Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.03.1984, Qupperneq 4
Guðlaug St. Sveinbjörnsdóttir geðhjúkrunarfræðingur
Áhrif áfengis
á óborna einstaklinga
Inngangur
Sl. 10 ár hefur vaxandi notkun
áfengis og annarra vímuefna haft
talsverð áhrif á heilbrigði og þjóð-
félagshætti víða um heim. Þetta
hefur orðið til þess að athygli
manna hefur beinst í æ ríkara mæli
að orsökum og afleiðingum slíkrar
neyzlu. Þess vegna hefur mikið
verið rannsakað og skrifað um
áfengis- og vímuefnanotkun á
undanförnum árum og fræðsla til
almennings víða verið stóraukin.
Eitt af því sem almenningur hefur
einna sízt verið fræddur um til
þessa er áhrif áfengis á óborna ein-
staklinga, á meðgöngutímanum.
Þetta stafar meðal annars af því að
vitneskjan er frekar nýleg. En nú er
orðin fyllileg þörf á því að gefa
þessum málum gaum.
Þegar rætt er um æviskeið mannsins
tala flestir um lífið frá fæðingu til
dauða en réttara er að segja frá
getnaði til grafar. Við getnað hefst
líf nýs einstaklings. Með því að búa
sem best að fóstrinu frá fyrstu tíð er
lagður grundvöllur að því að heil-
brigt barn fæðist í fyllingu tímans.
Fósturskeiðið er mjög þýðingar-
mikið æviskeið og hefur alls ekki
verið gefinn gaumur sem skyldi.
Þetta stendur þó til bóta. í U.S.A.
og fleiri löndum eru stöðugt að
koma fram fleiri og nákvæmari
rannsóknir sem sýna fram á mikil-
vægi fósturskeiðsins. Allar barns-
hafandi konur ættu því að taka
fyllsta tillit til hins væntanlega
barns og hlúa að því af fremsta
megni. Með því eru mestar líkur á
því að barnið verði hraust og heil-
brigt.
Þegar kona á von á barni eru til-
finningar hennar oft blendnar.
Hinar jákvæðu tilfinningar eru oft
mótaðar af stolti, spenningi og full-
nægjutilfinningu. En þar sem það
að eiga von á barni er svo þýðingar-
mikill viðburður í lífi hvers ein-
staklings þá er það mannlegt og
skiljanlegt að konan sé haldin efa
og kvíða samfara hinum mikla við-
burði sem í vændum er.
Jafnvel þar sem hvað mest er óskað
eftir barninu, velta margar konur
þessu fyrir sér. Er ég þess megnug
að bera ábyrgð á öðrum einstakl-
ingi næstu 18 árin? Hef ég fjárhags-
lega efni á því? Verður fæðingin
erfið? Og síðast en ekki síst stóra
spurningin: Eignast ég heilbrigt,
eðlilegt barn eða verður það and-
Iega og/eða líkamlega vanheilt?
Flestar konur hugsa svona einhvern
tíma meðgöngunnar. Nú vita þó
konur um heilmarga þætti sem þær
geta gert á meðgöngutímanum til
þess að auka líkurnar á því að þeim
fæðist heilbrigt barn. Reglulegt
eftirlit og næringarrík fæða er
nauðsynleg en það sem hin verð-
andi móðir verður sérstaklega að
vera á varðbergi gagnvart eru allar
tegundir lyfja og hve mikið af þeim
hún neytir á meðgöngutímanum.
Auk hinna óleyfilegu lyfja (ávana-
og fíkniefna) þá er vitað um ýmis
leyfileg lyf sem geta valdið fóstur-
skaða ef þau eru tekin inn á með-
göngutímanum. Nýlega hefur
áfengi bæst á þennan lista en áfengi
er nú „leyfilega lyfið“, sem mest er
notað.
Með aukinni þekkingu og rann-
sóknum síðustu ára á afkvæmum
drykkjusjúklinga hafa komið fram
sérstök útlits- og líffæraeinkenni og
lífeðlisfræðilegir gallar á börnum
þeirra sem kallast FAS, Fetal
Alcohol Syndrome (einkenni alko-
hóláhrifa á fósturskeiði). Mun ég
hér á eftir í umfjöllun minni um
þetta efni nota skammstöfunina
FAS. „Þessar rannsóknir hafa leitt í
ljós að áfengisneysla hefur mjög
alvarleg áhrif á fóstur og nú á
tímum er fósturskaði af völdum
áfengis talinn stærsti heilsuspillandi
þátturinn af völdum efna sem hægt
væri að fyrirbyggja.“3
Þessar staðreyndir eru tiltölulega
lítt kunnar og með auknu „jafnrétti
kynjanna'4 hefur tiltölulega meiri
aukning á áfengissýki orðið hjá
konum en körlum nú síðustu árin.
Það er því full ástæða til að kynna
almenningi þær hættur sem drykkja
á meðgöngutíma getur haft í för
með sér, þannig að hægt sé að
koma í veg fyrir skaða.
Sögulegt yfirlit
Það er aldagömul trú að neysla
áfengra drykkja við samræði sé
skaðvænleg fyrir fóstrið. í borgríkj-
unum Karþagó og Spörtu til forna
var nýgiftu fólki bannað að neyta
áfengis á brúðkaupsnóttina til að
fyrirbyggja fósturskaða. í ritum
Aristotelesar talar hann um að
fíflalegar, drukknar konur fæði af
sér vangefin börn.
í Englandi á 18. öldinni átti sér stað
það sem nefnt hefur verið gin-æð-
ið.:7 Þá flæddi ódýrt gin yfir landið
með þeim afleiðingum að mikil
2 HJÚKRUN V« - 60. árgangur