Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.03.1984, Síða 36
Minning
Kveðja frá Hjúkrunarfélagi
íslands.
„Stráin sölna. Stofnar falla.
Stormur dauðans næðir alla.
Ljóselskandi, langan þrungið.
Lífið fyllir öll þau skörð.
Sækir fram í sigurvissu.
Svo er strítt um alla jörð.“
Örn Arnarson
Saga íslenskrar hjúkrunarstéttar er
ekki gömul á mælistiku mannkyns-
sögunnar, nær ekki lengra aftur í
tímann en rétt um aldamót. Þeir
stofnar sem hvað sterkast hafa
staðið, og stuðlað að uppbyggingu
hjúkrunarmála á íslandi eru því
margir meðal okkar í dag, og geta
miðlað okkur af reynslubrunni sín-
um.
Fyrir okkur hinar yngri er slíkt
ómetanfegt, og nauðsynlegur
hlekkur í þróun hjúkrunarstarfsins.
Við kveðjum í dag eina slíka konu,
Önnu Loftsdóttur, fyrrverandi for-
mann Hjúkrunarfélags íslands.
Anna Jórunn Loftsdóttir fæddist
21. júlí 1911 á Bakka í Austur-
Landeyjum, Rangárvallasýslu,
dóttir hjónanna Lofts Þórðarsonar
bónda og konu hans, Kristínar Sig-
urðardóttur, ljósmóður. Árið 1939
í maí lauk hún námi við Hjúkrun-
arkvennaskóla íslands. Þetta var ár
Ijóss og skugga. Ljósið var stéttar-
innar, því ráðist var í það þrekvirki
að halda hér sjötta mót hjúkrunar-
kvenna á Norðurlöndum.
Laugardaginn 22. júlí lagðist „Stav-
angerfjord“ á ytri höfnina með 448
hjúkrunarkonur innanborðs. Mörg
mál voru á dagskrá þingsins, og
Ijóst að hér voru konur sem hugs-
Anna Jórunn Loftsdóttir
hjúkrunarkona
Fœdd 21. júlí 1911
Dáin 14. janúar 1984
uðu stórt. Skugginn var ófriðurinn
er grúfði yfir Evrópu um haustið og
ísland fór ekki varhluta af.
Að loknu hjúkrunarnámi hélt Anna
til Danmerkur í framhaldsnám í
geðhjúkrun. Þar stundaði hún einn-
ig nám í spítalastjórn og hjúkrunar-
kennslu við háskólann í Árósum. í
Danmörku og Svíþjóð starfaði hún
á hinum ýmsu sjúkrahúsum árin
1940-1945.
Hér heima lærði hún og starfaði við
skurðhjúkrun og röntgenhjúkrun á
Landspítalanum, yfirhjúkrunar-
kona á sjúkrahúsi Hvítabandsins
1955—1957 og síðast sem deildar-
hjúkrunarkona við Vífilsstaðaspít-
ala.
Merkur og fjölbreytilegur starfs-
ferill hæfrar konu sem sýnir vel
hversu víðfeðm þekking hennar á
hjúkrunarstarfinu var.
Félagsmálum stéttarinnar sinnti
hún einnig af kostgæfni, sat í stjórn
Hjúkrunarfélags íslands 1950-
1954 og formaður þess 1961-
1965. Jafnframt sat hún í stjórn
B.S.R.B. og Samvinnu hjúkrunar-
fræðinga á Norðurlöndum.
Eg vil að leiðarlokum þakka fyrir
hönd okkar stéttarfélags merkt
framlag til hjúkrunarmála á íslandi.
Blessuð sé minning Önnu Lofts-
dóttur.
Sigþrúður Ingimundardóttir
formaður
Anna Jórunn Loftsdóttir hjúkrun-
arkona var kvödd hinstu kveðju
fimmtudaginn 19. janúar í Foss-
30 HJÚKRUN ‘/m - 60. árgangur