Morgunblaðið - 31.03.2016, Síða 79

Morgunblaðið - 31.03.2016, Síða 79
ÍSLENDINGAR 79 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. MARS 2016 an á Selfoss þar sem Kristín vann á saumastofu í þrjú ár. Þá var kúrsinn tekinn í Lundarreykjadal- inn við búskap á Lundi í ársbyrjun 1984 og þeim búskap hafa þau hjónin síðan sinnt. Í nokkur ár vann Kristín í hlutastarfi hjá Bún- aðarsamtökum Vesturlands við bú- fjáreftirlit: „Það var afskaplega gott starf því þá kynntist ég svo mörgu skemmtilegu fólki og fór á staði sem ég hafði ekki komið á fyrr.“ Kristín hefur alla tíð verið gefin fyrir handavinnu: „Ég hef mest sýslað við prjónaskap og úrvinnslu ullar og verið virkur félagi í Ull- arselshópnum sem rekur metn- aðarfulla verslun með handverk á Hvanneyri. Félagsstörfin hafa svo snúist um landbúnað. Ég hef komið við í stjórnum Búnaðarfélags Lund- dæla, Hestamannafélagsins Faxa og Sauðfjárræktarfélags Lund- dæla og Ungmennafélaginu Dag- renningu hef ég reynt að leggja lið ef á hefur þurft að halda. Sama má segja um Kvenfélag Lunddæla og það leiddi til formennsku í Sam- bandi borgfirskra kvenna í tvö lærdómsrík ár. Ég var að ljúka fjögurra ára gjaldkerastörfum hjá Ungmennasambandi Borgar- fjarðar sem var mjög skemmtilegt og gefandi starf. Síðustu 20 árin hef ég svo verið viðloðandi Freyjukórinn sem er kvennakór í Borgarfirði. Það er góður félagsskapur og dýrmætt að syngja og starfa með konum alls staðar að úr Borgarfirðinum.“ Fjölskylda Eiginmaður Kristínar er Jón Gíslason, f. 16.1. 1955, bóndi. For- eldrar hans voru Sigríður Jóns- dóttir, f. 1916, d. 1986, og Gísli Brynjólfsson, f. 1906, d. 2000, bændur á Miðsandi í Hvalfirði og síðar á Lundi í Lundarreykjadal. Börn Kristínar og Jóns eru Bjarnheiður Jónsdóttir, f. 1.9. 1981, kennari í mastersnámi, vinn- ur í Kleppjárnsreykjaskóla, býr á Hvanneyri en maður hennar er Helgi Már Ólafsson búfræðingur og starfsmaður Búnaðarsamtaka Vesturlands; Hrönn Jónsdóttir, f. 14.2. 1986, ferðamálafræðingur, jöklaleiðsögumaður og tóm- stundaleiðbeinandi á Laugum í Sælingsdal, búsett í Hrannargerði á Lundi; Unnur Jónsdóttir, f. 3.4. 1988, íþróttafræðingur í kennslu- réttindanámi, vinnur í leikskóla á Hvanneyri og býr þar, og Orri Jónsson, f. 7.6. 1992, búfræðingur frá Landbúnaðarháskólanum á Hvanneyri og er í verkfræðinámi í Árósaháskóla. Systkin Kristínar: Skeggi Gunn- arsson, f. 1959, bóndi á Skeggja- stöðum; Halldóra Gunnarsdóttir, f. 1965, verkefnastjóri á Kópaskeri; Gauti Gunnarsson, f. 1969, d. 2013, bóndi, og Bolli Gunnarsson, f. 1972, auðlindafræðingur á Ak- ureyri. Foreldrar Kristínar: Sigríður Guðjónsdóttir, f. 1933, og Gunnar Halldórsson, f. 1925, d. 2002, bændur á Skeggjastöðum í Flóa. Úr frændgarði Kristínar Gunnarsdóttur Kristín Gunnarsdóttir Margrét Guðmundsdóttir ljósmóðir Gísli Einarsson b. í Bitru, Ásum og í Sauðagerði við Rvík, dóttursonur Ófeigs ríka á Fjalli og systursonur Ófeigs, langafa Tryggva Ófeigssonar útgerðarm., af Urriðafossætt