Morgunblaðið - 31.03.2016, Side 86

Morgunblaðið - 31.03.2016, Side 86
86 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 31. MARS 2016 Guðjón Ketilsson hefur áferli sínum fengist við aðendurvinna og umbreytahlutum af einstöku næmi, og draga þannig fram merking- arvíddir sem tengjast m.a. minn- ingum og kenndum, atburðum eða sögum. Við þessa umbreytingu öðl- ast hlutirnir eiginleika sem skapa sérstök tengsl verka hans við áhorf- andann. Á sýningunni Málverk í Hverfisgalleríi hefur listamaðurinn tekið nítján verk sem hann málaði á 9. áratugnum, skorið þau niður í langar ræmur og límt saman í stafla. Þá hefur hann pússað niður gamlar pallettur úr eigin fórum og annarra listamanna; mörg lög af storknaðri málningu sem blönduð hafði verið í diskum og skálum, og er nú engu líkara en þar séu á ferð dýrindis gripir úr marmara. Verkin hanga öll á vegg – eins og málverk. Málverkin voru upphaflega máluð á mótunarskeiði listamannsins á 9. áratugnum, þegar hið svonefnda „nýja málverk“ var áberandi í myndlistinni. Sum þeirra hafa aldrei verið sýnd áður og flest legið upp- rúlluð í hirslum á vinnustofu lista- mannsins. Vegna þess að Guðjón hafði merkt hverja rúllu með lýs- ingu á myndefninu, hefur hann get- að séð myndina fyrir sér í gegnum árin án þess að þurfa að breiða úr rúllunni. Sýningin í Hverfisgalleríi hefur svipaða virkni, því að verk- unum fylgir ný lýsing í textaformi á fígúratífu myndefni – sem þó er ekki sýnilegt sem slíkt (enda hefur hvert málverk hefur verið skorið í sundur og límt saman aftur í mjóan stafla). Nýju lýsingarnar hafa verið unnar af fagmanneskju á sviði sjón- lýsinga fyrir blinda og sjóndapra, þær eru nákvæmar og hlutlægar en nýta sér gjarnan myndræna eig- inleika tungumálsins í þeim tilgangi að höfða til skilningarvitanna. Sjónrænt minnir hvert staflaverk á lokaða bók sem býður aðeins upp á inntakslýsingu eins og þá sem oft má lesa aftan á bókarkápum. Les- andinn verður að ráða í inntakið með þekkingu, reynslu og ímynd- unaraflið að leiðarljósi. Efnisveru- leiki staflanna verkar á skynjunina þegar gengið er meðfram ílöngum verkunum eins og um mishæðótt og blæbrigðaríkt landslag með sýni- legum jarðlögum: áhorfandinn er minntur á eigindir „málverksins“ sem í grunninn er einfaldlega máln- ing á striga. Skynjun og skilningur á verkunum mótast af hlutbundnum sem óhlutbundnum þáttum og smám saman ljúkast upp hug- armyndir þegar lesið er í efni og sjón-mál verkanna. Merking mál- verkanna kviknar þannig í túlkun hvers og eins sýningargests sem gengur síður en svo „sjóndapur“ frá sýningunni jafnvel þótt hin upp- runalegu málverk heyri nú sögunni til. Tilfinning fyrir tíma er rík í fín- pússuðu skálarverkunum sem eru í sjálfum sér eins konar söfn máln- ingarlaga, söfn um líf og störf lista- mannanna. Verkin minna á fyr- irbæri úr steinaríkinu og jarðsögunni – og fer vel á því að sýna þessi verk með hinum. Öðrum þræði fjallar sýningin Málverk um eiginleika og sögu málverksins, um samhengi þess og hvernig það skap- ar tengsl við umhverfið og áhorf- andann. Sem fyrr nær skynrænt að- dráttarafl verka Guðjóns tangarhaldi á áhorfandanum og fær hann til að skoða samband okkar við veruleikann og hvernig við lesum í hlutina í kringum okkur. Mál verkanna Morgunblaðið/Einar Falur Litadýrð Skál sem Guðjón notaði til litablöndunar og pússaði niður máln- ingarlögin þannig að úr verður verk sem líkist dýrindis grip úr marmara. Hverfisgallerí Guðjón Ketilsson – Málverk bbbbn Til 9. apríl. Opið þriðjud.