Morgunblaðið - 31.03.2016, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 31.03.2016, Qupperneq 28
28 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. MARS 2016 BAKSVIÐ Þórunn Kristjánsdóttir thorunn@mbl.is Sjálfsvígum fólks á aldursbilinu 60 til 80 ára og eldri á Íslandi fjölgaði á ár- unum 2013 og 2014 ef borið er saman við fyrri ár. Árið 2013 voru þau 15 talsins í fyrrgreindum aldurshóp og 13 árið 2013, samkvæmt tölum frá Embætti landlæknis. Sjálfsvíg í þessum aldurshóp, 60 til 80 ára og eldri, hafa að meðaltali verið undir tugnum frá 1996. Árið 2013 tóku þrír eigið líf sem voru eldri en 80 ára og árið 2014 voru það fjórir. Aldrei hafa fleiri í þess- um aldurshópi fallið fyrir eigin hendi en árið 2014 ef miðað er við tölur frá árinu 1996. Á 16 ára tímabili, frá árun- um 1996 til 2012, féllu 12 fyrir eigin hendi sem voru 80 ára eða eldri, 11 karlar og ein kona. Þarf að fylgjast vel með „Það eru vísbendingar um að sjálfsvígum eldri borgara hafi fjölgað. Þegar rýnt er í þessar tölur þá líta síðustu tvö ár ekki vel út og það vekur ugg. Ef þessi þróun heldur áfram næstu tvö árin er þetta virkilega eitt- hvað sem þarf að fylgjast með því þetta getur verið mælikvarði á heilsu og hag aldraðra. Þetta gætu verið merki um að við sinnum ekki ein- hverju gagnvart þessum hópi jafn vel og áður,“ segir Sigurður Páll Pálsson, geðlæknir á Landspítala. Hann segir tölurnar jafnframt vekja margar spurningar. Sigurður tekur fram að þrátt fyrir að ekki sé búið að staðla þessar tölur, þ.e.a.s. líta á þær með tilliti til fólksfjölgunar og fjölgunar eldri borgara, sé hægt að fullyrða að sjálfsvígum í þessum hópi hafi fjölgað. Efnahagsleg staða og félagsleg tengsl og stuðningur eldri borgara eru þættir sem þarf að rýna í þegar sjálfsvíg eru skoðuð. Sigurður veltir upp ýmsum ástæðum sem gætu vald- ið þessari fjölgun. Hann bendir á að því fylgja margir áhættuþættir að vera aldraður, eins og t.d. einangrun, einmanaleiki, missir hlutverks og vina. Þá hefur ýmislegt breyst í neyslumynstri eldri borgara, t.d. hef- ur áfengisneysla eldri borgara aukist sem gæti hugsanlega haft áhrif. „Hvort þetta er sveifla sem á eftir að eyðast kemur í ljós en sveiflur í sjálfsvígum hafa alltaf einkennt Ís- land. Það kemur til af því að sjálfsvíg eru blessunarlega fátíður atburður á Íslandi, sérstaklega miðað við önnur lönd, og þá gerir eitt til tvö sjálfsvíg ansi mikið á hver 100 hundrað þúsund í fámennu landi,“ segir Sigurður. Hann bendir jafnframt á að sjálfsvíg eldri borgara séu mun algengari í öðr- um löndum og því hafi jafnvel verið búist við að sjálfsvígum í þessum ald- urshópi myndi fjölga hér á landi. „En það hefur ekki gerst enn; nema við túlkum þessa niðurstöðu á þann hátt.