Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.03.1984, Page 25
Fulltrúafundur HFÍ1984
Fulltrúafundur HFÍ 1984 verður
haldinn í fundarsal BSRB, Grettis-
götu 89, Reykjavík, 9. og 10. maí
nk. og hefst kl. 9 árdegis.
Samkvæmt 9. gr. laga félagsins er
kjörtímabil framkvæmdastjórnar
annarra en formanns, eitt ár, þ.e.
milli fulltrúafunda.
Formaður félagsins, Sigþrúður Ingi-
mundardóttir, var kosin á fulltrúa-
fundi 1982 til þriggja ára.
Á fulltrúafundi HFÍ 1983 voru
eftirtaldir félagsmenn kosnir í fram-
kvæmdastjórn félagsins til eins árs.
Sigríður Guðmundsd. varaform.
Pálína Sigurjónsdóttir, ritari,
Steinunn Einarsdóttir, gjaldkeri,
Kolbrún Ágústsd. varagjaldk.
Hólmfríður G. Jónsd. vararitari.
Kolbrún Ágústsdóttir gefur ekki
kost á sér til endurkjörs.
Oddný M. Ragnarsdóttir gefur kost
á sér í stöðu varagjaldkera. Hún er
fædd árið 1941, brautskráð frá
Hjúkrunarskóla íslands 1962. Lauk
sérfræðimenntun í svæfingum í
Danmörku 1969. Oddný er nú
kennari við Nýja hjúkrunarskólann.
Rétt til setu á fulltrúafundi með at-
kvæðisrétti hafa:
1. Félagsstjórn.
2. Kjörnir fulltrúar svæðisdeilda.
Hversvæðisdeild skal hafa 1 full-
trúa og síðan 1 fulltrúa fyrir
hverja 50 félaga.
3. Einn fulltrúi hjúkrunarnema.
Öðrum félögum er heimil þátt-
taka án ákvæðisréttar.
Félagsstjórn skipa: framkvæmda-
stjórn og formenn svæðisdeilda.
Varaformenn svæðisdeilda eru
varamenn viðkomandi formanns í
félagsstjórn.
Til fulltrúafundar verður boðað
með bréfi til hvers fulltrúa fjórum
vikum fyrir fulltrúafund.
Félagsmenn HFÍ eru hvattir til að
sækja fulltrúafund félagsins.
Samkvæmt félagaskrá HFÍ 1. janúar
1984 er félagafjöldi svæðisdeilda og
fulltrúar á fulltrúafund HFÍ 1984
eftirfarandi:
Fél. Fltr.
Reykjavíkurdeild
Vesturlandsdeild
Vestfjarðadeild
Norðurlandsdeild vestri
Norðurlandsdeild eystri
Austurlandsdeild
Suðurlandsdeild
Vestmannaeyjadeild
Suðurnesjadeild
1.331 27
63 2
38 1
45 1
155 4
34 1
50 1
22 1
28 1
1.766 39
í HFÍ eru skráðir 1973 félagar um ára-
mót 1983/1984 þar af 207 erlendis.
Aðalkjarasamningur
Bandalag starfsmanna ríkis og bæja
og fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs
gera með sér svofelldan aðalkjara-
samning fyrir tímabilið 1. mars
1984 til 31. mars 1985.
!• gr.
Síðast gildandi aðalkjarasamningur
aðila ásamt bókunum framlengist
með þeim breytingum, sem í samn-
ingi þessum greinir.
2- gr-
Frá 1. mars 1984 hækka laun í
launaflokkum skv. gr. 1.1.1. í aðal-
kjarasamningi BSRB um 5% frá
síðast gildandi launum. Þessi laun
skulu aftur hækka um 2% hinn 1.
júní 1984, um 3% hinn 1. septem-
ber 1984 og um 3% hinn 1. janúar
1985, enda hafi launaliðum samn-
ings ekki verið sagt lausum skv.
heimildarákvæðum 4. greinar.
3. gr.
Lágmarkstekjur fyrir fulla dag-
vinnu skulu frá 1. mars 1984 vera
sem hér segir:
Kr. 11.509 fyrir starfsmenn 16 ára
og eldri.
Kr. 12.660 fyrir starfsmenn 18 ára
og eldri, aðra en afleysingafólk með
skemmri starfsaldur en 6 mánuði.
Framangreindar fjárhæðir taka
breytingum skv. 2. gr. 1. júní og 1.
sept. 1984 svo og 1. janúar 1985.
Þegar metið er hvort starfsmaður á
rétt á greiðslum vegna þessa
ákvæðis, skal telja með dagvinnu-
tekjum allar launagreiðslur aðrar
en greiðslur vegna yfirvinnu, vakta-
vinnu eða kostnaðargreiðslna.
Ákvæði þessarar greinar taka ekki
til unglinga innan 16 ára aldurs né
þeirra, sem eru á nemalaunum.
4. gr.
Samningur þessi gildir til 31. mars
1985, en heimilt er samningsaðilum
að segja upp launaliðum samnings-
ins með mánaðar fyrirvara þannig
að þeir verði lausir 1. september
1984 og 1. janúar 1985.
Reykjavík, 29. febrúar 1984.
Albert Guðmundsson
fjármálaráðherra
Kristján Thorlacius
formaður BSRB
Fyrir hönd HFÍ undirrituðu samn-
inginn Sigþrúður Ingimundardóttir,
Sigríður Guðmundsdóttir og Ólöf
Björg Einarsdóttir.
Samningurinn var undirritaður með
fyrirvara um samþykki félags-
manna í allsherjaratkvæðagreiðslu.
Atkvæðagreiðslan verður skrifleg
og atkvæðaseðlar sendir félags-
mönnum BSRB á vinnustaði.