Morgunblaðið - 31.03.2016, Síða 80

Morgunblaðið - 31.03.2016, Síða 80
80 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. MARS 2016 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Eins og er er eitthvað sem þú vilt svo mikið og af öllu hjarta að það hefur dularfullt vald yfir þér. Mundu að kapp er best með forsjá. 20. apríl - 20. maí  Naut Það er ekki skrýtið að börn elski sporð- drekann og að vonbiðlar hópist að honum. Eitthvað verður samt til þess að gleðja þig ennþá meir. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Þú átt það til að segja hlutina um- búðalaust sem gerir það að verkum að þú færð fólk upp á móti þér. Bregstu vel við samkeppni. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Ekki er víst að hrúturinn sé sér með- vitandi um hvað það er sem hann metur mest. Ekki lenda í rifrildi við samstarfsfólk og ekki kenna öðrum um. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Þú verður náttúrlega að hafa þig í frammi, ef þú vilt að aðrir komi til liðs við þig. Ef þú veist hvar þú vilt vera að tíu, fimm eða einu ári liðnu, þá veistu hvað þú þarft að gera í dag. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Þetta er ekki rétti mánuðurinn til að kaupa nýja tölvu, bíl eða annað farartæki. Hentu fjörefnunum og einbeittu þér að því að laða rausnarlegri manngerðir inn í líf þitt. 23. sept. - 22. okt.  Vog Ef þú ert ekki ánægður með stöðu mála er kominn tími til að gera eitthvað í því. Ekk- ert er sárara en þegar lausmælgi annarra op- inberar innstu tilfinningar og leyndarmál. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Gefðu þér tíma til þess að sinna vinum og vandamönnum og leita lausna á þeim vandamálum, sem þeir vilja bera upp við þig. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þótt þér finnist þú hafa lausnina skaltu ekki blanda þér í annarra vandamál. Spurningin: „Hvað næst?“ verður fljótlega: „Hverjum er ekki sama?“ 22. des. - 19. janúar Steingeit Farðu þér hægt þegar til þín verð- ur leitað um ráðgjöf í vandasömu einkamáli. Gakktu því í málin og fáðu þau á hreint. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Alveg sama hversu ánægður þú vanalega ert, geturðu ekki beðið í dag þar til klukkan verður fimm. En ef þú gerir það við elskuna eða yfirmanninn, verðurðu grunaður um græsku. 19. feb. - 20. mars Fiskar Ekki afsala þér öllu í dag og ekki búast við of miklu frá öðrum. Vertu ekki stífur held- ur reyndu að slá á létta strengi. Arnþórr leirskáld segir á Leirn-um að þau Elín hafi þóst heyra í lóu á föstudaginn langa á ferð þeirra á Orminum bláa um Naut- hólsvíkursvæðið. Afleiðingin varð þessi leirsletta: Er nú rétt að yrkja um vor, enda komin lóa. Eflast bæði þrek og þor, þyngsli hverfa, léttast spor. Í grein sinni „Eldgamlar vísur í umbúðum“ tekur Guðmundur á Sandi upp þessa vísu: Blessuð lóan syngur sætt og segir dýrðin. Það er hennar þakkargjörðin, þegar hún kemur hér í fjörðinn. Síðan bætir hann við: „Enga vísu heyrði ég oftar kveðna en þessa, þegar ég var barn, og engin vísa varð mér kærri. Fylgdi henni sú skýring, að lóurnar færu alls eigi af landi burt – þær lægju í dái yfir vet- urinn í klettaskorum. Gísli Brynj- úlfsson hefur kveðið um þessa trú á æfintýralegan hátt.