Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.03.1984, Page 34
Upplýsingar um heimilisdýrin
,, Það er brádnauðsynlegt að athuga tennurnar í hundunum," segir Helga Finnsdóttir dýraicekn-
ir. „Pœr skemmast oft og sumir hundar eru orðnir tannlausir löngu fyrir aldur fram.“
Bœði börn og fullorðnir hafa
mikla ánœgju af samskiptum
við dýr.
Ritstjórn leitaði upplýsinga
um meðferð algengustu
heimilisdýra hjá Helgu Finns-
dóttur, dýralœkni.
Það verður æ algengara að fólk hafi
heimilisdýr, sér og sínum oftast til
mikillar ánægju, og eru hundar og
kettir þar vafalaust í meirihluta, þó
margir láti sér nægja að eiga fugl í
búri eða naggrís í kassa.
Sem betur fer lifa flest þessara dýra
góðu og kvillalausu lífi, en þó kem-
ur fyrir að dýrið veikist eða annað
það komi upp sem veldur eigand-
anum áhyggjum.
En hver eru einkenni þess að eitt-
hvað sé að, og hvernig skal þá við
brugðist?
Líkamshiti hunda og katta er held-
ur hærri en mannsins, eða um
38.5—39.0°C, og fer hann dálítið
eftir stærð og aldri dýrsins. Sé
hundur eða köttur með hita, verður
hann oftast lystarlaus og vill halda
kyrru fyrir. Hiti fylgir oft sé um
ígerðir að ræða, hálsbólgu, niður-
gang eða uppköst. Umgangspestir
okkar mannanna, svo sem flensu
eða kvef, eru þau blessunarlega
laus við.
Smærri gæludýr, svo sem fugla og
naggrísi, getur verið erfitt að lækna,
en sé um veika búrfugla að ræða, er
umfram allt nauðsynlegt að hafa þá
í góðum hita, allt að 30-35°C.
Leiki grunur á að heimilisdýrið sé
veikt, skal ævinlega strax vitja dýra-
læknis, sem þá finnur orsök kvillans
28 HJÚKRUN '/m - 60. árgangur
og meðhöndlar hann á viðeigandb
hátt. Ætíð skal hafa samráð við
dýralækni við lyfjameðferð, því
verkun lyfja getur verið breytileg
frá einni dýrategund til annarrar.
Ævilengd dýra er misjöfn eftir teg-
undum, en segja má að meðalaldur
hunda sé 8-14 ár, katta 10-12 ár,
páfagauka 8-10 ár og naggrísa 4-6
ár, en vissulega eru til dæmi þess að
dýr hafi náð mun hærri aldri en
meðalaldur segir til um.
Kynþroskaaldur fer einnig eftir teg-
undunt; tíkur og hundar verða kyn-
þroska u. þ. b. 8-12 mánaða, en
læður og fresskettir ná kynþroska-
aldri mun fyrr, eða frá 6 mánaða
aldri. Tíkurnar lóða með 5-6 mán-
aða millibili, en læðurnar breima
með 5-6 vikna millibili eða oftar,
og mest þá er daginn fer að lengja.
Lengd meðgöngu tíka og læða er
u. þ. b. 60-65 dagar, og naggrísa
68 dagar, en til gamans má geta að
gullhamstrar og mýs hafa stystan
meðgöngutíma spendýra, eða að-
eins 16 daga, og getur viðkoman
því orðið ævintýraleg hjá þessum
dýrum, sé ekkert að gert.
Lengd meðgöngu í vikum
Níu kötturinn.
Tíu tíkin.
Tuttugu ærin.
Fjörtíu konan/kýrin,
en kapallinn dregur lengst í vír-
inn (50-52).
Þeir sem vilja hafa hemil á viðkomu
gæludýra sinna, geta í samráði við
dýralækninn gert viðeigandi ráð-
stafanir til að koma í veg fyrir of-
fjölgun.
Venjulegast eru tíkur annað hvort