Morgunblaðið - 31.03.2016, Síða 72

Morgunblaðið - 31.03.2016, Síða 72
72 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. MARS 2016 ✝ Hinrik GunnarHilmarsson fæddist 28. júlí 1958 í Reykjavík. Hann lést á líkn- ardeild Landspít- alans í Kópavogi 24. mars 2016. Hinrik Gunnar var sonur hjón- anna Bergljótar Gunnarsdóttur, f. 23. febrúar 1938, og Hilmars Eyjólfssonar, f. 5. janúar 1934. Seinni maður Bergljótar var Haraldur Þor- steinsson, f. 20. febrúar 1923, d. 3. júlí 1990. Seinni kona Hilmars er Erna Halldórs- dóttir, f. 22. september 1936. Alsystkini Hinriks eru: Hrönn, f. 5. ágúst 1956, og Hörður Eyjólfur, f. 30. júlí 1959. Systur Hinriks sam- mæðra eru Hugrún Brynhild- ur Haraldsdóttir, f. 28. febr- úar 1969, og Hrafnhildur Björg Haraldsdóttir, f. 30. jan- úar 1971. Stjúpsystkini Hin- riks eru þau Hjörtur Haralds- son, f. 14. desember 1951, og Hanný María Haraldsdóttir, f. 11. febrúar 1950. Hinrik átti eina dóttur, Sunnu Dís Ingibjargardóttur, f. 11. apríl 1981. Hinrik starfaði við sölu auglýs- inga í mörg ár, meðal annars hjá Alþýðublaðinu, Helgarpóstinum og Pressunni. Hann var alla tíð mikill golfáhuga- maður og var með alþjóðleg dómara- réttindi. Hinrik starfaði fyrir Golf- samband Íslands frá árunum 2002 til 2007 og sinnti störfum sem markaðsstjóri og var einnig í fararbroddi fyrir framfylgd golfreglna og dóm- aramála á vegum Golfsam- bands Íslands. Þekking hans á golfreglunum var einstök og færði Hinrik golfhreyfingunni mikla fagmennsku á því sviði. Hinrik var mikill GR-ingur og var alla sína golftíð hjá Golf- klúbbi Reykjavíkur. Á vegum GR starfaði hann sem dómari, ræsir, kenndi golfreglur og tók þátt í unglingastarfi klúbbsins. Hinrik var alltaf kallaður Gunni af fjölskyldunni en Hinni af vinum sínum. Minningarathöfn fer fram í Langholtskirkju í dag, 31. mars 2016, klukkan 13. Elsku bróðir, takk fyrir allar samverustundirnar okkar og við sjáumst síðar. Orðin úr Hávamálum eiga vel við á þessari stundu þegar sorgin og söknuðurinn er svona sár. Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama; en orðstír deyr aldregi, hveim er sér góðan getur. Hugrún. Mig langar að minnast hér mágs míns hans Hinriks Gunnars sem lést að morgni skírdags eftir liðlega þriggja ára baráttu við krabbamein. Þegar ég hugsa til Gunna koma fyrst upp í hugann orðin örlátur, góðhjartaður, glað- lyndur, félagslyndur, hjálpsamur og eiginlega öll þau orð sem mögulega geta lýst góðum ein- staklingi. Ég kynntist Gunna fyrst fyrir rúmum 30 árum þegar ég fór að vera með systur hans, Hugrúnu, og verð að segja að samband mitt við Gunna var alla tíð mjög gott og þá sérstaklega eftir að ég eignað- ist börnin mín. Samband Gunna við frændsystkin sín var alveg ein- stakt, enda var hann alltaf tilbú- inn að gera allt til að aðstoða, al- veg sama hvað það var, en allir þeir sem þekktu Gunna vita að hann var mjög barngóður og þeg- ar kom að samskiptum við börn og unglinga var það ætíð á jafningja- grundvelli. Á mínu heimili ríkir mikill söknuður og ekki síst hjá börn- unum sem sjá á eftir frænda sín- um sem alltaf var tilbúinn að koma, skutla, fara í bíó, fara í golf og koma í mat og munu nú sakna þess að Gunni hringir ekki lengur heim – en Gunni hringdi daglega bara til að sjá hvernig allir hefðu það og hvort allt væri ekki í lagi. Upp í huga mér kemur svo sér- staklega samband Gunna við hann Breka, son minn, en óhætt er