“ Ég gat ekki stillt mig um að rifja upp kvæði Gísla: Einn um haust í húmi bar hal að kletta sprungu, úti kalt þá orðið var, öngvir fuglar sungu. Sá hann lóur sitja þar sjö í kletta sprungu, lauf í nefi lítið var og lá þeim undir tungu. Og hann sá að sváfu þær svefnamóki þungu, læddist inn og einni nær inn í kletta sprungu. Vorið eptir enn hann bar einn að kletta sprungu visin laufblöð lágu þar, lóur úti sungu. Eptir sat hún ein í kleif, ekki lauf við tungu, dauðinn að henni dapur sveif djúpt í kletta sprungu. Burt hann fór, en bera kíf börn í hjarta ungu fyrir þá sem lítið líf lét í kletta sprungu. Sjálfur segir Guðmundur í Haust- löng: Kuldi blindur þyrmi þér, þoku og vinda hætta. Hljóttu yndi hvar sem er heiðló tindilfætta! Í kvæðinu Lágnætti eftir Þorstein Erlingsson stendur: Sofnar lóa er laung og mjó ljós á flóa deyja; verður ró um víðan sjó, vötn og skógar þegja. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Lóan syngur sætt og segir dýrðin Í klípu „ÞETTA ER ALGENGT HÉR Í HVERFINU. ÉG ER AÐ HUGSA UM AÐ FLYTJA.“ eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „EKKI SULLA NIÐUR DRYKKNUM MÍNUM MEÐAN ÉG ER Á KLÓSETTINU.“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... söngvaseiður. UMFJÖLLUNAREFNI DAGSINS... „KETTIR: AF HVERJU ERU ÞEIR SVONA GLATAÐIR?“ SPYRJUM SÉRFRÆÐINGANA... VOFF! VOFF! ÓHLUTDRÆGIR ÁLITSGJAFAR, EINMITT ÉG ER HÆTTUR AÐ SALTA MATINN MINN! GOTT HJÁ ÞÉR, ELSKAN! ÞAÐ ER MIKLU BETRA AÐ NOTA KÖKUSPÆNI! Víkverji hefur löngum heillast afvísindaskáldskap, einkum ef hann er í dimmari kantinum. Kvik- myndaserían um tortímandann hef- ur til að mynda verið í sérstöku uppáhaldi hjá Víkverja, þar sem á bak við „heilalausar“ sprengingar og vöðvahnykl Arnolds leynast nokkuð djúpstæðar pælingar, sem jafnvel má kalla ótta, um að á endanum muni mannkynið tortíma sjálfu sér með tækninni, nánar tiltekið með því að hanna svo fullkomna gervigreind, að hún muni ákveða það að mann- skepnan sé óþarft lýti á jörðinni. x x x Slíkar vangaveltur eru kannskiekki nýjar af nálinni, en þær hafa fengið nokkuð mikinn byr á síð- ustu misserum, eftir því sem rann- sóknum á gervigreind vindur fram. Nýjasta dæmið um það hversu langt mannkynið er komið er gervigreind- in AlphaGo, sem ku vera langbest í heimi í borðspilinu forna, Go. Það hljómar svo sem ekki svo merkilega, nema fyrir þær sakir að Go er talið eitt flóknasta borðspil sem hannað hefur verið, og almennt séð var talið að það myndi taka mun lengri tíma í viðbót áður en mönnum tækist að hanna gervigreind sem réði við spil- ið. Þær spár þutu hins vegar út um gluggann á dögunum, þegar forritið gerði sér lítið fyrir og rassskellti heimsmeistarann 4-1 í fimm leikja einvígi. x x x Öllu betri fréttir fyrir þau okkar,sem eru á „Skynet-vaktinni“, komu hins vegar frá Microsoft- tölvurisanum. Þar á bæ ákváðu menn að setja á flot „gervigreind“, sem gæti tjáð sig á Twitter við fólk á aldrinum 18-24 og lært af tungutaki þess. Tilraunin heppnaðist ekki bet- ur en svo, að á mettíma var „Tay“, eins og Microsoft nefndi forritið, orðin að rasista og farin að senda frá sér tíst á borð við þau að Adolf gamli hefði nú ekki verið hreint svo slæm- ur. Microsoft-menn brugðust snöggt við og tóku Tay niður um stund til viðgerða. Sú viðgerð heppnaðist ekki betur en svo að Tay ákvað að monta sig af því að hafa reykt kannabis fyrir framan lögreglustöð. Færir það Víkverja von í brjóst um að tortíming mannkynsins sé lengra undan en óttast var. víkverji@mbl.is Víkverji Vísa mér vegu þína, Drottinn, kenn mér stigu þína. Sálm. 25.4
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.