Orð og tunga - 01.06.2011, Page 62
52
Orð og tunga
Rm eru frá miðri 16. öld og ekki verður farið aftar í tíma nema sérstök
ástæða sé til. I lokakafla verða niðurstöður dregnar saman.
2 Hallgrímur Scheving og Florilegium
Hallgrímur Scheving (1781-1861) var mestan hluta ævinnar kennari,
fyrst í Bessastaðaskóla og síðan við Lærða skólann. Ástæða þess að
hann hóf að safna til íslenskrar orðabókar virðist hafa verið sú að
honum hafi þótt mikið vanta af orðum, einkum úr mæltu máli, í
íslensk-latnesk-danska orðabók Björns Halldórssonar sem kom út í Kaup-
mannahöfn 1814.1 Eftir hann liggja tvö handrit, bæði hreinrit, hvorugt
með hendi hans sjálfs, og eru bæði varðveitt í handritadeild Lands-
bókasafns-Háskólabókasafns undir númerunum Lbs. 220 8vo og Lbs.
283-285 4to. Ef eldra handritið, sem er með rithönd Konráðs Gísla-
sonar (Finnbogi Guðmundsson 1970:167), er borið saman við orðabók
Björns Halldórssonar fer varla milli mála að um viðbætur er að ræða.
Oft er vitnað til orðabókarinnar með orðum eins og sjá, hjá, aliter, præve
eða perperam BH og nýjum tölusettum merkingum bætt við fjölda
orða sem þar eru tilfærð eins og þær væru viðbætur við orðabókina
(Guðrún Kvaran 2008:157). Segja má Birni til vorkunnar að handritið
lá frágengið frá hans hendi í aldarfjórðung áður en einhver fékkst
til að leggja fram fé til útgáfunnar og Björn lifði ekki að sjá bókina
á prenti. Rasmus Kristján Rask var fenginn til að bæta dönskum
skýringum við þær latnesku hjá Birni. Um orðasöfnun Hallgríms má
lesa í tímaritinu íslenskt mál, 30. árgangi (Guðrún Kvaran 2008).
Ekki er ólíklegt að Hallgrímur hafi rekist á fjölda orða við yfirferð
á bók Björns sem hann taldi aðkomuorð í íslensku máli. Hann safnaði
slíkum orðum sérstaklega og kallaði safn sitt Florilegium. Orðið er
latnesk þýðing á gríska orðinu antologia sem þýðir 'blómasafn' en er
einnig notað um safn kvæða, spakmæla eða annað þess háttar. Flori-
legium mætti því kalla 'dæmasafn' eða 'samtíning'. Þessi samantekt er
nú varðveitt á Landsbókasafni-Háskólabókasafni og er hún í böggli
merktum Lbs. IB 359 4to sem hefur að geyma ýmis gögn séra Magnúsar
Grímssonar. Magnús var tekinn í Bessastaðaskóla 1842 og lauk þaðan
prófi 1848 (Páll Eggert Ólason III, 1950:423-424) og hefur Hallgrímur
líklega ráðið hann til vinnu við hreinskriftir eins og Konráð Gíslason
áður (Guðrún Kvaran 2008:156). Á titilblað eins kversins í bögglinum
stendur „Florilegium conscriptum a Dr. H. Scheving". Fremst í kver-
1 Orðabókin var endurútgefin af Orðabók Háskólans 1992.