“ Aldraðir eru einnig sá hópur þar sem líklegt er að sjálfsvíg séu van- skráð. Þetta getur m.a. tengst lyfj- um en fólk á þessum aldri tekur inn alls kyns lyf því sjúkdómar verða al- gengari með aldrinum og því eykst lyfjanotkunin. Sá möguleiki er alltaf fyrir hendi að fólk taki meðvitað „óvart“ inn of mikið af lyfjum eða vanræki að taka einhver mikilvæg lyf og jafnvel hætti að borða. „Þetta veit í rauninni enginn með vissu,“ út- skýrir Sigurður um vanskrán- inguna. Almenna reglan er sú í heiminum að sjálfsvíg aukast með aldrinum. „Það hefur verið mikil umræða um ungu mennina undanfarið. Sjálfsvíg- um þeirra fjölgaði frá seinna stríði og fram undir árið 2000 en síðustu 10 ár- in hefur þeim fækkað. Þá var óttast árið 2008 að sjálfsvígum eldri borgara myndi fjölga. Við höfum ekki séð það í tölunum en það var einn hópur sem sýndi aukningu og það voru miðaldra karlar. Það voru hugsanlega þeir sem misstu mest af eignum sínum, misstu vinnuna og gátu líklegast síður farið í endurhæfingarúrræði og áttu því ekki eins mikla möguleika á að koma til baka,“ segir Sigurður. Öll sjálfsvíg eiga sér forsögu Öll sjálfsvíg eiga sér einhverja for- sögu um þunglyndi eða þunglyndis- einkenni en hjá öldruðum eiga sjálfs- víg sér lengri sögu en hjá þeim yngri. Sjálfsvíg hafa nær undantekningar- laust sterk tengsl við geðraskanir og sérstaklega við þunglyndi, bendir Sigurður á, en sjálfsvíg eru oftast endastöð einhvers ferlis. Þegar sjálfs- vígsferlið er skoðað kemur oft í ljós að það hefur staðið yfir í mörg ár. Hjá yngra fólkinu er oft stuttur aðdrag- andi að þeim, skyndiáföll, neysla og nýgreindur eða ógreindur geðsjúk- dómur setja svip sinn á þau. Hjá eldra fólkinu eru sjálfsvíg oft tengd t.d. lík- amlegum sjúkdómum, ómeðhöndluðu þunglyndi, ástvinamissi og óút- kljáðum samskiptavandamálum svo dæmi séu tekin. Engar framsæknar rannsóknir eru stundaðar hér á landi þar sem skoðað er forstigið af sjálfsvígum, að sögn Sigurðar, sem hann segir að mætti bæta úr. Hins vegar er hægt að heim- færa erlendar rannsóknir á Ísland en einkum hefur verið litið til sænskra rannsókna, t.d. sker íslenska þjóðin sig ekki úr hvað varðar þunglyndi sé miðað við önnur Evrópulönd. Þunglyndi hrjáir um 10-15% fólks á aldrinum 65 ára og eldri en þeir sem eru með eiginlegt þunglyndi eru um 3-5%. „Það er ekki þar með sagt að það þurfi að meðhöndla alla með geð- lyfjum. Kannski er frekar þörf á fé- lagslegum og sálrænum stuðningi. Aðrir þurfa t.d. betri verkjameðferð. Orsakaþátturinn í þunglyndi er ekki bara líffræðilegur heldur getur komið í gegnum marga þætti, t.d. óleystur ágreiningur, stress og álag sem þú ræður ekki við,“ segir Sigurður. Hann segir brýnt að fólk sé með- vitað um eigin líðan og annarra og þessi vitneskja eigi að vera hluti af ör- yggismenningu okkar. Það ætti að vera nokkuð auðvelt fyrir alla að gera einfalda geðskoðun. „Tökum t.d. foreldra þína sem dæmi, ef þeir hafa aldrei verið þung- lyndir og viðkomandi veigrar sér nú við að hitta félagana, fara á manna- mót o.