-föstud. kl. 11- 17 og laugard. kl. 13-16. Aðgangur ókeypis. ANNA JÓA MYNDLIST Morgunblaðið/Einar Falur Í ræmur Guðjón tók verk sem hann málaði á 9. áratugnum, skar þau niður í ræmur og límdi saman í stafla. Tveir fyrirlestrar verða haldnir á vegum Miðaldastofu Háskóla Íslands í dag kl. 16.30 í stofu 132 í Öskju. Kol- finna Jónatansdóttir, doktorsnemi í íslenskum mið- aldabókmenntum við HÍ, heldur fyrirlesturinn „Áður veröld steypist“ sem fjallar um ragnarök Sturlunga- aldar. Kolfinna hefur einkum fengist við rannsóknir á goðafræði og fjallar doktorsritgerð hennar um ragna- rök. Viðar Pálsson, lektor í réttarsögu við lagadeild Há- skóla Íslands, flytur fyrirlesturinn Ofbeldi og sagnaritun á öld Sturlunga og verður í honum farið nokkuð vítt yfir þá útbreiddu skoðun að Sturlungaöld hafi einkennst af ofbeldi og upplausn umfram það sem áður gerðist í ís- lensku samfélagi og jafnvel lengst af síðan, eins og segir í tilkynningu. Við- ar lærði sagnfræði til BA-prófs við HÍ og til meistaraprófs og doktorsprófs við Kaliforníuháskóla í Berkeley. Rannsóknarsvið hans er evrópsk mið- aldasaga, einkum Norður-Evrópu. Tveir fyrirlestrar um Sturlungaöld Kolfinna Jónatansdóttir Á mótum tveggja tíma nefnist ljós- myndasýning Díönu Júlíusdóttur sem opnuð verður í Skoti Ljós- myndasafns Reykjavíkur í dag. Í myndum sýningarinnar leitast Díana við „að túlka á ljóðrænan hátt hið einangraða þorp Kulusuk sem oft er kallað dyrnar að Austur- Grænlandi. Börnin í þorpinu eru sérstakt viðfangsefni myndanna en framtíð þeirra er óviss sökum mik- illar fólksfækkunar á svæðinu. Sýn- ingin er afrakstur innblásturs sem löngu yfirgefin hús, börn að leik og stórbrotið landslag veittu Díönu á Grænlandi,“ segir í tilkynningu. Díana stundaði nám í Ljósmynda- skólanum og hélt sína fyrstu einka- sýningu í Turninum árið 2013. Að- gangur að sýningunni er ókeypis. Díana sýnir ljós- myndir í Skotinu Ljósmynd/Díana Júlíusdóttir Yfirgefið Díana túlkar á ljóðrænan hátt hið einangraða þorp Kulusuk. Ljósmyndarinn Hörður Geirsson og Guðrún Pál- ína Guðmunds- dóttir safn- fulltrúi leiða gesti um ljós- myndasýninguna Fólk / People í Listasafninu á Akureyri í dag kl. 12.15-12.45. „Fólk segir áhorfandanum sögur af fólki og gefur innsýn í verk sjö listamanna sem allir vinna með ljós- myndir á ólíkan hátt,“ segir í til- kynningu, en sýnendur eru auk Harðar þau Barbara Probst, Hall- gerður Hallgrímsdóttir, Hrafnkell Sigurðsson, Hrefna Harðardóttir, Ine Lamers og Wolfgang Tillmans. Sýningarstjóri er Hlynur Hallsson. Sýningin stendur til 29. maí og er aðgangur ókeypis. Leiðsögn í dag um sýninguna Fólk Hörður Geirsson Ákveðið hefur verið að senda um- fangsmikla minningartónleika um David Bowie út í beinni útsendingu á netinu. Þetta kemur fram í frétt á vef breska fjölmiðilsins BBC. Vegna mikils áhuga á tónleik- unum ákváðu skipuleggjendur að fara í samstarf við Skype og gefa aðdáendum tónlistarmannsins tækifæri til að fylgjast með á net- inu gegn 15 punda greiðslu, sem samsvarar tæpum 2.700 ísl. kr. Féð rennur til góðgerðarsamtaka að eigin vali. Tónleikarnir sem nefnast The Music of David Bowie verða haldn- ir í Radio City Music Hall í New York á morgun, föstudag, kl. 20 að staðartíma eða á miðnætti að ís- lenskum tíma. Meðal þeirra sem fram koma á tónleikunum eru Mumford & Sons, Blondie and The Pixies. Hægt er að horfa á tón- leikana á vefnum: http://musicofdavidbowie.com/. Minningartónleikar í beinni á netinu AFP Meistari Davids Bowie verður minnst. ÚTSALACO L F R OM EV E R Y ANG L E 100% va tn she ldu r ECCO - KRINGLAN - SÍMI: 5538050 STEINAR WAAGE KRINGLAN & SMÁRALIND WWW.SKOR.IS

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.