Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.03.1984, Page 10
mestum erfiðleikum við fæðingu.
Ofdrykkjukonur nota áfengi iðu-
lega til þess að losna undan lang-
varandi kvíða og þunglyndi.
Nokkrar rannsóknir á vanþrifum
barna lýsa börnunum sem óværum,
óþekkum, erfitt sé að eiga við þau
o. fl. Venjulega er álitið að hér sé
um að kenna umhirðuleysi foreldra
en það þarf ekki að vera rétt. Alveg
eins gæti orsökin fyrir slælegri um-
hirðu legið í þessu erfiða hegðunar-
mynstri barnsins.
Afkvæmi drykkjusjúkra kvenna eru
í miklum áhættuhópi16 hvað við
kemur barnamisþyrmingum, van-
hirðu, ofvirkni, glæpahneigð og
öðrum hegðunarvandamálum. Eftir
því sem þau vaxa upp er þeim einn-
ig hættara við áfengissýki. Þessar
„svartsýnisspár" eru þó án efa
margsannaðar. Fjölskylda áfengis-
sjúklings lendir oft í örlagaríku
ástandi þar sem tryggð barnanna
við hvort foreldrið um sig verður að
tækjum eða vopni í baráttunni á
milli foreldra.
Niðurstöður og ályktanir
Eins og fram hefur komið hér á
undan hafa hin skaðlegu áhrif mik-
illar áfengisneyzlu á afkvæmi verið
rannsökuð á meðferðarlegan og
faraldursfræðilegan hátt auk þess
sem fjöldi af tilraunum og rann-
sóknum hafa farið fram á FAS.
Flinar faraldursfræðilegu rannsókn-
ir hafa verið mjög mismunandi
hvað varðar úrtaksstærð, þjóðhátt-
ar- og þjóðfélagsstöðu og aðferðar-
fræðin sem notuð hefur verið til að
staðreyna áfengisneyzlu mæðra og
tegundir rannsókna á hinum ný-
fæddu börnum verið mismunandi.
Mörg vandamál eru því samfara að
bera saman faraldursfræðilegar
rannsóknir sem framkvæmdar eru
af hinum ýmsu rannsóknarhópum.
Fyrst og fremst eru það hin aðferð-
arfræðilegu vandamál í nákvæmri
áætlun á áfengisneyzlu á með-
göngutímanum. Magn, breytileika
8 HJÚKRUN '/u - 60. árgangur
og tíðni áfengisneyzlu verður að
vega og meta mjög vandlega. Veita
verður athygli breytingum á
drykkjuvenjum sem eiga sér stað
yfir allan meðgöngutímann.
Sumar konur hvolfa í sig áfengi á
meðan aðrar halda sig frá því um
mismunandi langan tíma í einu.
Uppfræða þarf lækna sem og aðra
aðila innan heilbrigðisstéttanna um
hættuna sem er samfara ofdrykkju
á meðgöngutíma þannig að þeir séu
betur í stakk búnir til þess að veita
skjólstæðingum sínum viðeigandi
ráðleggingar.
Sérfræðingar ættu að vera þjálfaðir
í því að fá sem nákvæmasta
drykkjusögu hjá öllum konum sem
eru á barnseignaraldri. Konur, sem
segja frá mikilli drykkju, eiga að
hljóta ráðgjöf og stuðning í viðleitni
sinni til þess að draga úr áfengis-
neyzlu. Þeim sem bregðast ekki við
ráðgjöf innan nokkurra vikna ætti
að benda á nauðsyn mun ýtarlegri
meðferðar.
Á grundvelli núverandi þekkingar
er hægt að vara fólk við með því að
neyzla á meira en 85 ml af hreinum
vínanda á hvaða tímabili sem er,
getur haft hættu í för með sér.
Á meðan að ekki er vitað með vissu
hvaða þýðingu einn og einn drykk-
ur hefur þá er ekki hægt að segja til
um neitt öruggt lágmarksmagn.
Þær rannsóknir sem gerðar hafa
verið benda til þess að takmörkun á
áfengisneyzlu á meðgöngutímanum
eykur líkurnar á því að heilbrigt
barn fæðist.
Þessi þekking ásamt áhuga og um-
hyggju þeirra sem hin ófríska kona
hefur leitað til getur haft áhrif á
þann hátt að bæta heilsu hennar og
hins ófædda barns.
Fyrirbyggjandi aðgerðir
Hægt er að koma fyrir FAS og það
ættum við innan heilbrigðisstétt-
anna alltaf að hafa hugfast. Við
ættum að Ieggjast á eitt með að
miðla þessari þekkingu til almenn-
ings. Byrja strax við heilsufræði-
kennslu í skólum að uppfræða ungl-
inga með því að höfða til ábyrgðar
þeirra sjálfra en þó án allra
„predikana", boða og banna.
Einnig er afar mikilvægt að setja
greinargóðar upplýsingar um skað-
leg áhrif áfengis á fóstur í bæklinga
fyrir verðandi mæður þannig að
þeim séu strax gerðar ljósar afleið-
ingar sem af drykkju um með-
göngutíma geta hlotist.
Þar sem alltaf er tilhneiging til að
fela drykkju er mjög áríðandi að
þeir aðilar sem sjá um mæðraeftirlit
skrái strax hvernig drykkjuvenjum
er háttað. í samræmi við það er
þýðingarmikið að styðja þessar
konur og leiðbeina þeim. Fylgja
þeim vel eftir með stuðningsviðtöl-
um og í hópmeðferð þar sem þær
gætu stutt hver aðra á þessum
mikilvæga tíma, þ. e. meðgöngu-
tímanum. Endurskoða þyrfti upp-
lýsingar um andlega streitu hvað
varðar notkun áfengis og annarra
ávana- og fíkniefna, þar með talin
róandi lyf hjá sjúklingum með
alvarlegar og langvarandi sjúk-
dómsgreiningar. Eins og áður er
sagt frá er vannæring algengur
fylgifiskur áfengis. Næringarástand
verður að meta strax við fyrstu
skoðun og huga þá að betri næringu
og vítamíngjöf ef þurfa þykir.
Það hefur verið allt of hljótt um
þessi mál svo öldum skiptir. Lítið
sem ekkert virðist hafa verið um
þetta rætt og ritað frá tímum Forn-
grikkja fram á okkar daga að frá-
töldum síðasta áratug. Tel ég tíma-
bært að við geðhjúkrunarfræðingar
sem og aðrir hópar heilbrigðisstétt-
anna leggjumst nú á eitt um að úr
þessu verði bætt hið bráðasta.
Börn framtíðarinnar eiga ekki að
þurfa að líða fyrir það að þeirri
mikilvægu vitneskju sem fyrir hendi
er nú þegar sé ekki komið á fram-
færi til verðandi foreldra. Þannig
verða þeir og allir aðrir sem þetta
mál varðar færari um að búa börn-
unum sem bezta framtíð.