Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.03.1984, Side 32
María Heiðdal deildarstjóri
Sýning á öryggisbúnaði
barna í bílum
— Hvernig er þessi sýning tilkom-
in?
Þegar við vorum að afla okkur efnis
í slysafræðslu hér á barnadeild
Heilsuverndarstöðvarinnar, þá fór-
um við m. a. í Umferðarráð þeirra
erinda. Þar hittum við Margréti
Sæmundsdóttur fóstru, sem starfar
hjá Umferðarráði og hefur með
höndum umferðarfræðslu fyrir for-
skólabörn. Síðan eru það þau
Tryggvi Jakobsson sem koma með
hugmynd um sýninguna og í raun-
inni eiga þau veg og vanda af henni,
með aðstoð okkar.
Jafnframt er Umferðarráð með
könnun á því hvernig búið er um
barnið í bílnum.
Ætlunin er að þessi sýning fari á
fleiri staði og vonandi sem flesta,
því hún er góð.
Margrét Sæmundsdóttir hjá Um-
ferðarráði hefur með dreifinguna
að gera.
- Hvenœr byrjaði slysafrœðslan
sem þið eruð með?
Síðastliðið vor byrjuðum við á
barnadeild Heilsuverndarstöðvar-
innar með hópfræðslu um slysa-
í nóvember sl. gekkst Um-
ferðarráð og Heilsuverndar-
stöð Reykjavíkur fyrir
sýningu á öryggisbúnaði
barna í bílum.
María Heiðdal deildarstjóri
var ein þeirra sem stóðu fyrir
sýningunni og leitaði blaðið
upplýsinga hjá henni.
varnir fyrir foreldra 8-10 mánaða
barna og eldri. Okkur langaði til að
reyna þetta því að enn er mikið um
slys á börnum hérlendis, bæði innan
og utan dyra. En það má segja að
utan dyra og í umferðinni verða oft
afdrifaríkustu slysin. Sem dæmi um
slys á börnum má nefna að um 20%
af þeim sem komu á slysadeild árið
1982 voru börn innan 10 ára og um
helmingur af þeim börn innan fjög-
urra ára.
Það er e. t. v. alvarlegast, að oftast
er það vegna þess að eftirlit með
barninu hefur ekki verið nóg, eða
að foreldrarnir eða aðrir fullorðnir í
návist barnsins hafa ekki verið
nægilega varkárir.
— Hver er tilgangurinn?
Tilgangurinn er að fækka slysum á
börnum með því að vekja athygli
foreldra á slysagildrum í umhverf-
um og benda á að hætturnar eru
mismunandi eftir því á hvaða
þroskaskeiði barnið er. Einnig með
því að gera fólk ábyrgara fyrir því
sem aflaga fer og að hvetja fólk til
að gera umhverfi barna eins hættu-
lítið og kostur er.
Það er líka þörf að vekja for-
eldra fyrir því sem betur má fara
svo þeir veki athygli yfirvalda á því
sem laga þarf.
Það er líka gott að fólk hittist og tali
saman og miðli hvert öðru af eigin
reynslu. Það hefur komið ýmislegt
fram í slíkum hópum.
Það á að reyna að draga úr slysum
með fræðslu og upplýsingum er í
rauninni okkar starf, sem störfum
við heilsuvernd.
Það er líka þjóðhagslega hagkvæmt
að fækka slysum. Þau kosta mikið í
peningum og valda þjáningum. □
Hvaða útbúnað á að nota fyrir mismunandi aldur?
Myndin sýnir hvaða öryggisbúnað er œskilegl að nota fyrir mismunandi aldur.
26 HJÚKRUN '/«- 60. árgangur
Ungbörn fram að 9 mánaða aldri, eða þangað
til þau geta setið ein og óstudd, eiga aö liggja i
burðarrúmi eða efri hlutu barnavagns, sem
komið hefttr verið fyrir þversum í aftursœlinu.