Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.03.1984, Síða 9
Myndir af 3 börnum meö FAS
■ Ai
A: Eins ársgömulindíánastúlka frá Bandaríkjunum með greindan ísitölu 59. B: 3 3/4 árs svörtstúlka með greindarvísitölu 47. C: 2 1 /2 árs hvitur
drengur med greindarvísitölu 50. Takið eftirhinum þröngu augnrifum-hjá öllum börnunum og að stúlkan á mynd B. hefurstrabismus (er rang-
eygð) og augnlokin eru missíð (ptosis)."
önnur ávanalyf
Neyzla annarra ávana- og fíkni-
efna, svo sem heróíns, methadons,
LSD og barbiturata hefur einnig í
för með sér auknar líkur á undir-
málsfæðingu, lágri fæðingarþyngd
og aukningu ungbarnadauða. Meiri
líkur benda til þess að ofdrykkju-
fólk hafi einnig neytt annarra
ávana- og fíkniefna. Hins vegar
kemur fram í rannsókn hjá Rosett
197821 að þar viðurkenndu aðeins
4% af öllum hópnum notkun á
öðrum vímuefnum en áfengi. í ann-
arri rannsókn hjá Kuzma og Philip
197713 sögðu 6% frá óleyfilegri
lyfjanotkun. í báðum hópunum
tengist lyfjanotkunin yfirleitt óhóf-
legri áfengisnotkun. Konur sem
ekki neyttu áfengis forðuðust
einnig neyzlu óleyfilegra efna.
Akveðin fylgni meðfæddrar van-
sköpunar, vaxtartruflunar og and-
legrar þroskahömlunar sem kann
að líkjast FAS hefur orðið vart í ný-
burum sem hafa fengið krampalyf í
móðurkviði. D. Janz sagði frá því
1975111 að vart hefði orðið með-
fæddrar vansköpunar í sambandi
við notkun á ýmsum krampalyfjum
meðan á meðgöngu stóð, einum sér
eða fleiri saman. Sjúklingar sem
Jiljóta langtíma meðferð á pheny-
toini eða öðrum skyldum lyfjum
eiga í erfiðleikum með að nýta
kalsium, fólínsýru, D-vítamín og
fleiri nauðsynleg efni fyrir líkam-
ann. Jafnframt eru breytingar á ný-
myndun stoðvefs oft fylgjandi
þessu. Hill, 1976x kom fram með
þá tilgátu að hið margþætta trufl-
unarástand og breytingar á efna-
skiptum sem fylgt hafa bæði lang-
tíma notkun á krampalyfjum svo og
neyzlu mikils af áfengi geti leitt til
eða beinlínis valdið einhverju um
þá vansköpun sem vart hefur orðið
hjá afkvæmum þessara kvenna.
Coffein
Óhófleg kaffineyzla fylgir oft óhóf-
legri áfengisnotkun og reykingum. í
dýrarannsóknum þar sem rannsak-
að hefur verið hvort coffein geti
valdið vansköpunum þá hefur
skammturinn sem notaður hefur
verið samsvarað því að maðurinn
þurfi að drekka allt frá 40-100
bolla af kaffi daglega.17 Enn sem
komið er þá hefur engin mannleg
vansköpun verið rakin til coffeins.
Antabus
Þó að antabus (disulfram) sé gagn-
legt hjálparefni í meðferð áfengis-
sjúklinga ætti ekki að gefa það á
meðgöngutíma. Hjá 5 konum sem
um meðgöngutíma fengu 250-500
mg/á dag af antabus þá kom í ljós
að þar var um að ræða: eitt fóstur-
lát á öðrum mánuði meðgöngu, 2
börn fæddust með klumbufót og 2
fæddust eðlileg.26 Könnun á van-
sköpun á 2 afkvæmum þar sem
mæðrunum hafði verið gefið anta-
bus fyrsta tímabil meðgöngu leiddi í
ljós alvarlega vansköpun á útlimum
þannig að þeir voru styttri en eðli-
legt taldist. Hvorug móðirin hafði
neytt áfengis né neins annars sem
vitað var að gæti haft vanskapandi
áhrif.
Það hefur sýnt sig (Samerhof og
Chandler 1975) að tilfinningaleg
streita tengist oft erfiðleikum í fæð-
ingu. Ekki hefur tekist að finna
neinn mismun á hinum ýmsu geð-
sjúkdómum. Hins vegar þegar geð-
sjúklingum er skipt eftir því hversu
veikir þeir eru, þá helst það oft í
hendur að þeir sem eru með flest
sjúkdómseinkennin og lengstu
sjúkrasöguna hafa átt í hvað
HJÚKRUN */m - 60. árgangur 7