Hjúkrun: tímarit Hjúkrunarfélags Íslands - 01.03.1984, Blaðsíða 48
Fréttir — Fréttir — Fréttir — Fréttir
__________________________________________£9
Aðalfundur
Reykjavíkurdeildar HFÍ
Aðalfundur Reykjavíkurdeildar var
haldinn 26. janúar síðastliðinn, að
Grettisgötu 89 og sóttu hann um 60
manns.
Formaður flutti ársskýrslu deildar-
stjórnar og gjaldkeri gerði grein
fyrir reikningum deildarinnar.
Lögð var fram og samþykkt fjár-
hagsáætlun fyrir árið 1984.
Sigþrúður Ingimundardóttir gerði
grein fyrir störfum nefndar, er skip-
uð var á félagsfundi 21. febr. 1983,
og tók saman álit varðandi frum-
varp til laga um breytingar á lögum
um fóstureyðingar o. fl.
Þá fóru fram kosningar. Að þessu
sinni voru kosnir 15 nýir fulltrúar,
en deildin á 27 fulltrúa á næsta full-
trúafundi HFÍ.
Stjórnarkjör: Formaður var kosinn
fyrir ári síðan til tveggja ára. Aðrir
stjórnarmenn höfðu lokið kjörtíma-
bili sínu.
Stjórn deildarinnar er nú þannig
skipuð:
Jón Karlsson formaður
Ragnheiður Sigurðardóttir vara-
formaður
Lilja Steingrímsdóttir ritari
Sigurbjörg Ólafsdóttir gjaldkeri,
Hrafnhildur Baldursdóttir með-
stjórnandi.
Varumenn:
Áslaug Björnsdóttir,
Ingibjörg Alda Guðmundsdóttir,
Ingibjörg Hjálmarsdóttir.
í lok fundar gerði Ólöf Björg Ein-
arsdóttir, fulltrúi kjaramálanefnd-
ar, grein fyrir stöðu samningamála
og Sigurveig Sigurðardóttir ræddi
um sjúklingaskatt o. fl.
Á fundinum voru samþykktar eftir-
farandi tillögur:
„Aðalfundur Reykjavíkurdeildar
Hjúkrunarfélags íslands, haldinn
þann 26. janúar 1984, mótmælir
eindregið framkomnum hugmynd-
Ragnhildur Helgadóuir menntamálarád-
herra. Ljósm.: Kopia.
Sigþrúður Ingimundardóttir formaður HFÍ.
Ljósm.: Kopia.
Fréttir frá Nýja hjúkrunarskólanum
• 107. fundur skólanefndar sem
haldinn var l.febrúar 1984varfrá-
sagnarverður viðburður vegna þess
að í fyrsta sinn var hjúkrunarfræð-
ingur í forsæti.
Menntamálaráðherra Ragnhildur
Helgadóttir fór að óskum hjúkrun-
arstéttarinnar og skipaði Sigþrúði
Ingimundardóttur, formann HFÍ,
formann skólanefndar. Ráðamenn
höfðu fram til þessa ekki talið koma
til greina annað en að velja lækna til
forustu, í skólanefnd. Það hefur
verið lán skólans að læknar þeir er
völdust til að gegna þessu þýðingar-
mikla hlutverki hafa haft góðan
áhuga á málefnum skólans, verið til-
lögugóðir og starfsfúsir. Á skólinn
þeim mikið að þakka.
• Guðbjörg Edda Eggertsdóttir
lyfjafræðingur, hefur fengið til liðs
við sig 7 lyfjafræðinga til að kenna í
námskeiðinu, hagnýt lytjafræði,
sem auglýst var í síðasta tölublaði
Hjúkrunar. Umsækjendur urðu á 9.
tug og féllust lyfjafræðingarnir á að
kenna 2 bekkjum samtímis, um 30
nemendum í hvorum bekk. Skólinn
mun leitast við að fá þau aftur til
kennslu næsta haust og mæta óskum
allra þeirra er sækja um þetta nám,
en komast ekki, að þessu sinni.
um stjórnvalda þess efnis að fólk
sem þarf á sjúkrahúsvist að halda
verði látið taka á sig að hluta kostn-
aðar, sem af þeirri dvöl leiðir.
Aðalfundur Reykjavíkurdeildar
Hjúkrunarfélags fslands mótmælir
harðlega kjaraskerðingu ríkis-
stjórnarinnar. Fundurinn lýsir
furðu sinni á viðbrögðum ríkis-
stjórnarinnar við hógværri kröfu-
gerð BSRB í yfirstandandi kjara-
deilu. Fundurinn krefst þess að
ríkisstjórnin semji nú þegar um
fimmtán þúsund króna lágmarks-
laun.“ Jón Karlsson
Hvað er næringarráðgjöf?
í lok apríl kemur hingað til landsins í
boði Manneldisfélags íslands,
sænskur næringarráðgjafi og doktor
í næringarfræði, Brittmarie Sand-
ström. Hún mun halda fyrirlestur
um starf næringarráðgjafa á sjúkra-
húsum og nám þeirra.
Hjúkrunarfræðingar eru hvattir til
að mæta á þennan fyrirlestur þar eð
næringarráðgjafar starfa í náinni
samvinnu við hjúkrunarfræðinga á
sjúkradeildum.
Fyrirlesturinn verður auglýstur
síðar í fjölmiðlum.
42 HJÚKRUN */m - 60. árgangur