Morgunblaðið - 31.03.2016, Page 27
„Þegar bændur fengu almennt
skurðgröfur til að grafa skurði not-
aði pabbi krakkana. Vinnuaflið var
heimafengið,“ segir Kristlaug sem
segir það engu hafa skipt hvort um
ræddi stráka eða stelpur. Allir hafi
gengið í öll störf. „Mjaltavélin kom
ekki fyrr en í kringum 1970,“ skýt-
ur Sigurður að. „Þangað til var það
allt gert í höndunum.“
Dagurinn sem lömbin komu
Mörgum kunna að þykja aðstæð-
urnar sem systkinin ólust upp við
fátæklegar en þau segjast aldrei
hafa liðið neinn skort.
„Mamma sagði það einhvern tím-
ann við mig að sér hefði aldrei fund-
ist þau fátæk því þau áttu alltaf nóg
að borða,“ segir Kristlaug. „Það er
samt ótrúlegt hvernig þau gátu
þetta, því mæðiveikin fór svo illa
með stofninn hjá þeim,“ segir Jó-
hannes. Það var þó enginn skortur
á grænmetinu úr garðinum á Öxl þó
lömbin hefðu þagnað og systkinin
telja sín á milli upp kartöflur, rófur,
grænkál og ýmislegt annað góðmeti
sem hægt var að veiða upp úr jörð-
inni.
„Ég man alltaf eftir deginum sem
nýju lömbin komu,“ segir Jóhannes.
„Það var 6. október 1949. Þá fékk
pabbi tíu lömb til að byrja aftur og
sama dag fæddist Elín systir. En
við spáðum ekkert í það, það var
svo mikill spenningur yfir nýju
lömbunum en hitt var engin ný-
lunda.“
Trúði á guð og
Sjálfstæðisflokkinn
„Mamma var alltaf grönn og létt
á sér,“ segir Jóhannes.
Þau systkinin segja Önnu hafa
verið iðna við að hlaupa um fjöll og
firnindi þar til hún lærbrotnaði árið
1961. Það hafi heft hana mikið
seinni hluta ævinnar. Hún hafi ekki
verið gefin fyrir slagsmálin sem
nánast óhjákvæmilega fylgdu svo
stórum barnahópi en gefist upp á að
reyna að stilla til friðar.
Systkinin lýsa föður sínum sem
hörkuduglegum, réttsýnum, fylgn-
um sér og ströngum og afar trúuð-
um. „Hann trúði á guð og Sjálfstæð-
isflokkinn,“ segir Jóhannes og þau
hlæja öll.
„Hann treysti okkur, ég var far-
inn að keyra dráttarvél mjög ung-
ur,“ segir Sigurður. „Það var bara
það sem þurfti, því pabbi keyrði
aldrei dráttarvélina. Við urðum
bara að gera þetta og þegar þeir
eldri fóru að heiman tók sá næsti
við.“
Fengu lítinn kvóta
Það vill einmitt vera svo að næsta
kynslóð tekur við af foreldrum sín-
um. Þannig tók Reimar, elsti bróð-
irinn, við Öxl þegar foreldrarnir
fluttu í borgina árið 1981.
Innt eftir því hvort þau hafi viljað
leika eftir barnalán foreldranna er
Jóhannes snöggur til svara og segir
þau hafa forðast það. Kristlaug
hlær við. „Þau eru tvö systkinin
sem hafa eignast fjögur börn og það
er það mesta,“ segir hún. Sigurður
skýtur inn í að hann segi jafnan að
þau hafi fengið lítinn kvóta því faðir
þeirra hafi tekið hann allan. Guð-
björg segir það sama hafa gilt um
sig og föður sinn, guð hafi ráðið en í
hennar tilfelli urðu börnin bara tvö.
Hún hefði hinsvegar seint viljað 15
stykki.
„Þetta hefði ekki gengið nema í
sveit, þetta hefði aldrei getað geng-
ið í Reykjavík. Maður hefur stund-
um hugsað út í það hvort fjöl-
skyldan hefði þá ekki tvístrast.“
Barnafjöldinn er þó ekki eins-
dæmi í ætt þeirra Axlarbarna. Móð-
ir þeirra átti sjálf 13 systkini og föð-
urbróðir þeirra eignaðist 11 börn.
