflytjandi granítsteinanna að
greiða 5% toll af 13 vörusendingum
granítsteina á árunum 2012-2014.
Þetta er mat yfirskattanefndar sem
tók málið til skoðunar í kjölfar þess
að innflytjandi granítsteinanna
kærði úrskurð tollstjóra sem hækk-
aði aðflutningsgjöld vegna steinanna
um tæpar þrjár milljónir króna.
Forsaga málsins er sú að kærandi
flutti inn granítblokkir sem búið var
að pússa og nota átti til legsteina-
gerðar. Meðal annars átti eftir að
toll. Voru sendingarnar merktar
þessum tollflokki þegar þær voru
fluttar inn í landið.
Tollstjóri taldi hins vegar að varan
ætti að falla undir tollflokk 6802.9303
sem m.a. er tilgreint að áletraðir leg-
steinar falli undir. Ber hann 5% toll í
formi aðflutningsgjalda.
Féllst kærandinn á að steinarnir
væru pússaðir en að öðru leyti ætti
eftir að vinna þá með áletrunum og
samsetningu.
Í úrskurði yfirskattanefndar er
tekið undir afstöðu tollstjóra um að
krefja kæranda um aðflutningsgjöld
vegna sendinganna, alls 2.801.419 kr.
Segir m.a. að granít, sem hefur verið
pússað og lagað eftir ákveðnum mál-
um til nota sem legsteinn, falli ekki
undir vörulið 2516 þrátt fyrir að það
eigi eftir að vinna steininn frekar.
Tekist á um granítsteina
Innflytjandi þarf að greiða toll af pússuðum legsteinum
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Legsteinar Tekist var á um aðflutn-
ingsgjöld af granítsteinum.
Mama B - Vor 2016
Eikjuvogur 29 - 104 Rvk. S:694-7911
Opið: Mán-fim: 12-18 - fös: 12-16
www.facebook.com/spennandi
Helstu kostir kerranna eru:
• 7 blaða blaðfjaðrir tryggja góða fjöðrun.
• Stórar legur í hjólnáum og 6,50 x 16“ dekk.
• Plast á fjaðraendum dregur úr hávaða.
• Hraðlæsing á afturhlera.
• Öryggislæsing á dráttarkúlu.
• Hluti framhlera opnanlegur sem auðveldar
upprekstur gripa á kerruna.
• Heilsoðinn botnplata við hliðar einfaldar þrif
og eykur styrk kerrana.
Kr.1.489.000
Einnig sturtukerrur,
flatvagnar og vélakerrur!
+
vs
k
Kr. 1.846.360 með vsk.
Gripakerrur
Höfum hafið innflutning á vönduðum breskum
gripakerrum frá framleiðandanum Indespension.
Austurvegur 69 - 800 Selfoss Lónsbakki - 601 Akureyri Sólvangi 5 - 700 Egilsstaðir
Sími 480 0400 jotunn@jotunn.is www.jotunn.is
Ve
rð
og
bú
na
ðu
rb
irt
ur
m
eð
fy
rir
va
ra
um
pr
en
tv
ill
ur
og
/e
ða
m
yn
da
br
en
gl
.