Guðrún Gísladóttir húsfr. á Skeggjastöðum Halldór Jónsson b. á Skeggjastöðum Gunnar Halldórsson b. á Skeggjastöðum Guðrún Bjarnhéðinsdóttir húsfr. á Skeggjastöðum Jón Guðmundsson b. á Skeggjastöðum Ólafur Guðjónsson b. á Bollastöðum Gestur Steinþórsson fyrrv. skattstj. í Rvík Guðmundur Þorgeirss. yfirlæknir og prófessor Jóhanna Steinþórsd. fyrrv. skólastj. Eiríkur Þorgeirsson augnlæknir Helga Halldórsdóttir húsfr. í Stokkeyrarseli og í Nýjabæ, síðar að Laugardælum Guðjón Einarsson b. í Stokkseyrarseli og í Nýjabæ Guðjón Guðjónsson b. á Bollastöðum Kristín Guðmundsdóttir húsfr. á Bollastöðum í Flóa Sigríður Guðjónsdóttir b. og húsfr. á Skeggja- stöðum í Flóa Dagbjört Brandsdóttir vinnuk. og húsfr. í Rvík Guðmundur Einarsson steinsmiður í Rvík Steinþór Gestsson alþm. að Hæli Þorgeir Gestsson læknir í Rvík Margrét Gísladóttir húsfr. á Hæli Gestur Þorgeirsson hjartalæknir Hannyrðakona Kristín við rokkinn. Jón Múli fæddist á Kirkjubóli áVopnafirði 31.3. 1921. For-eldrar hans voru Árni frá Múla, alþm. í Reykjavík, og k.h., Ragnheiður Jónasdóttir húsfreyja. Árni var sonur Jóns Jónssonar, aþm. í Múla, bróður Sigríðar, lang- ömmu Sveins Skorra Höskuldssonar prófessors, en hálfbróðir Jóns, sam- feðra, var Sigurður, skáld á Arn- arvatni, faðir Málmfríðar alþm. Móðir Árna frá Múla var Val- gerður Jónsdóttir, þjóðf.m. á Lund- arbrekku Jónssonar, ættföður Reykjahlíðarættar Þorsteinssonar. Ragnheiður var dóttir Jónasar Guð- brandssonar, steinsmiðs í Reykja- vík, og Guðríðar Jónsdóttur. Eftirlifandi eiginkona Jóns Múla er Ragnheiður Ásta Pétursdóttir, fyrrv. útvarpsþulur. Fyrri konur hans voru Þórunn Thorsteinsson og Guðrún Jóna Thorsteinsson. Jón Múli ólst upp í Reykjavík og á Seyðisfirði, lauk stúdentsprófi frá MR 1940, prófi í forspjallsvísindum og efnafræði við HÍ, var við nám í trompetleik hjá Albert Klahn og tónfræði hjá Karli O. Runólfssyni við Tónlistarskólann í Reykjavík og í söngtímum hjá Pétri Á. Jónssyni. Jón Múli var háseti á togurum, línuveiðurum og mótorbátum á sumrin 1937-43, starfaði hjá RÚV frá 1946, fyrst á fréttastofu en lengst af þulur, starfaði á leiklistardeild um árabil og var fulltrúi á tónlistardeild, hafði umsjón með vikulegum djass- þáttum frá 1945 og nánast samfellt til starfsloka 1995, og kynnti í út- varpi tónleika Sinfóníuhljómsveitar Íslands 1950-90. Jón Múli söng í ýmsum kórum, var einn af stofnendum Lúðrasveitar verkalýðsins og blés þar í trompet í tvo áratugi. Hann er í hópi ástsæl- ustu tónskálda þjóðarinnar og ásamt Jónasi, bróður sínum, höfundur ým- issa söngleikja og gamanþátta, s.s. Deleríum búbónis og Járnhaussins. Hann samdi sönglögin í Rjúkandi ráði og Allra meina bót og fjölda vin- sælla og ódauðlegra dægurlaga. Jón Múli skrifaði endurminn- ingar, Þjóðsögur Jóns Múla Árna- sonar, í þremur bindum, 1996-2000. Jón Múli lést 1.4. 