að segja að það hafi verið alveg ein- staklega gott. Þeir voru miklir vinir og félagar og ófáar stund- irnar sem þeir voru saman uppi á golfvelli þar sem Breki aðstoðaði Gunna við hitt og þetta og mig grunar að margur golfarinn í Grafarholtinu kannist við að hafa séð þá félaga saman. Það verður því mikil breyting fyrir Breka að fara ekki upp á golfvöll til Gunna lengur. Þær voru margar samveru- stundirnar sem við fjölskyldan áttum með Gunna í matarboðum, veislum og afmælum stórum og smáum. Það verður annað yfir- bragð þegar Gunni er ekki lengur á meðal okkar. Hann var matmað- ur mikill og kokkur góður. Alltaf var stutt í hláturinn og sögurnar af Man Utd., golfi eða veiði. Kæri Gunni, ég veit að þú hefur það gott á góðum stað í eilífðinni, spilandi golf og njótandi allra þeirra hluta sem veikindin tóku frá þér. Hvíl í friði, kæri vinur. Ottó Eiríksson. Kæri frændi, þú varst alltaf til staðar fyrir mig og tilbúinn að hjálpa mér þegar ég þurfti. Stundirnar uppi á golfvelli voru frábærar og þú leyfðir mér alltaf að koma og vera með þér. Rúnt- arnir um bæinn og á golfbílnum hjá GR voru frábærir. Þú kenndir mér svo margt sem ég er þakk- látur fyrir. Takk fyrir allar góðu og skemmtilegu stundirnar sem við áttum saman. Kveðja, þinn Breki. Í dag kveð ég kæran vin og móðurbróður. Hinrik, eða Gunni eins og við kölluðum hann í fjöl- skyldunni, var einstakur persónu- leiki. Vinfleiri mann hef ég senni- lega aldrei þekkt um ævina og ég skynjaði alltaf hversu mörgum þótti vænt um hann Gunna. Hann var einfaldlega skemmtilegur per- sónuleiki með stórt hjarta og mik- ill vinur vina sinna. Það voru mjög margir sem vildu kveðja hann þessa síðustu daga en náðu ekki, þetta bar skjótt að, því miður. Þegar ég hugsa til baka þá minnist ég stuðningsins og um- fram allt vináttunnar. Hvort sem það var að fara með mig, þrjóskan 12 ára dreng í golf í öllum veðrum, kynna mig fyrir góðri tónlist, grillmat eða tryggja að maður myndi halda með réttu liði í enska boltanum, þó það færi gegn allri heilbrigðri skynsemi á þeim tíma. Við fjölskyldan munum sakna hans, vinirnir allir og allur þessi mikli fjöldi kylfinga, klúbbmeð- limir sem aðrir, munu sakna þess að geta ekki hitt Hinna dómara uppi í skála, borðað góðan mat með honum eða hringt í hann þeg- ar menn eru ekki vissir á golfregl- unum. Gunni gaf sér góðan tíma fyrir börn systkina sinna og er hann stór hluti af uppeldinu hjá okkur systkinabörnunum. Hann var með golfbakteríu á háu stigi og án hans frumkvæðis og eljusemi hefði ég og sennilega heil kynslóð ungra kylfinga í Golfklúbbi Reykjavíkur ekki náð eins langt. Hvíl í friði, Gunni minn, takk fyrir stuðninginn, vináttuna, um- hyggjuna og minningarnar. Litli frændi þinn, Haraldur Heimisson. Látinn er í Reykjavík vinur okkar hjónanna, Hinrik Gunnar Hilmarsson, löngu fyrir aldur fram. Ég kynntist Hinriki í golf- klúbbi Reykjavíkur, GR, en við fjölskyldan gerðumst meðlimir þar eftir langa dvöl í Gautaborg í Svíþjóð. Þar höfðum við kynnst golfíþróttinni og líkað vel. Ég hafði einnig fengið áhuga á golf- reglunum og verið á námskeiðum í þeim í Svíþjóð. Þess vegna fól stjórn GR mér að hafa fræðslu- fundi fyrir verðandi félaga í klúbbnum. Það mun hafa verið á fyrri hluta áttunda áratugarins sem ég kynntist Hinriki, en þá gekk hann í klúbbinn. Árið 1992 fórum við Kristján Einarsson, sem lengi hafði sinnt dómgæslu í golfi og ár- um saman