„Þeir voru að keppast. Svo 1951
þá hættir Siggi en pabbi hélt
áfram.“
Enginn Axlar-Björn í hópnum
Jörðin Öxl er líklega þekktust
fyrir annan ábúanda sem við hana
var kenndur, Axlar-Björn. Sá er lík-
lega einn þekktasti fjöldamorðingi
Íslandssögunnar þó þjóðsögunum
beri ekki saman um hversu marga
hann myrti. Nafnið Björn hefur því
líklega ekki þótt heppilegt fyrir
bræðurna í hópnum.
Margan myndi taka að skorta inn-
blástur í nafnagjöf þegar börnin eru
orðin eins mörg og raun bar vitni í
tilfelli þeirra Önnu og Karls. Sú
virðist þó ekki hafa verið raunin.
„Þegar þau eru búin að eiga
þrettán börn eiga þau meira að
segja nóg eftir og nefna okkur
yngstu tveimur nöfnum,“ segir Guð-
björg og hlær.
Þau systkinin telja ekkert þeirra
hafa verið nefnt út í bláinn. Sum
heita þau eftir vinum og vanda-
mönnum en í sumum tilvikum
dreymdi móður þeirra nöfnin, eins
og algengt var á þeim tíma.
„Svo eru líka tilviljanir eins og
með Emmu,“ segir Sigurður. „Hún
heitir eftir Emilíu Jónasdóttur leik-
konu sem kom vestur.“
„Hún veiktist í útilegu og var
send [á Öxl] og var í nokkrar vikur.“
Og engin slagsmál
Eins og áður sagði hefur syst-
kinahópurinn aðeins náð að vera á
sama stað á sama tíma þrisvar sinn-
um á lífsleiðinni, í fermingu og svo í
jarðarförum foreldra sinna. Á því
verður ekki breyting í dag, þrátt
fyrir að tilefnið sé ríkulegt. Systk-
inin ætla vissulega að gera sér glað-
an dag en hópurinn er dreifður um
landið og ekki allir hafa tækifæri til
að koma til borgarinnar að fagna.
Það fer þó ávallt vel á með þeim
systkinum og niðjum þeirra þegar
þau hittast og þykir mörgum ótrú-
legt að enginn rígur eða illindi séu á
milli.
„Fyrir nokkrum árum vorum við
með útilegu á Laugalandi,“ segir
Sigurður. „Það kom til okkar maður
á sunnudegi og spurði hvaða hópur
þetta væri. Þegar við sögðumst vera
fjölskylda spurði hann: Hvað? Og
engin slagsmál?“
Systkinin hlæja og Kristlaug rifj-
ar upp svipuð ummæli manns sem
leigði hópnum aðstöðu í Varmahlíð
„Já! Það var bara engin lögregla og
ekkert vesen!“
En skyldu þau þá vera lík, systk-
inin? „Ekki finnst mér það,“ segir
Sigurður ákveðinn. „En það segja
allir að það sé sami sauðarsvipurinn
á okkur.“
„Og kímnigáfan,“ segir Kristlaug
sem kveðst jafnvel sjá hana í syst-
kinabörnunum og Guðbjört tekur
undir: „Já húmorinn er ríkur í okk-
ur öllum.“
Treystu á verndandi hendi
Tvívegis í gegnum viðtalið við
systkinahópinn fær undirrituð sím-
tal frá föður sínum. Símtölin
stöðva upptökuna á nýaldargræj-
unni sem liggur milli kaffiboll-
anna. Því þarf undirrituð að grípa
símann, hvæsa á föður sinn í flýti
og stilla svo aftur á upptöku með
afsökunum um að faðirinn hafi
tíma í meiri áhyggjur af hverju
barni en ella þar sem afkvæmin
eru bara tvö.
„Pabbi hefði orðið hokinn ef
hann hefði þurft að vera að fylgj-
ast með okkur öllum,“ segir Krist-
laug og brosir út í annað.
Guðbjörg minnist þess þegar
hún var 17 ára og ákvað að finna
sér vinnu erlendis. „Þau sögðu
bara: Já, er það. Þetta var ekkert
tiltökumál, okkur var bara treyst
og eins treystu þau á að almættið
héldi verndarhendi yfir okkur og
það virðist hafa gert það.“
FRÉTTIR 27Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. MARS 2016
UPPSELT UPPSELT