Orð og tunga - 01.06.2011, Page 93
Guðrún Þórhallsdóttir: Að kaupa til karnaðar sér ambátt
83
4 Samhengið
4.1 Setningin í Konungsbók
Orðið karnaðr er varðveitt í einni setningu í Konungsbók Grágásar
(Gl.kgl.sml. 1157 fol.) sem hér er sýnd.
Rétt er at macfr cavpe ti/ carnaþar ser amböt xii. avrom íyrir lof tram.
(Grágás 1852:192)
Rétt er at maðr kaupi til karnaðar sér ambátt, tólf aurum fyrir loffram.
(stafs. samr.)
Samkvæmt Grágásarskýringum Vilhjálms Finsen (Grágás 1883:641)
munu orðin tólf aurum fyrir loffram merkja 'fyrir tólf aura án leyfis'
(„for 12 aurar", „uden Tilladelse"). Þau orð kalla í fyrsta lagi á skýr-
ingu á því hvers konar leyfi átt er við. Þar höfðu eldri fræðimenn
(Schlegel og Baldvin Einarsson, tilv. eftir Grágás 1883:641) giskað
á að átt væri við samþykki eiganda ambáttarinnar þótt undarlegt
virðist að eigandinn þyrfti ekki að samþykkja kaupin. Vilhjálmur
hafði sjálfur lagt til að um leyfi lögréttu væri að ræða, þar sem orðin
fyrir lof fram virðast hafa þá merkingu í öðru samhengi, en fallið frá
þeirri hugmynd og talið líklegra að átt væri við leyfi nánasta erfingja
eigandans (Grágás 1883:641).
I öðru lagi má spyrja hvers vegna upphæðin tólf aurar er tilgreind
í textanum. Verðlag á þrælum var almennt ekki bundið í lög, en
meðalverð þræls telst tólf aurar silfurs, en ambáttar átta aurar silfurs
(Björn Þorsteinsson 1966:129). Þessi setning Grágásartextans hefur
því verið túlkuð þannig að hún heimili hærra verð en venjulega ef
ambáttin var keypt til karnaðar (t.d. Gunnar Karlsson 1986:61). Jochens
(1995:35) og fleiri hafa skilið setninguna sem heimild um hátt verð á
kynlífsambáttum: „a man was allowed to pay more than the normal
rate for a slave acquired for sexual purposes, a sign that youth and
beauty had their price" ('maður mátti borga meira en venjulegt verð
fyrir þræl sem var keyptur í kynlífstilgangi, merki um að æska og
fegurð hafi kostað sitt').
Þriðja spurningin, sem vaknar óhjákvæmilega, er hvaða tilgangi
orðin til karnaðar þjóna. Ef um hrein viðskipti er að ræða, skiptir þá
máli til hvers kaupandinn ætlar að nota þrælinn? Þrælasölu er iðulega
þannig lýst að kaupandi og seljandi semji sín á milli um verð, og það