Morgunblaðið - 31.03.2016, Qupperneq 62
Hjóladellan „Það sem er að breytast er að það sem var einföld útivera er að þróast út í sam-
gönguhjólreiðar, keppnishjólreiðar, ferðamennsku og fjallahjólreiðar,“ segir Ragnar Þór.
Jón Agnar Ólason
jonagnar@mbl.is
„Hjóladella landans er hvergi í rén-
un, langt frá því,“ segir Ragnar Þór
Ingólfsson, sölustjóri í Erninum við
Faxafen í Reykjavík. „Það sem er að
breytast er að það sem var einföld
útivera er að þróast út í samgöngu-
hjólreiðar, keppnishjólreiðar, ferða-
mennsku og fjallahjólreiðar. Keppn-
ishjólin – reiserarnir (e. racer) – eru
það sem sífellt fleiri leita í. Notkunin
er almennt að verða sérhæfðari og
gæði hjólanna sífellt meiri. Fólk er
að nota hjólin sín sífellt meira og
kaupir um leið vandaðri hjól,“ segir
Ragnar sem man tímana tvenna en
hann hefur starfað hjá Erninum síð-
an árið 1992. Hann bætir því við að
úrval og umfang fylgihluta hvers-
konar fyrir hjólreiðar hafi stóraukist
að sama skapi og sem sport hafi hjól-
reiðar sprungið út á síðustu miss-
erum. „Sem dæmi má nefna að á síð-
asta ári tóku um 1100 manns þátt í
WOW Cycloton hjólreiðakeppninni
og nú í mars er að verða uppselt í
Bláa Lóns-þrautina sem tekur um
þúsund manns.“
Reiðhjólamenningin vex og
dafnar
Með síaukinni þátttöku segir
Ragnar að menningin öll í kringum
reiðhjólin færist sífellt í aukana og
máli sínu til stuðnings nefnir hann
hinn sístækkandi hóp sem vill vera á
fallegum og hæfilega gamaldags
„retró“ hjólum, helst ekki meira en
þriggja gíra, og hjóla svo um í jakka-
fötunum með hálstau og kjólum með
klúta. Um leið eykst fjöldi þeirra
sem hafa fallið fyrir keppnishjól-
unum, áðurnefndum reiserum, og
bruna um í straumlínulöguðum fatn-
aði sem felur í sér sem allra minnsta
loftmótstöðu. „Þá eru ótaldir þeir
sem nota fjallahjólin sín nánast eins
og brimarar nota brimbrettin; fara
upp á fjöll á stórum hjólum með
breiðum dekkjum og gleyma sér svo
í óbyggðunum um stund. Loks eru
það þau sem fara mikið til annarra
landa til að hjóla, hvort heldur
áfangastaðurinn er Kúba, Kam-
bódía, Taíland eða önnur lönd í Asíu,
Garda-vatn á Norður-Ítalíu eða aðr-
ir vinsælir hjólreiðastaðir. Enda er
það alveg tvennt ólíkt, að fara um á
bíl eða hjóli,“ bætir Ragnar við. „Á
hjólinu færðu menninguna og and-
rúmsloftið beint í æð, undir berum
himni, ásamt því að vera að allan
tímann. Ferð til útlanda á hjóli er
stöðug upplifun. Það má því segja að
allar mögulegar gerðir hjólreiða-
menningar hér á landi séu sífellt að
bæta við sig.“
Sífellt fleiri bætast við
Að sögn Ragnars er ekki síst gam-
an að sjá fólk finna ný tækifæri í
hreyfingu og útivist. „Við fáum til
dæmis fólk sem hefur stundað hlaup
um langt skeið en á orðið við stoð-
kerfisvanda að stríða, og liggur
hjólasportið mjög vel við enda
höggálagið lítið og áreynsla lítil á
liði. Rafmagnshjólin hafa verið að
aukast mikið í sölu og þar erum við
að fá alveg nýjan hóp inn í hjólreið-
arnar. Hjólin eru því orðin að gríð-
arlega breiðu sviði af hreyfingu.
Fyrir 20 árum vorum við með allar
gerðirnar frá okkar helsta framleið-
anda í búðinni, og var hún þó ekki
nema fjórðungur af því sem Örninn
er í dag. Nú erum við með um það bil
helminginn sem framleiðandinn,
TREK, býður upp á og við komum
ekki fleiri hjólum fyrir. Þetta er
mjög skemmtilegur tími til að starfa
í reiðhjólabransanum.“
Bylting á öllum sviðum hjólreiða
Fjölbreytileikinn í reiðhjólum hefur aldrei verið meiri Sífellt fleiri bætast í hóp áhugasamra hjólreiðamanna
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Fatbike Skemmtilegur valkostur fyrir þau sem láta gljúpt undirlag á borð
við sand, snjó eða mýri ekki aftra sér frá því að eiga góðan hjólatúr.
Retró Tímalaus hjól – falleg og skemmtilega gamaldags – eru vinsæl meðal þeirra sem njóta
þess að fara prúðbúin út að hjóla, fallega til fara og stundum með hressingu í farteskinu.
REIÐHJÓL
Í SUMAR