Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.03.1984, Síða 35
sprautaðar reglulega 5.-6. hvern
mánuð með hormónalyfi, eða gerð-
ar varanlega ófrjóar með skurðað-
gerð, þar sem eggjastokkar og jafn-
vel leg er fjarlægt.
Á seinni árum er orðið æ algengara
að gera læður varanlega ófrjóar
með skurðaðgerð á svipaðan hátt
og tíkur, en læðum má einnig gefa
,,pilluna“, en það skal þá ávallt gert
vikulega á sama vikudegi; varanleg
ófrjósemisaðgerð léttir því af katt-
areigandanum þeim áhyggjum að
gleyma ekki pillunni.
Ráðlegt er að gelda fressketti frá 6
mánaða aldri.
Við flutning á köttum, sem að öllu
jöfnu eru afar bílhræddir, er heppi-
legast að búa um þá í tösku eða
kassa; sé um flutning um langan
veg má í samráði við dýralækninn
gefa þeim róandi pillur.
Ýmsir sjúkdómar dýra geta borist í
menn, og skal þar fyrst nefna
hundaæði - Rabies. Hundaæðis
hefur ekki orðið vart á íslandi svo
óyggjandi sé, síðan á 18. öld, og
með lögum um innflutning lifandi
dýra og afurða dýra, er reynt að
sporna við því að sjúkdómur þessi,
sem og aðrir sjúkdómar berist hing-
að. Samkvæmt lögum um sulla-
veikivarnir skal árlega að lokinni
sauðfjárslátrun, hreinsa hunda af
bandormum. En skynsamlegt er
einnig að hreinsa hunda og ketti af
spóluormum 1-2 sinnum árlega.
Gæludýr geta sýkst af Salmonella,
sem síðan getur borist í fólk, og
geta gæludýr verið smitberar án
þess að þau beri merki um sjúk-
dóm.
Nefna má fleiri sjúkdóma sem bor-
ist geta í fólk, svo sem Toxoplas-
mosis og Leptospirosis, þó það sé
afar fátítt.
Á landinu öllu eru nú starfandi
dýralæknar sem veita dýraeigend-
um upplýsingar og þjónustu um
jafnt gæludýr sem önnur dýr. Skyn-
samlegt er því ætíð að ráðfæra sig
strax við dýralækninn steðji veik-
indi eða slys að dýrum.
Smáfískar í búrum
Við leituðum jafnframt til
Jóns Sverríssonar sem rekur
verslunina Dýraríkið á
Hverfisgötu, varðandi með-
ferð smáfiska í búrum og
búnað tengdum þeim.
Hitastig í fiskabúrum fer eftir þeim
tegundum sem í því eiga að vera.
Algengasta hitastigið er á bilinu
20-24 gráður. Nauðsynlegt er að
athuga hvaða tegundir fiska geta
verið saman og óráðlegt er að vera
með of marga fiska í sama búri. Til
viðmiðunar má segja: 1 cm fisk-
lengd á hvern lítra vatns.
Algengur búnaður v/fiskabúr er:
loftdæla, hreinsari, ljós, hitamælir,
hitari. Líta þarf vel eftir öllum
búnaði, helst að yfirfara hann viku-
lega. Halda þarf búrinu hreinu með
notkun hreinsibúnaðar. Góð regla
er að skipta reglulega um hluta af
vatninu, t. d. helming á V2 mánaðar
fresti. Nýja vatnið þarf að hafa
sama hitastig og það sem fyrir var.
Sniglar hjálpa til við að halda búr-
inu hreinu.
Fylgjast þarf vel með útliti og
hegðun fiskanna, og gera viðeig-
andi ráðstafanir ef á þarf að halda,
því upp geta komið t. d.: sníkjudýr,
bakteríusjúkdómar, sveppasjúk-
dómar, meiðsli og innvortis sjúk-
dómar.
Ráðlegt er að gefa mismunandi
gerðir fóðurs. Æskilegt er að fóðra
oft, ca. 4 sinnum á dag, en lítið í
senn, ekki meira en þeir torga á ca.
5 mínútum. Fóður getur safnast
fyrir og mengað búrið.
Mjög gott er að hafa lifandi gróður í
búrinu. Hann stuðlar að hreinlæti
og fegrar búrið.
BÆKUR UM GÆLUDÝR
Ýmsar bækur um gæiudýr eru á markaönum
hér, fást þær í bókabúðum og gæludýraversl-
unum.
Sem dæmi má nefna aö hjá Bókaverslun Sig-
fúsar Eymundssonar fást eftirtaldar bækur:
Guide to the Dogs of the World. Published
1983 by Exeter Books. Verö kr. 230.00.
Guide to the Cats of the World. 1983 Exeter
Books. Verð kr. 230.00.
Hunde i farver. Politikens Forlag, 5. útg.
1977. Verö kr. 230.00.
Hjá Bókaverslun Snæbjarnar voru einnig til
ýmsar bækur, þar á meðal: What’s Wrong
with Your Pet? How to ldentify Your Ani-
mal’s Illness, eftir Hugo Kerr. Verð kr.
85.00.
HJllKRUN */« - 60. árgangur 29