þýtt golfreglurnar á ís- lensku, til St. Andrews í Skotlandi á reglunámskeið og tókum svo al- þjóðadómarapróf í golfreglum þar. Hinrik fór svo ásamt Sigurði Geirssyni árið 2000 til St. And- rews og tóku þeir þar þetta próf. Við Hinrik urðum fljótt góðir vinir og hittumst oft utan golf- klúbbsins. Hann var starfsmaður Golf- sambands Íslands um fimm ára skeið sem markaðsstjóri, 2002- 2007, en síðar gerðist hann starfs- maður GR og vann um árabil í daglegu eftirliti og dómgæslu í mótum. Við fórum saman til Vest- mannaeyja og Akraness til að dæma í stærri mótum og hann fór oft út á land til dómgæslu í golf- mótum. Ég var þó með honum í stærri mótum sem klúbburinn okkar hélt, og í Meistaramóti GR, sem er stærsta golfmót á Íslandi. Það er haldið á einni viku fyrri hluta júlímánaðar á báðum völlum klúbbsins. Sl. ár voru 540 kepp- endur skráðir í mótið. Þá sinnti Hinrik dómgæslu á Grafarholts- velli en ég á Korpúlfsstaðavelli, en við höfðum alltaf mikið og gott samband hvor við annan. Jafn- framt héldum við áfram kennslu í golfreglum á vetrum og kynningu á nýjum eða breyttum golf- reglum, en The Royal and Ancient Golf Club of St. Andrews og bandaríska golfsambandið endur- skoðar þær á fjögurra ára fresti. Nú hafa þeir gefið út endur- skoðaðar golfreglur og er Hörður Geirsson að þýða þær og undirbúa nýja útgáfu þeirra. Og senn kem- ur að því að kynna þær fyrir fé- lögum GR og þá sakna ég vinar í stað. Við Hinrik áttum alltaf mjög gott samstarf og samband og töl- uðum reglulega saman. Hann kom líka oft heim til okkar Jónínu og við borðuðum þá jafnan góðan mat. Hann var glaðlegur maður, góðviljaður og einstaklega hjálp- samur. Hann vildi öllum gott gera, enda var hann vinmargur. Ég hef aldrei átt betri vin en hann. Auk þess var hann ráðagóður og gott að leita til hans. Við Jónína fórum nokkrum sinnum með honum til Flórída, þar sem við spiluðum golf. Í einni slíkri ferð fór hann holu í höggi á nokkuð langri par 3- holu. Það var gaman að verða vitni að því. Hinrik var ókvæntur, en hann eignaðist dótturina Sunnu Dís. Nú þegar hann er horfinn út yf- ir sjónvídd vora vil ég með þessum línum senda fjölskyldu hans inni- legar samúðarkveðjur frá okkur Jónínu, sem kveðjum hann með söknuði. Flýt þér vinur í fegra heim krjúptu að fótum friðarboðans og fljúgðu á vængjum morgunroðans meira að starfa guðs um geim. (Jónas Hallgrímsson) Þorsteinn Sv. Stefánsson. Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama; en orðstír deyr aldregi, hveim er sér góðan getur. (Úr Hávamálum) Við kvöddumst á líknardeild- inni tveimur dögum áður en þú lést með þeim orðum að borða saman góða steik um páskana. Við vissum báðir að það yrði ekki raunin, að sú steik yrði að bíða betri tíma, en hvorugur vildi við- urkenna að nú væri komið að leið- arlokum. Það er erfitt að kveðja góðan vin. Litríkan og sterkan persónu- leika og ótrúlega fjölhæfan og góðan dreng. Við Gunni frændi vorum sam- ferða í gegnum lífið. Ég man eftir honum sem polla. Við vorum frændur og bestu vinir. Fyrir rúmum 30 árum hnýttum við okk- ur sterk vinabönd sem héldu, þótt stundum reyndi á þau og þótt það liðu vikur eða dagar án þess að við hittumst, þá breytti það engu. Kannski er það þannig með vin- áttubönd sem hnýtt eru á unga aldri. Við unnum saman í mörg ár, við áttum hesthús saman, við vor- um í sportinu saman og við vorum frændur og við vorum bestu vinir. Nú sakna