2002. Merkir Íslendingar Jón Múli Árnason 90 ára Halldóra Gísladóttir 85 ára Jóna Kristjana Guðmundsdóttir Sigtryggur Ellertsson Tryggvi Kristjánsson 80 ára Birgir Matthías Indriðason Hákon Sófusson Sjöfn Ásgeirsdóttir 75 ára Jórunn Helga Árnadóttir Jörundur Guðmundsson 70 ára Benoný Halldórsson Edda Aspar Elín Helga Jónsdóttir Gísli Júlíusson Gunnveig Hulda Gunnarsdóttir María Guðrún Loftsdóttir 60 ára Aðalheiður Björgvinsdóttir Ásbjörn Garðarsson Davíð Magnússon Elzbieta Ewa Cybulska Fjóla Kristín Árnadóttir Garðar Björgvinsson Helga Þórarinsdóttir Hildur Eðvarðsdóttir Jóhanna Gunnarsdóttir Kristín Gunnarsdóttir Margrét D. Kristjánsdóttir Óskar Aðalgeir Óskarsson Vernharður Stefánsson Victor Jr. Daroy Requierme 50 ára Aðalheiður Pálsdóttir Agnar Helgi Arnarson Ásdís Bragadóttir Barði Sigurðsson Dagný Einarsdóttir Ellen Tryggvadóttir Guðrún Hulda N. Gunnarsdóttir Hálfdán Óskarsson Jónatan Vernharðsson Lilja Guðmundsdóttir Margrét Björk Kjartansdóttir Óli Þór Árnason Ólöf Snorradóttir Ragnar Logi Björnsson Ragnheiður Jónasdóttir Renata Teresa Oliver Kapanke Sigríður Jóna Jónsdóttir 40 ára Anna Kristín Árnadóttir Artur Wasiukiewicz Brynja Björk Magnúsdóttir Davíð Örn Kjartansson Harpa Fönn Matthíasdóttir Hákon Davíð Halldórsson Jón Arnberg Kristinsson Karl Ásberg Steinsson Tomasz Marciszewski Þorgerður Pétursdóttir 30 ára Dagmar Evelyn Gunnarsdóttir Malwina Daria Cichon María Reynisdóttir Unnur Dögg Lindudóttir Þorbjörg Sigfúsdóttir Ævar Jónsson Til hamingju með daginn 40 ára Karl ólst upp á Þórshöfn, lauk meist- araprófi í flug- og bifvéla- virkjun og rekur bifreiða- og vélaverktæðið Mót- orhaus á Þórshöfn. Maki: Halldóra Sigríður Ágústsdóttir, f. 1980, verslunarmaður. Foreldrar: Steinn Karls- son, f. 1961, hafnarvörður á Akureyri, og Áshildur Kristjánsdóttir, f. 1960, hjúkrunarfræðingur við Landspítalann í Reykjavík. Karl Ásberg Steinsson 40 ára Jón lauk skrif- stofunámi og er trygg- inga- og lífeyrisráðgjafi hjá Tekjuvernd. Maki: Eva Hrund Guð- marsdóttir, f. 1977, við- skiptafræðingur og skrif- stofustjóri. Börn: Thelma Björk, f. 2000, og Guðmar Gauti, f. 2007. Foreldrar: Laufey Dag- mar Jónsdóttir, f. 1949, og Kristinn A. Sigurðsson, f. 1946. Jón Arnberg Kristinsson 40 ára Hákon ólst upp í Bandaríkjunum, býr í Kópavogi, lauk BS-prófi í alþjóðamarkaðsfræði og starfar hjá Símanum. Maki: Sveina Berglind Jónsdóttir, f. 1978, ráð- gjafi hjá Hagvangi. Börn: Elísabet Hrönn, f. 2006, og Daníel Ísar, f. 2009. Foreldrar: Halldór Karl Valdimarsson, f. 1950, og Elísabet Hákonardóttir, f. 1952. Hákon Davíð Halldórsson mbl.is/islendingar islendingar@mbl.is Börn og brúðhjón Hitablásarar og rafstöðvar öflugir vinnuþjarkar fráZipper ogHolzmann Hitablásari HDK 30T - 30Kw brennir steinolíu og dísil Hitablásari HDK 15T - 15Kw brennir steinolíu og dísil Rafstöð 1,36kw-STE3000 Rafstöð 7,5kw-STE8000 Rafstöð 1,3kw-STE2000 Eigum einnig fyrirliggjandi fleiri tegundir rafstöðva IÐNVÉLAR ehf. | Smiðjuvegi 44-46 | 200 Kópavogur | Sími 414 2700 | idnvelar@idnvelar.is | idnvelar.is
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.