Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.03.1984, Blaðsíða 3
FORSÍÐA:
Barn í bíl.
Samkvæmt finnskri könnun var þessi
búnaður talinn sá besti á markaðnum.
Sjá stöðu stólsins.
1. tölublað - mars 1984
60. árgangur
ÚTGEFIÐ AF HJÚKRUNARFÉLAGI ÍSLANDS
RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR:
INGIBJÖRG ÁRNADÓTTIR, SÍMI 15316 OG 41622.
RITSTJÓRN:
ÁSLAUG SIGURBJÖRNSDÓTTIR, SÍMI 27417.
ÁSA ST. ATLADÓTTIR, Sl'MI 51128
SIGRÍÐUR SIGURJÓNSDÓTTIR, SÍMI 99-1300.
AUGLÝSINGAR OG BLAÐDREIFING:
INGIBJÖRG ÁRNADÓTTIR, SÍMI 15316 OG 41622.
SIGRÍÐUR BJÖRNSDÓTTIR. SÍMI 15316 OG 21177.
BLAÐIÐ KEMUR ÚT ÁRSFJÓRÐUNGSLEGA.
ENDURPRENTUN BÖNNUÐ ÁN LEYFIS RITSTJÓRA.
PRENTUN: PRENTSMIÐJAN HÓLAR HF.
EFNISYFIRLIT
Áhrif áfengis á óborna einstaklinga 2
Börn á sjúkrahúsum 11
,,Farðu varlega - þetta er sárt“ 18
Móðurmjólkin 24
Sýning á öryggisútbúnaði barna í bílum 26
Landssamtökin ,,Mitt Livstestament" 27
Upplýsingarum heimilisdýrin 28
Minning - Anna Loftsdóttir 30
Kveðjuorð - Björg P. Bachmann 32
Nýting hjúkrunarrannsókna 33
Um menntamál hjúkrunarfræðinga 34
Ritkynning 40
Brautskráning frá NHS 41
Fréttir 42
Börn og velferð þeirra
Þetta blað er tileinkað börnum, í því er fjallað um
óborna einstaklinga, börn á sjúkrahúsum, sárs-
aukaskyn, gildi móðurmjólkur/brjóstagjöf, slysa-
fræðsla og gæludýr barnanna svo nokkuð sé
nefnt.
Öryggisbúnaður barna í bílum hefur víða verið
tekinn sérstaklega til umfjöllunar og ekki að
ástæðulausu, því enn er það daglegur viðburður
að sjá börn farþega í bílum, án alls öryggisbúnað-
ar.
Það væri hægt að koma í veg fyrir mörg slys og
draga úr öðrum ef börn væru vel varin.
Öryggisbúnaður fyrir börn hefur lengi verið til og
verður sífellt betri og öruggari. Gæðaprófanir fara
fram í flestum þeim löndum sem framleiða t. d.
barnabílstóla og barnabílbelti. Þær styðjast við
nokkrar meginreglur sem slysasérfræðingar víða
um heim eru sammála um. Mikilvægast er að
barniö sé ekki laust í bílnum. Þetta er svo brýnt
að talið er betra að barn noti fullorðinsbílbelti, t. d.
neðri ólina á þriggja punkta belti, en að það sé
laust.
í nóvember sl. gekkst Umferðarráð og Heilsu-
verndarstöð Reykjavíkur fyrir sýningu á slíkum
búnaði.
Um farandsýningu er að ræða sem heilsugæslu-
stöðvum um land allt gefst kostur á.
Hjúkrunarfræðingar þurfa seint og snemma, m. a.
vegna óreglulegs vinnutíma, að ferðast með börn
sín. Þeir þekkja vandamálin og eiga því auðvelt
með að leiðbeina öðrum.
Barnadeild Heilsuverndarstöðvar Reykjavíkur hóf
sl. vor hópfræðslu um almennar slysavarnir. Til-
gangurinn var að ná til foreldra og vekja athygli
þeirra á hinum mörgu slysagildrum í umhverfinu,
sem oft eru ærið mismunandi allt eftir þroska
barnsins.
Öryggi barna í bílum og í umhverfinu í heild er mál
sem snertir okkur öll. Verum vakandi yfir því sem
betur má fara og gerum umhverfí barnsins eins
hættulítið og kostur er.
IÁ
LANOS0CKASAF N
HJÚKRUN '/„ - 60. árgangur 1