þ.h. sem fólk er vant að gera, þá áttar fólk sig ekki endilega á því að fólk getur verið orðið þunglynt. Við gefum okkur oft þá skýringu að for- eldrarnir séu orðnir þreyttir og gaml- ir. Það er svo auðvelt að missa af þunglyndi hjá öldruðum. Við eigum að passa okkur á því að ekki líta svo á að fólk sé bara gamalt og þess vegna eigi því að líða illa eða vera vanvirk- ara. Maður á ekki að vera með for- dóma um að þetta sé öldrun og gleypa við því að þetta sé gleymska, almenn leti, skiljanleg þreyta eða uppgjöf. Það þarf að tala við fólk. Og ekki gleyma því að maður finnur ekki það sem maður leitar ekki að,“ segir Sig- urður. Hann bendir á að almennt séð eld- ist fólk ótrúlega vel. Sleppi það við al- genga sjúkdóma eins og hrörnunar- sjúkdóma og krabbamein er það gjarnan mjög hraust fram til 80 ára, en stundum hallar hratt undan fæti upp úr áttræðu. Sjálfsvígum aldraðra hefur fjölgað  Sjálfsvígum 60 til 80 ára og eldri fjölgaði árin 2013 og 2014  Fjórir einstaklingar eldri en 80 ára sviptu sig lífi árið 2014  Fjöldinn vekur ugg og er mælikvarði á heilsu og hag aldraðra, að mati geðlæknis Morgunblaðið/Ómar Eldra fólk Öll sjálfsvíg eiga sér einhverja forsögu um þunglyndi eða þunglyndiseinkenni en hjá öldruðum eiga sjálfsvíg sér lengri sögu en hjá þeim yngri. Auðvelt er að missa af þunglyndiseinkennum aldraðra. Sjálfsvíg eldra fólks Heimild: Embætti landlæknis. 2005 2006 2007 2008 2009 2010 2011 2012 2013 2014 Karlar 0-19 2 2 2 1 1 4 1 2 1 2 20-39 9 7 15 9 9 14 9 9 15 13 40-59 13 12 9 13 10 11 8 11 9 8 60-79 0 1 3 3 9 5 4 2 8 7 80+ 0 0 1 1 0 2 0 2 2 3 Alls 24 22 30 27 29 36 22 26 35 33 Konur 0-19 0 0 0 0 0 0 1 0 0 1 20-39 1 2 3 2 3 3 1 5 4 5 40-59 7 6 3 5 4 5 1 2 5 2 60-79 1 2 1 4 0 2 2 4 4 2 80+ 0 0 0 0 0 0 0 0 1 1 Alls 9 10 7 11 7 10 5 11 14 11 Alls (bæði kyn) 0-19 2 2 2 1 1 4 2 2 1 3 20-39 10 9 18 11 12 17 10 14 19 18 40-59 20 18 12 18 14 16 9 13 14 10 60-79 1 3 4 7 9 7 6 6 12 9 80+ 0 0 1 1 0 2 0 2 3 4 Alls 33 32 37 38 36 46 27 37 49 44 Sigurður Páll Pálsson Áður en fólk fremur sjálfsvíg sendir það oft bein eða óbein sjálfsvígsskilaboð. Hin óbeinu afhjúpast ekki fyrr en um sein- an og þau geta verið lúmsk, t.d.: „Við eigum nú ekki eftir að hitt- ast aftur“ eða fólk fer skyndi- lega að gera erfðaskrá. Besta aðferðin til að greina sjálfsvígs- hættu er venjuleg geðskoðun sem allir geta gert. Spurt er ein- faldlega: hvernig líður þér? og haldið er áfram. Ef fólk viður- kennir vanlíðan má næst spyrja um dapurleika og sé svarið enn já er hægt að spyrja um til- gangsleysi, vonleysi, síðan hugsanir um dauðann og hugs- anir um að stytta líf sitt. „Það þarf að þora að spyrja ef það er eitthvað óljóst hvað fólk segir. Það er auðvelt að missa af e-u óbeinu ef maður sér það ekki strax í viðtali sem óskýr skila- boð um raunverulegar dauða- pælingar. Það er ekki í eðli okk- ar að spyrja fólk hvort það hafi velt því fyrir sér að enda líf sitt. Það er engin hætta á því að þú sért að kveikja hugmynd. Hug- myndin var komin. Fólk segir yfirleitt sannleikann þegar mað- ur spyr það,“ segir Sigurður. Þora að spyrja SJÁLFSVÍGSSKILABOÐ flísar fyrir vandláta PORCELANOSA Skútuvogi 6 - Sími 568 6755
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.