ég góðs vinar. Á sínum yngri árum var Gunni mikill íþróttagarpur og náði ætíð góðum árangri í því sem hann tók sér fyrir hendur. Ungur að aldri var hann Reykjavíkur- og Ís- landsmeistari í körfubolta. Hann var félagi minn í badminton og var góður spilari. Hann líktist ekki bara Pavarotti í útliti, heldur hafði hann kraftmikla og hljómfagra rödd sem hann hafði gaman af að beita, sérstaklega þegar gítarinn var sóttur og gömlu fjölskyldu- slagararnir voru sungnir. Gunni hafði yfirburðaþekkingu á golf- íþróttinni og var tvímælalaust besti golfdómari landsins. Hann var ástríðukokkur og fannst ekk- ert skemmtilegra en að gefa vin- Hinrik Gunnar Hilmarsson Okkar ástkæri GUNNAR JÓNSSON, Skólastíg 14, Stykkishólmi, andaðist 22. mars. Útförin fer fram frá Stykkishólmskirkju laugardaginn 2. apríl klukkan 14. Þeim sem vilja minnast hans er bent á minningarsjóð Dvalarheimilis aldraðra í Stykkishólmi: Kt. 620269-7009, b. 0309-13-209020. Fyrir hönd aðstandenda: . Gerður G. Gunnarsdóttir, Steinar Jónsson, Sæmundur Gunnarsson, Helga Guðnadóttir, Jón H. Gunnarsson, Ólöf Guðrún Guðmundsdóttir. Elskulegur bróðir minn, mágur og frændi, GÍSLI H.L. FINNBOGASON frá Holti, Garðahverfi, andaðist á Vífilsstöðum hinn 13. mars síðastliðinn. Útförin fer fram frá Garðakirkju mánudaginn 4. apríl klukkan 13. Þeim sem aðstoðuðu og hjúkruðu honum heima síðastliðin ár, starfsfólki Hrafnistu í Hafnarfirði 5. hæð, Landspítala Fossvogi 6-A og Vífilsstöðum 1. hæð er þakkað fyrir einstaka alúð og umönnun. Hjartans þakkir. Blóm og kransar eru afþakkaðir en þeim sem vildu minnast hans er bent á líknarstofnanir. . Stefán H. Finnbogason, Hulda Cathinca Guðmundsdóttir, börn, barnabörn og barnabarnabörn. Kær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, ÞORSTEINN MAGNÚSSON viðskiptafræðingur, Víðimel 65, lést að morgni páskadags á Landspítalanum í Fossvogi. . Þórdís Þorgeirsdóttir, Þórrún S. Þorsteinsdóttir, Reynir Sigurðsson, Þórný Ásta Þorsteinsdóttir, Þórður Geir Þorsteinsson, Ana Martha Helena og barnabörn. Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, BALDUR GUÐMUNDSSON, Snælandi 3, Reykjavík, sem lést á Landspítalanum við Hringbraut 21. mars síðastliðinn, verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju þriðjudaginn 5. apríl næstkomandi klukkan 15. . Jenný Anna Baldursdóttir, Einar Vilberg Hjartarson, Greta Baldursdóttir, Halldór Grönvold, Ingibjörg Jóna Baldursdóttir, Hannes Andrésson, Guðlaug Björk Baldursdóttir, Ingunn Baldursdóttir, Ómar Ström, Hilma Ösp Baldursdóttir, Alfreð Karl Alfreðsson, Guðmundur Baldursson, Steinunn Baldursdóttir, Jón Alvar Sævarsson, barnabörn og barnabarnabörn. Bróðir minn, GUÐMUNDUR ANTONSSON, Glæsistöðum, andaðist þriðjudaginn 29. mars síðastliðinn á Heilbrigðisstofnun Suðurlands, Selfossi. . Ástþór Antonsson. VALGEIR JÓNASSON húsasmíðameistari, Ofanleiti, verður jarðsunginn frá Landakirkju 1. apríl klukkan 14. Fyrir hönd aðstandenda, . Erla Einarsdóttir. LAUFEY HÁLFDANARDÓTTIR hjúkrunarfræðingur, Þiljuvöllum 33, Neskaupstað, sem lést á föstudaginn langa, verður jarðsungin frá Norðfjarðarkirkju laugardaginn 2. apríl kl. 14. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Fjórðungssjúkrahúsið í Neskaupstað. . Egill Arnaldur Ásgeirsson, Vilborg Egilsdóttir, Gunnar Páll Halldórsson, Þórunn Egilsdóttir, Guðjón Björn Guðbjartsson.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.