Morgunblaðið - 31.03.2016, Síða 24

Morgunblaðið - 31.03.2016, Síða 24
24 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. MARS 2016 Raunar ná þau systkinin aðeins að halda í slétt þúsund ár í þrjá daga, frá 69 ára afmælisdegi Ólafs í dag, 31. mars, til 4. apríl. „Þá verður hann 75 ára,“ segir Sigurður og bendir á Jóhannes sem glottir við. „Þá verðum við þúsund og eins árs.“ Systkinin eru samheldin og hittast reglulega yfir árið. Þau fagna foreldrum sínum heitnum á afmælisdögum þeirra, fara í úti- legu með börn og buru auk þess sem þau halda jólaball ár hvert. Þegar kemur að slíkum við- burðum, þar sem niðjum þeirra eru einnig boðið með dugir ekkert minna en að leigja sal; þau eiga samtals 35 börn, 47 barnabörn og þrjú á leiðinni, þar af eitt barna- barnabarnabarn Önnu og Karls. Eðli málsins samkvæmt er það aldrei svo að allir sjá sér fært að mæta og raunar gildir það sama um systkinahópinn sjálfan. „Við höfum bara hist öll þrisvar sinnum, systkinin,“ segir Jóhann- es. Blaðamaður hváir við og hann útskýrir að þau hafi aldrei verið öll á heimilinu á sama tíma. Þau hafi komið saman við ferm- ingu Eiríks bróður síns og svo við jarðarfarir foreldra sinna. Þúsund ára systkini Axlarbörnin hafa einungis þrívegis verið öll á sama stað á sama tíma. Einu sinni í fermingu eins bróðurins og svo við jarðarfarir foreldra sinna en myndin hér að ofan var tek- in við jarðarför móður þeirra. Samt sem áður eru systkinin samheldinn hópur . Þau eiga ýmsar árlegar hefðir svo sem jólaball og þorrablót þar sem börn og barnabörn fá að vera með. Fimmtán systkin – Þúsund ár  Í dag fagna systkinin frá Öxl í Breiðuvíkurhreppi á Snæfellsnesi sérstæðum áfanga sem aðeins tveir aðrir núlifandi systkinahópar hér á landi hafa náð  Þau fagna samanlögðu þúsund ára afmæli Morgunblaðið/Styrmir Kári Fulltrúar hópsins Þau Sigurður, Jóhannes, Kristlaug og Guðbjörg setttust niður með blaðamanni Morgunblaðsins. Reimar fæddur 1940 Jóhannes fæddur 1941 Ingólfur fæddur 1942 Steinar fæddur 1943 Kristjana fædd 1944 Ólöf fædd 1946 Ólafur fæddur 1947 Kristlaug fædd1948 Elín fædd 1949 Eiríkur fæddur 1951 Anna fædd 1952 Emilía fædd 1954 Guðrún fædd 1955 Sigurður Karl fæddur 1958 Guðbjörg Baldvina fædd 1959 Systkinin fimmtán frá Öxl Í ALDURSRÖÐ MÁ BJÓÐA ÞÉR Í SJÓNMÆLINGU? NÝ SENDING AF UMGJÖRÐUM Traust og góð þjónusta í 19 ár Hamraborg 10, Kópavogi – Sími 554 3200 Opið virka daga 9.30-18, laugardaga 11–14 VIÐTAL Anna Marsibil Clausen annamarsy@mbl.is Íslandsmetið í háum aldri systkina- hópa eiga systkin frá Gunnlaugs- stöðum í Stafholtstungum sem urðu samtals 1.215 ára. Tveir núlifandi hópar hafa náð yf- ir þúsund árin en það eru systkin frá Hallgeirsstöðum í Jökulsárhlíð sem eru 1.030 ára til samans og svo systkinin frá Kjóastöðum í Bisk- upstungum sem eiga 1.027 ár til samans. Þúsaldarhópurinn frá Öxl telur átta systur og sjö bræður, fimmtán alls. Eins og augljóst er þurfa systkin að vera nokkuð mörg til að ná slík- um aldri og þegar blaðamaður Morgunblaðsins sest niður með þeim Guðbjörgu, Sigurði, Jóhannesi og Kristlaugu hefur Sigurður, sem er yngstur bræðranna, það á orði að líklega eigi ekki margir hérlendir hópar eftir að ná þeim áfanga.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.