Orð og tunga - 01.06.1998, Side 58
46
Orð og tunga
málið er ýmist miðað við notendahóp eða efnissvið, þ.e. hverjir nota tiltekinn orðaforða
(hópmál) eða hvaða efnissviði tiltekinn orðaforði tilheyrir (fagmál) (1987:36).
I þessari umfjöllun um almenna íslenska orðabók er fagorðaforðinn því sá fletti-
orðaforði bókarinnar sem telst til fagmáls samkvæmt ofangreindum skilgreiningum.
Samanburður á orðabókum
Nýjustu orðabækur eru oft eins konar blanda orðabókar úr almennu máli og alfræði-
orðabókar. I Norðu eru þess konar bækur nefndar alrœnar orðabœkur (allordböcker).
I Handbok í lexikografi segir um muninn á almennri orðabók og alfræðiorðabók, í
lauslegri þýðingu:
Munurinn á almennri orðabók og alfræðiorðabók felst í hvaða upplýsingar
þær veita. Þessu má lýsa á einfaldan hátt með því að segja að alfræðiorða-
bókin veiti upplýsingar um heiminn en almenna orðabókin veiti upplýs-
ingar um sérstakar einingar í tjáskiptatækinu (málinu) sem menn nota til
að miðla hver öðrum þekkingu á heiminum. ... Önnur (og kannski um of
einfölduð) aðgreining er að orðabókin veitir svar við spurningunni „Hvað
merkir (orðið) X?“, en alfræðiorðabókin svarar aftur á móti spurningunni:
„Hvað er (fyrirbærið) X? “ (Svensén 1987:3).
I alrænum bókum fá menn bæði að vita hvað uppflettiorðið merkir og skýringu á
fyrirbærinu. Alrænar bækur eru líka stærri og viðameiri en bækur úr almennu máli.
Fagorðaforðinn er meiri og skýringarnar ítarlegri. Þetta sést betur við samanburðinn á
orðabókunum hér á eftir. Ég valdi af handahófi orðið bróm til að nota við samanburðinn
á afgreiðslu flettiorðanna.
Nudansk ordbog
NDO er helsta danska einmála orðabókin úr almennu máli. Hún er yfir 50 þús. flettiorð
eða um helmingi minni en fyrirhuguð íslensk orðabók. Flettiorðaval í NDO miðast
við almennt mál; í formálanum er tekið fram að ekki sé fagmál í bókinni. Þar segir, í
lauslegri þýðingu:
... fagorð, orð og orðatiltæki, sem aðeins eru þekkt og notuð af fagmönn-
um í tilteknu fagi, eru ekki með og þeirra verður að leita í sérstökum
fagorðabókum (1984:7).
Orðið bróm er flettiorð í NDO og þar er merkingarskýringin einfaldlega: „heiti á
frumefni“. Þarna fær lesandinn aðeins að vita hvað orðið merkir. Með tilliti til þess sem
segir í formálanum lítur ritstjórnin svo á að orðið bróm tilheyri almennum orðaforða
og að danskur almenningur geti látið sér detta í hug að fletta orðinu upp til að vita hvað
það merkir en ef menn vilja fá frekari upplýsingar, og vita hvað bróm er, verða þeir að
leita annað; þeim er bent á fagorðabækur. Merkingarskýringin er einnig í samræmi við
lýsingu Svenséns á almennri orðabók.